Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2016, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2016, Síða 18
Vikublað 8.–10. mars 20162 Flutningaþjónusta - Kynningarblað Sendó: Persónuleg þjónusta og öryggi í fyrsta sæti F yrirtækið Sendó ehf. var stofnað af eigendum þess, þeim Erni Steinari Arnarsyni og Lindu Dröfn Jónsdóttur, í ágúst 2006. Sendó er byggt á áratuga reynslu Arnar í flutninga- bransanum sem hann hefur starfað við síðan árið 1991. Það er því óhætt að segja að hér sé reynslu- og þekk- ingarmikið flutningafyrirtæki á ferð. „Þetta byrjaði allt með einum sendi- bíl,“ segir Örn. „Þetta var síðan fljótt að vinda upp á sig og í dag rekur Sendó um níu bíla alls auk þess að vera með ýmis önnur tæki á boðstól- um og er með átta starfsmenn í vinnu.“ Ekkert of stórt eða of lítið Örn leggur áherslu á að aðalmarkmið Sendó sé að bjóða alhliða og vandaða flutningaþjónustu fyrir jafnt einstak- linga sem fyrirtæki. „Við leggjum okk- ur fram við að vera með persónulega og góða þjónusta þar sem áreiðan- leiki og öryggi er í fyrirrúmi. Við bjóðum upp á allar stærðir af bílum auk þess sem Sendó er með „malar- trailer“ og ýmislegt fleira. Við segjum gjarnan að ekkert er of stórt eða lítið fyrir okkur og stöndum við það.“ Sendó er með flutninga á smá- pökkum og sérdreifingu á vörum. Einnig eru í boði heildarflutnings- lausnir fyrirtækja (ásamt pökkun), flutningur á búslóðum, píanóum/ flyglum (til staðar er sérhæfður bún- aður til þess), peningaskápum, bát- um, þungavinnuvélum og ýmsu fleira. Jarðvegsflutningar og öll almenn kranavinna „Einnig tökum við að okkur jarðvegs- flutning og alla almenna kranavinnu,“ segir Örn. „Við bjóðum viðskiptavin- um okkar heildarlausnir í flutningi; getum séð um að pakka og flytja. Svo er líka sjálfsagt að óska eftir því að fá okkur á staðinn til þess meta tíma og kostnað við fyrirhugaðan flutning.“ Láttu vanan og öruggan fagmann sjá um að flytja fyrir þig – það margborgar sig. Hafðu samband og þú getur treyst á að Sendó klárar málið. Sendó ehf., Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík. S: 551-1010. www.sendo.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.