Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2016, Qupperneq 22
Vikublað 8.–10. mars 20166 Flutningaþjónusta - Kynningarblað
S
endibílastöðin Flutningur
býður upp á alhliða flutn-
inga, greiðabíla fyrir
búslóða- og píanóflutn-
inga og vörudreifingu á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Á vegum
stöðvarinnar eru allar stærðir
sendibíla og markmið hennar er
að veita trausta, örugga og umfram
allt góða þjónustu við bæði fyrir-
tæki og einstaklinga.
Kristján Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri Flutnings segir bíla-
flota fyrirtækisins vera fjölbreytt-
an. „Auk þess hafa bílstjórarnir
okkar mikla þekkingu og reynslu
af flutningum, vörudreifingu og
raunar hvers kyns aðstæðum sem
komið geta upp varðandi flutninga
og akstri þeim tengdum. Sjálfur er
ég búinn að vera í þessum bransa í
þrjátíu ár og ætti að vera búinn að
öðlast einhverja tækni. Við höfum
yfir að ráða öllum nauðsynlegum
léttitækjum sem til þarf í flutninga
á vörum, bílum, búslóðum og vél-
um. Við erum stoltir af því að geta
ráðið við hvers konar flutninga af
fagmennsku,“ segir hann.
Fjölhæfni og fjöl-
breytt verkefni
„Flutningur.is tek-
ur að sér alls
kyns ólík og fjöl-
breytt verkefni.
Við höfum t.d.
verið fengn-
ir á tökustað
við gerð aug-
lýsingamynda á
bílum og er það
gott dæmi um
fjölhæfni okkar,“
segir Kristján glettnis-
lega. „Bílar á okkar veg-
um eru nýttir sem flutnings-
tæki og jafnvel verkstæði til þess að
annast viðgerðir, dekkjaskipti og
þrif á sýningabílunum. Fyrirtækið
er með öll nauðsynleg tæki og tól
sem þarf til slíkra verka enda hef-
ur margra ára reynsla í bransan-
um kennt okkur að mæta með það
sem þarf. Við tökum að okkur vöru-
dreifingu og alla almenna búslóða-
flutninga. Flutningur.is er með
á sínum snærum átta sendibíla,
bæði litla og stóra, einnig kranabíla
og hvers kyns léttitæki.“
Gámaflutningabíll fyrir
20 feta gáma
Kristján segir frá því að Flutning-
ur.is sé um þessar mundir að taka
í notkun gámaflutningabíl fyrir
tuttugu feta gáma og það standi til
að bjóða upp á þá nýbreytni að fá
gám á staðinn. „Þetta kemur sér vel
fyrir þá sem þurfa að afhenda sína
íbúð strax en fá ekki nýju íbúðina
afhenta fyrr en seinna og ekki síð-
ur fyrir þá sem vilja raða í gáminn
í rólegheitum og ekki flytja í einum
hvelli.
Einnig er hægt að leigja
búslóðalyftu hjá fyrirtækinu og má
sjá kynningarmyndband á heima-
síðu Flutnings.is þar sem hægt er
að sjá hvernig lyftan virkar.“ n
Fagmennska í flutningum
Flutningur.is: Nokkur góð ráð varðandi flutninga
1 Sankaðu að þér sterkum kössum í nokkrum stærðum.
Einnig er gott að hafa eftirfarandi
við hendina þegar pakkað er:
kúluplast, dagblöð, skæri, sterkt
límband og góðan merkipenna.
2 Pakkaðu þungum hlutum, eins og bókum, í minni kassa
svo þeir verði ekki of þungir. Í
stærri kössum skulu þyngri hlut-
ir vera neðst og þeir léttari efst.
Pakkið hverjum hlut í dagblöð eða
kúluplast ef þeir eru viðkvæmir.
Ef of rúmt er um hluti í kassanum,
fylltu þá upp í hann með dagblöð-
um eða öðru slíku.
3 Pakkaðu öllu því sem á að fara í sama herbergi í sama
kassa og merktu hann herberginu.
Taktu fyrir eitt herbergi í einu,
pakkaðu fyrst litlum munum til
að koma þeim frá. Merktu utan á
kassann hvað er í honum.
4 Pakkaðu og merktu sérstaklega þá kassa sem opna á fyrst af
öllum þegar komið er á áfangastað.
Í kassanum eiga að vera ómissandi
hlutir sem notaðir voru fram á síð-
asta dag, líkt og uppþvottalögur,
klósettpappír, plastdiskar og hnífa-
pör og ýmislegt það sem fjölskyldan
þarf að nota áður en hægt er að taka
upp úr öllum kössunum.
5 Þegar stærri hlutir eru teknir í sundur, líkt og borð, hillur og
skápar, er gott að geyma verkfæri í
einum vel merktum poka eða kassa
til að auðvelda samsetningu á nýja
staðnum. Skrúfum er gott að tylla
og jafnvel líma aftur í þau göt sem
þær eiga að vera í.
6 Settu allan rafeindabúnað eins og fjarstýringar, millistykki og
straumbreyta á einn stað.
7 Staflaðu kössunum þegar búið er að loka þeim. Gott er að
nýta eitt herbergi undir kassana,
þannig er hægt að klára að þrífa
hinn hluta hússins.
Sendibílastöðin Flutningur.is,
s: 575 – 3000, www.flutningur.is
Nokkur góð ráð varðandi flutninga frá Flutningi.is: