Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2016, Page 28
20 Menning Vikublað 8.–10. mars 2016
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira
Erfitt að eiga við ástina
2
015 var ár einstæðingsins, eða
„skrýtna kallsins“ í íslenskum
kvikmyndum. Nú virðist hins
vegar komið að ástarmynd-
unum. Og margt hefur breyst
í ástarlífi landans. Samfarir eru ekki
lengur samfara sveitaböllum, farið er
í leikhús og á listasöfn. Karlmenn ótt-
ast það mest af öllu að virka „krípí“
og konur eru ekki endilega á því að
hlaupa beint í sambönd. Notast er
við samskiptamiðla og það eru góð
ráð að hringja ekki á kvöldin í fyrsta
skiptið. Og gott ef Reykjavíkurtjörn
virkar ekki bara andskoti rómantísk á
góðviðrisdegi. Ef aðeins við hefðum
fleiri slíka.
Sögusvið myndarinnar er auglýs-
ingastofa, sú var tíð að auglýsinga-
gerðarmenn töldust útsæði Satans en
eftir Mad Men eru þeir orðnir menn-
ingarhetjur, þeir einu sem eru á full-
um launum við skapandi skrif án
ríkisstyrkja. Ágætis pælingar sölu-
mannanna um bjartsýni auglýs-
inga andstætt svartsýni frétta fylgja.
Myndin tekur mið af samtíma sínum
og fer ágætlega af stað. En fljótt fer að
halla undan fæti.
Söguhetjur eru sóttar beint í „rom-
com“ fyrirmyndir að vestan, ófram-
færna aðalpersónan og „slísí“ besti
vinurinn sem blaðrar eitthvað um
Suður-Evrópu og er með plakat af
Berlusconi á veggnum ef við skyldum
ekki átta okkur á persónunni. Gallinn
er ekki fyrst og fremst hvað persón-
urnar minna lítið á raunverulegar
manneskjur heldur sá að hér er fram-
in höfuðsynd rómantískra gaman-
mynda: Manni stendur á sama um
hvort fólk nái saman eða ekki.
Engin sérstök ástæða er fyrir því að
Húbert og Hanna eigi að finna hvort
annað, nema þau annars góðu rök
að hvorugt virðist geta gert betur, en
það dugir ekki í bíó. Hún hefur þann
helsta kost að vera frænka þeirrar sem
slísí gaurinn reynir við, og hann gerir
heldur ekki mikið til að heilla nema að
herma eftir Ólafi Ragnari í gríð og erg.
Kannski kaus hún á móti Icesave, en
það kemur þá ekki fram.
Að sjálfsögðu fær hún fljótt leiða
á þessum eftirhermutilburðum, þó
löngu á eftir áhorfandanum. Ekki virð-
ist stráksi hafa mikinn persónuleika
þar fyrir utan en getur ekki hætt að
herma eftir. Og þessi eftirhermumál
eru jafn óútskýrð og þau eru ófyndin.
Líklegast hefði verið betra að gera
hann að uppistandara sem festist í
hlutverki sínu, en þá hefði líka þurft að
hafa hann skemmtilegan, sem hefði jú
verið til bóta í sjálfu sér. Nú, eða þá að
láta Pálma Gestsson fara með hlut-
verk eftirhermunnar fyrst hann er á
svæðinu, frekar en að afgreiða hann
með einum „meta“ brandara.
Að sjálfsögðu vill Hanna helst snúa
aftur til barnsföður síns, og sá vill það
sama, en við eigum víst að vona að það
gerist ekki. Ekki er gefin nein ástæða
fyrir því að fyrrverandi þyki ekki góð-
ur kostur önnur en að frænkan hefur
eitthvað á móti honum. Brandararnir
gera flestir boð á undan sér, gömul
kona kemur inn í eldhús og fer að tala
um nýmóðins heimilistæki af engri
sýnilegri ástæðu og að sjálfsögðu fer
okkar maður að herma eftir henni og
tala um hjálpartæki ástarlífsins. Eina
góða brandarann er að finna á auglýs-
ingaspjaldi myndarinnar. Og enn sem
komið er ferst Íslendingum betur að
fjalla um einsemdina en ástina. n
Ásfangin eftirherma Auglýsinga
teiknarinn Húbert (Snorri Engilbertsson)
verður ástfanginn af Hönnu (Hafdís Helga
Helgadóttir) en stefnir sambandinu í hættu
þegar hann festist í eftirhermuleik.
„Gallinn er ekki
fyrst og fremst
hvað persónurnar minna
lítið á raunverulegar
manneskjur heldur sá að
hér er framin höfuðsynd
rómantískra gaman
mynda: Manni stendur á
sama um hvort fólk nái
saman eða ekki.
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
Fyrir framan
annað fólk
IMDb 9,0
Leikstjórn: Óskar Jónasson
Aðalhlutverk: Snorri Engilbertsson, Hafdís
Helga Helgadóttir, Svandís Dóra Einars
dóttir og Hilmir Snær Guðnason
Handrit: Óskar Jónasson og Kristján Þórður
Hrafnsson
90 mínútur
HönnunarMars
að hefjast
Hin árlega hönnunarhátíð
HönnunarMars fer fram um
helgina. Á þessari uppskeru hátíð
íslenskrar hönnunar sameinast
allar greinar hönnunar: arki-
tektúr, húsgagna- og innanhúss-
hönnun, grafísk hönnun, fata- og
vöruhönnun. Um hundrað við-
burðir eru á dagskrá frá fimmtu-
degi til sunnudags, sýningar,
uppákomur, innsetningar, kaup-
stefnur og fyrirlestrar víðs vegar
um höfuðborgarsvæðið.
HönnunarMars hefst með
fyrirlestradeginum DesignTalks
í Hörpu á fimmtudag en þema
ráðstefnunnar er „Hönnun, leið-
andi afl í nýsköpun.“ Þar munu
íslenskir og þekktir erlendir
hönnuðir ræða um vinnu sína,
þeirra á meðal grafíski hönnuð-
urinn Jonathan Barnbrook sem
vann mikið með David Bowie,
Maria Losogorskaya úr ung-arki-
tektahópnum Assemble sem
hlaut Turner-verðlaunin 2015,
Lauren Bowker sem blandar
saman efnafræði og fatahönnun
til að sýna það sem augað nemur
ekki, Maria Guidice sem hefur
stýrt hönnunarverkefnum hjá
stórfyrirtækjunum Facebook og
Autodesk, Tom Loosemore sem
leiddi meðal annars risaverkefnið
GOV.UK, og hönnunarteymið
Studio Swine (Azusa Murakami
og Alexander Groves) sem hanna
hluti úr plastinu sem flýtur um og
mengar sjóinn.
Upplýsingar um alla viðburði
á HönnunarMars má sjá á vefsíðu
hátíðarinnar www.honnunar-
mars.is
Frumlegheit á
steinöld
Dómur um tölvuleikinn Far Cry Primal á Playstation 4
F
ar Cry-leikirnir hafa notið mik-
illa vinsælda á undanförnum
árum og það ekki að ástæðu-
lausu. Leikirnir eru opnir og
gerast í framandi umhverfi sem gerir
þá að algjöru augnakonfekti.
Ubisoft ræðst ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur í þeim nýjasta
í röðinni, Primal. Leikurinn gerist á
steinöld og snýst að stærstum hluta í
kringum veiðimann, Takkar, sem til-
heyrir Wenja-ættbálknum. Takkar
þarf að beita klókindum til að lifa af
í hörðum heimi þar sem stórhættu-
leg rándýr, loðfílar og sverðkettir þar á
meðal, eru á hverju strái.
Eins og þeir sem þekkja Far Cry-
leikina vita þá hafa bílar og byssur
leikið stórt hlutverk. Þar sem leikurinn
gerist á steinöld er ekki fyrir þessari
tegund hasar að fara í leiknum, en
þess í stað eru komin frumstæð vopn.
Sérstaða Primal er sú staðreynd að
leikurinn gerist á steinöld. Gagnrýn-
anda rekur ekki minni til þess að ann-
ar stór leikur hafi gerst á þessum for-
sögulega tíma og má að því leyti segja
að Ubisoft hafi tekið nokkra áhættu.
Steinöld býður jú ekki upp á neinn
bíla- eða byssuhasar sem margir
þrífast á og sækja í.
Primal hefur sína kosti og galla.
Verkefnin sem Takkar þarf að leysa
eru ögn tilbreytingarsnauð og flöt og
það vantar aðeins meiri hasar og fjöl-
breytni.
Far Cry Primal er samt skemmti-
legur leikur með einstöku sögusviði,
flottu umhverfi og góðri grafík. Þarna
fá spilarar eitthvað nýtt og þú færð
aldrei á tilfinninguna að Ubisoft hafi
kastað til hendinni við þróun og fram-
leiðslu leiksins. n
Far Cry Primal
Metacritic 77
Framleiðandi: Ubisoft Spilast á: PS4, Xbox
One, PC.
Tölvuleikur
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is