Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2016, Síða 13
Umræða Stjórnmál 13Vikublað 12.–14. apríl 2016
Glæsibær · Sími: 571 0977 · Opið 10-18 · www.deluxe.is
Fjölbreyttar vörur og úrval meðferða
Tilboð apríl mánaðar – Green Peel meðferðir á 20% afslætti
Hin upphaflega jurta húðendurnýjun – Árangur um allan heim í yfir 50 ár
Green peel getur unnið gegn óhreinni húð, stækkun svitahola, ótímabærri öldrun húðar, hrukkum,
örum, húðsliti, appelsínuhúð, minnkandi sveigjanleiki húðar, sliti á maga, lærum, baki og fleiri stöðum.
3 TeGundir
af meðferðum
Classic: Húðendurnýjun á 5 dögum
energy: Sjáanlegur stinnleiki húðar
fresh up: Fljótleg fegrun
Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni
sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög
þurru umhverfi.
Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna
hornhimnunnar gegn þurrki.
Droparnir eru án rotvarnarefna
og má nota með linsum.
Ég fór í laseraðgerð hjá Sjónlagi í lok maí 2015. Keypti mér
Thealoz dropana eftir aðgerðina og var mjög ánægð, ákvað
samt að prufa að kaupa mér ódýrari dropa og fann rosalega
mikinn mun á gæðum. Þessir ódýrari voru bara ekki að
gera neitt fyrir mig og þurfti ég að nota mikið meira magn.
Mælti með dropunum við tengdamömmu og er hún alsæl
með Thealoz dropana.
Elín Björk Ragnarsdóttir
Þurrkur í augum?
Thealoz augndropar
Fæst í öllum helstu apótekum.
Neikvæðnin bundin við fréttir af Sigmundi Davíð
n Erlend umfjöllun ólíkleg til að hafa áhrif til langframa n Stjórnvöld greina áhrifin
hátt, að um væri að ræða lýðræðislegt
heilbrigðismerki, þegar mótmælt
var og þegar Sigmundur Davíð sagði
síðan af sér. Varðandi umræðu á sam-
félagsmiðlum lýsir fólk þar miklu
frekar skoðunum. Við höfum ekki náð
að skoða þá umfjöllun nægilega vel til
að hægt sé að leggja út af henni, ég get
ekki fullyrt hvort um var að ræða nei-
kvæða umræðu eða jákvæða.“
Urður segir að nú liggi fyrir að
greina umræðuna enn frekar og meta
hvort, og þá hvernig, eigi að bregðast
við henni.
Athyglin á Sigmundi Davíð
Íslandsstofa hefur fylgst sérstaklega
með umfjöllun fjölmiðla í Bretlandi,
Bandaríkjunum, Þýskalandi og
Frakklandi. Þegar Eyjan ræddi við
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóra
Íslandsstofu í gær, höfðu um 600
greinar verið skrifaðar um Ísland í
Þýskalandi undanfarna þrjá daga
og annað eins í Bretlandi og Banda-
ríkjunum. „Það er mjög mikil um-
fjöllun sem kemur svo sem ekki
á óvart, meðal annars í stórum
og virtum fjölmiðlum. Hún hefur
mikið til verið bundin við nafnið
á forsætisráð herranum fyrrver-
andi. Það liggur fyrir fyrir að hann
komst í fréttir víða og í langflestum
tilvikum voru þær neikvæðar en í
langflestum tilvikum er ekki meira
lagt upp úr þessu.“
Þrátt fyrir neikvæðar fréttir segir
Jón að þær hafi ekki kallað á við-
brögð. Þannig hafi Íslandsstofa
ekki fengið nein viðbrögð í gegn-
um vefsíðuna iceland.is eða á sam-
félagsmiðla sína, öfugt við það sem
gerðist þegar borgarstjórn sam-
þykkti að sniðganga vörur frá Ísrael.
Þá hafi viðbrögðin verið mikil og
sterk, enda Ísrael með sterka hags-
munaaðila sem taka til varna fyrir
sitt fólk. „Við lítum ekki á þetta mál
sem hættulegt fyrir orðspor okkar
eða ímynd,“ segir Jón sem telur ekki
tilefni til sérstakra aðgerða vegna
þessarar miklu umfjöllunar. „Það
er afar mikið flóð af fréttum og upp-
lýsingum og það þarf mikið að ger-
ast til að svona frétt lifi lengi. Svona
frétt hefur ákveðinn líftíma og svo
beinist athyglin að öðru, til dæmis
David Cameron [forsætisráðherra
Bretlands] núna. Okkar mat er þess
vegna að langtímaáhrifin verði ekki
mikil en það fer líka eftir því hvernig
við vinnum úr þessu sjálf.“ n
Stundargaman Vandræðagangi Sigmundar Davíðs voru jafnvel gerð skil í Ástralíu. Stjórnvöld meta það svo að umfjöllunin komi ekki til
með að hafa langvarandi áhrif á orðspor Íslands. MynD ABC/SkjáSkot Af youtuBe
Fréttaflutningurinn af Íslandi hreyfði
einnig við erlendum fjárfestum í liðinni
viku. Það endurspeglaðist meðal annars í
hækkandi skuldatryggingaálagi á íslenska
ríkið og hærri ávöxtunarkröfu á erlendar
skuldir ríkissjóðs og gekk hækkunin
aðeins lítillega til baka þegar ljóst varð
að núverandi stjórnarflokkar myndu
halda samstarfinu áfram og boðað yrði til
kosninga næstkomandi haust.
Þrátt fyrir að dregið hafi úr pólitískri
óvissu í lok síðustu viku þá er það mat
erlendra fjárfesta, einkum þeirra sem hafa
staðið að baki tugmilljarða vaxtamunar-
viðskiptum síðustu misseri, að ástandið sé
viðkvæmt og því munu þeir halda að sér
höndum meðan óvíst er um framvinduna
í íslenskum stjórnmálum. Ólíklegt má
telja að framhald verði næstu mánuði á
talsverðu innflæði gjaldeyris vegna kaupa
fjárfestingarsjóða á íslenskum ríkis-
skuldabréfum.
Vaxtamunarviðskipti slíkra sjóða hafa
numið meira en 60 milljörðum frá því um
mitt síðasta ár og haft mikið um það að
segja að ávöxtunarkrafa óverðtryggðra
ríkisskuldabréfa hefur haldist undir 6
prósentum. Kröfuhafar Kaupþings hafa
einnig ekki farið varhluta af breyttu
pólitísku landslagi hérlendis en þeir velta
því núna fyrir sér hvort ástæða sé til
að hraða sölu á 87 prósenta eignarhlut
sínum í Arion banka. Óttast áhrifamestu
kröfuhafar félagsins hvaða áhrif það
hefði á söluferlið og verðmæti Arion
banka ef næsta ríkisstjórn verður undir
forystu Pírata, eins og skoðanakannanir
gefa núna til kynna, þar sem lítið sé vitað
um stefnu þeirra á sviði efnahags- og
bankamála.
Fjárfestar lesa óvissu út úr fréttum