Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Síða 6
Helgarblað 8.–11. júlí 20166 Fréttir
Veislan er
að hefjast
Farðu nýjar leiðir og prófaðu ferskar sérvaldar
hrefnulundir á grillið eða pönnuna.
IP Dreifing | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408
AldArgAmAlt hús
rifið í hAfnArfirði
Húsafriðunarnefnd hefur staðið í vegi fyrir niðurrifinu um árabil en snerist nýlega hugur
r
úmlega 100 ára hús á
útsýnis lóð í Hafnarfirði
verður rifið til þess að eig-
andinn geti byggt tvö ein-
býlishús á lóðinni og
annarri samliggjandi lóð. Niðurrifið
var heimilað á fundi skipulags- og
byggingarráðs Hafnarfjarðar þann
28. júní síðastliðinn en sú ákvörðun
byggði á heimild Minjastofnunar
frá 7. september í fyrra um að húsið
yrði endurnýjað frá grunni. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem eigandinn hef-
ur óskað eftir heimild til að rífa hús-
ið. Í tvígang hafði húsafriðunarnefnd
lagst eindregið gegn niðurrifinu
á þeim grunni að „tilveruréttur
hússins sé ótvíræður, hvort sem er út
frá umhverfislegum eða menningar-
sögulegum sjónarmiðum.“
„Mikilvægt að húsinu verði
sómi sýndur“
Húsið sem um ræðir stendur á lóð
að Hellubraut 7 og var það byggt árið
1907. Í húsaskráningu Byggðasafns
Hafnarfjarðar frá árinu 2009 kem-
ur fram „að húsið sé gott dæmi um
hafnfirskt bárujárnsklætt timburhús
sem sökum aldurs falli undir lög um
húsafriðun.“
Þá kemur enn fremur fram að
Hellubraut 7 sé í hópi tiltölulegra
fárra húsa í bænum af eldri gerð og
sé varðveislugildi þess ótvírætt, ekki
síst þegar horft sé til umhverfisgild-
is hússins. Einnig segir að „ sökum
einstakrar staðsetningar sinnar sé
mikilvægt að húsinu verði sómi
sýndur og það lagfært á ytra byrði og
það fært í upprunalegri búning.“
Óhætt er því að fullyrða að til-
vist hússins og áframhaldandi varð-
veisla þess rími við yfirlýsingu í að-
alskipulagi Hafnarfjarðarbæjar
2005–2025 en þar segir um eldri
byggðir að „mikilvægt sé að varð-
veita samfellda byggð sem heild
og halda þar með einkennum, sem
myndað hafa ramma um líf fyrri
tíma. Stuðlað verði að varðveislu,
verndun eða friðun sérkenna í húsa-
gerð og skipulagi auk annarra stað-
bundinna umhverfisþátta þannig að
ímynd bæjarfélagsins styrkist.“
Nokkrar tilraunir til niðurrifs
Eigandi Hellubrautar 7 er Gunnar
Hjaltalín, löggiltur endurskoðandi,
sem komið hefur að fjölmörgum fast-
eignaverkefnum. Hann keypti húsið í
lok árs 2008 auk samliggjandi lóð-
ar að Hellubraut 5 fyrir 52,5 milljón-
ir króna. Gunnar hefur gert nokkrar
tilraunir til þess að fá heimild til þess
að rífa húsið en húsafriðunarnefnd
hefur staðið í vegi fyrir því. Á fundi
4. mars 2011 var eftirfarandi bókun
um Hellubraut samþykkt: „Auk þess
að vera reisulegt timburhús og góð-
ur fulltrúi hafnfirskra timburhúsa frá
upphafi 20. aldar stendur húsið að
Hellubraut 7 á mjög áberandi stað
uppi á kletti fyrir ofan Strandgötu.
Þarna hefur það trónað yfir aðalgötu
bæjarins og höfninni í rúmlega 100
ár. Tilveruréttur þess er því ótvíræður,
hvort sem er út frá umhverfislegum
eða menningarsögulegum sjónar-
miðum. Það er því eindregið lagt til
að staða þess verði tryggð til framtíð-
ar í nýju deiliskipulagi.“
Á fundi húsafriðunarnefndar
þann 24. janúar 2012 var enn á
ný fjallað um niðurrif hússins
og var vísað í skýrslu um ástand
hússins sem verkfræðiþjónustan
Strendingur ehf. vann. Niðurstaða
húsafriðunarnefndar var á þá leið að
ekkert komi fram í ástandsskýrslum
sem bendi til þess að húsið að Hellu-
braut 7 sé verr farið en almennt má
telja um hús frá þessum tíma. Ítrek-
aði nefndin mat sitt á varðveislugildi
hússins og mæltist eindregið gegn
því að gefin yrði heimild til niðurrifs.
Þvert á móti verði „því og þar með
sögu Hafnarfjarðar sýndur sá sómi
að því verði gert til góða og að það fái
að standa áfram um ókomna tíð.“
Annað hljóð í strokkinn
Í framhaldi af bókun húsa-
friðunarnefndar óskaði skipulags-
og byggingarráð Hafnarfjarðar eftir
nánari úttekt á innviðum og burðar-
virki hússins. Í matskýrslu frá 16.
janúar 2012 sem Sigurbergur Árnason
arkitekt vann kemur fram að húsinu
hafi verið mikið breytt. Upphaflegt
útlit er horfið og allar klæðningar að
utan og innan úr framandi efnum. Þá
hafi húsið verið forskalað eftir 1942
og seinna klætt með plastklæðningu.
Byggt hefur verið við það og glugga-
skipan breytt. Þá bendi mælingar frá
árinu 2012 ótvírætt til þess að mikill
raki sé í burðargrind þess og hana
verði endurnýja í heild sinni.
Á fundi sínum þann 7. september
2015 vísar Minjastofnun í þessa mat-
skýrslu og heimilar í kjölfarið endur-
nýjun hússins með þeim hætti „að
nýtt hús með sama þakformi og –
halla og í sömu meginstærðum verði
byggt á grunni hins eldra“. Stofnun-
in fer fram á að útlit hússins verði
hannað með þeim hætti að ný-
byggingin styrki sögulega bæjar-
mynd Hafnarfjarðar. Tillagan verður
til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar
Strandgötu 8–10 og hjá umhverfis-
og skipulagsþjónustu, Norðurhellu
2, frá 6. júlí til 17. ágúst 2016. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is Hellubraut 7
Húsið var byggt fyrir
tæpum 110 árum en
það verður rifið ef
nýtt deiliskipulag
nær fram að ganga.
MyNd Sigtryggur Ari
Nýbyggingar Svona munu nýju húsin tvö á Hellubraut 5 og 7 líta út.