Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Side 13
Helgarblað 8.–11. júlí 2016 Fréttir Viðskipti 13 stjórnvöldum er Autonomy Capital, sem er samtals með eignir upp á um 5 milljarða Bandaríkjadala í stýr- ingu, en sá sem fer fyrir sjóðnum er Robert Gibbins. Aflandskrónueign sjóðsins nemur um 35 milljörð- um og eru eignirnar nánast að öllu leyti í ríkisskuldabréfum sem eru á gjalddaga á næstu átta mánuðum. Umfram væntingar lífeyrissjóða Þrátt fyrir að stórir eigendur aflandskróna hafi kosið að sitja hjá í gjaldeyrisútboði Seðlabank- ans þá hefur Már Guðmundsson seðlabankastjóri bent á að þeim hafi fækkað mjög – 1.688 tilboðum af 1.715 tilboðum sem bárust var tekið – og þá hafi verið búið svo um hnútana að þær krónueignir sem eftir standa muni ekki valda óstöðugleika þegar farið verður í að losa um höft á innlenda aðila. Gert er ráð fyrir því Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra muni kynna frumvörp sem feli í sér að afgerandi skref verði tekin til að opna nánast alfarið á fjármagns- viðskipti íslenskra heimila og fyrir- tækja þegar Alþingi kemur saman á ný um miðjan næsta mánuð. Þá til- kynnti Seðlabankinn einnig í byrj- un þessa mánaðar að hann hefði ákveðið að veita lífeyrissjóðunum heimild til að fjárfesta erlendis fyr- ir 40 milljarða og gildir hún til loka september næstkomandi. Var fjár- festingarheimildin talsvert meiri en forsvarsmenn lífeyrissjóðanna höfðu reiknað með en með sama áframhaldi stefnir í að sjóðirnir fái heimild til erlendra fjárfestinga fyrir meira en 100 milljarða á árs- grundvelli. n Rauðarárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga kl. 10–18 uppbod.is Louisa Matthíasdóttir Jóhannes S. Kjarval Kristján Davíðsson Sumarperlur Vefuppboð nr. 228 Einstakar perlur eftir íslenska myndlistarmenn Uppboðinu lýkur 13. júlí PLUSMINUS OPTIC Smáralind www.plusminus. is Sumar kaupauki Sólgler með öllum gleraugum Index 1,5* Sjóngler Útsala Afsláttur f umgjörðum 20-80% Mikið bar á Milli stjórnvalda og stærstu aflandskrónueigenda n bandarískir fjárfestingarsjóðir vildu losna út á genginu 165 krónur gegn evru n Ítrekaðar tilraunir til samkomulags báru ekki árangur Framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika Seðlabankans lýsti þeirri skoðun sinni nýlega á lokuðum fundi hjá íslensku fjármálafyrirtæki að það mætti losa út aflandskrónueignir erlendu fjárfestingar- sjóðanna í skiptum fyrir gjaldeyri úr forða bankans á genginu 160 til 170 krónur fyrir hverja evru. Þetta kom fram á fundi sem Sigríður Benediktsdóttir átti með nokkrum starfsmönnum Kviku fjárfestingarbanka í lok apríl, samkvæmt heimildum DV, en tilefni fundarins var útgáfa Fjármálastöðugleika. Tók Sigríður hins vegar sérstaklega fram að þetta væri hennar persónulega skoðun. Á fundinn voru meðal annars mættir starfsmenn Kviku sem hafa átt í nánum samskiptum við stærstu eigendur aflandskróna og því ljóst að þessi skoðun eins æðsta stjórnanda Seðlabankans myndi berast þeim til eyrna. Samkvæmt heimildum DV vöktu ummælin því litla hrifningu hjá þeim sem unnu að undirbúningi áætlunar til að leysa út 320 milljarða aflandskrónueignir þar sem þau kynnu að hafa skaðleg áhrif á væntinga- stjórnun stjórnvalda í aðdraganda útboðs Seðlabankans. Aðeins nokkrum vikum síðar var opinberað að í útboðinu myndi aflandskrónueigendum bjóðast að skipta á eignum fyrir gjaldeyri á genginu 190 til 210 krónur fyrir hverja evru. Sigríður hefur ákveðið að láta af störfum hjá bankanum 1. október næstkomandi en greint var frá þessu í tilkynningu frá Seðlabankanum fyrr í vikunni. Hefur henni boðist starf hjá Yale-háskóla í Bandaríkjunum þar sem hún mun sinna rannsóknum og kennslu. Sigríður tók við starfi framkvæmdastjóra fjármálastöðug leika í ársbyrjun 2012. vildi hleypa sjóðunum út á mun hagstæðara gengi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.