Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Page 28
Helgarblað 8.–11. júlí 201624 Skrýtið Sakamál VoVeiflegur atburður í WaterVale n Hjónaband Florence og Marks var í rúst n Hún vildi skilnað, hann ekki Þ að var á svölu, misturþungu haustkvöldi, 24. október 2003, sem hjónin Florence og Mark Unger stóðu á þaki húsbáts á Lower Herr- ing-vatni í Watervale í Michigan í Bandaríkjunum. Ekki var um eig- inlegan húsbát að ræða þar sem honum hafði verið komið fyrir á þurru landi rétt við vatnsborðið og bústaður sem þau höfðu leigt var skammt undan. Hjónaband þeirra stóð, að sögn vina, á brauðfótum; Florence var búin að sækja um skilnað og hafði verið í verulegu andlegu ójafnvægi vikuna á undan vegna deilna þeirra hjóna. Engu að síður hafði hún fall- ist á að fara í helgarferð með Mark og tveimur sonum þeirra til Wa- tervale. Þar var að finna dvalarstað sem fyrr meir, þegar allt lék í lyndi, hafði verið þeim vé í amstri dagsins. Þetta þokudrungaða kvöld gerð- ist voveiflegur atburður sem ekki var til lykta leiddur fyrr en í júlí árið 2006. En Florence var ekki til frá- sagnar um nokkuð sem atburðinn varðaði. Lík við vatnsbakkann Síðar sagði Mark þeim sem rann- sökuðu málið að hann hefði skilið konu sína eftir á þaki húsbátsins og farið í bústaðinn til að líta eftir son- um þeirra. Þegar hann sneri aftur var Flor- ence hvergi að sjá en það vakti ekki með honum ugg; ályktaði hann að Florence hefði farið í heimsókn til Linn og Maggie Duncan, eigenda dvalarstaðarins, en þau bjuggu í grenndinni. Mark tók því á sig náðir en þegar hann vaknaði næsta morgun var Florence hvergi sjáanleg og þá fyrst varð hann áhyggjufullur. Hann hringdi í Duncan-hjónin og þau fundu blóðugt lík Florence, íklætt dökkum hlaupagalla, þar sem það maraði í þrjátíu sentimetra djúpu vatni við bakka Lower Herring- vatns. Grunsemdir vakna Frá upphafi taldi lögreglan ýmislegt grunsamlegt við málið allt. Flor- ence hafði fallið 12 metra niður á steypt plan, sem var þakið blóð- blettum, en á einhvern undarlegan hátt tekist að skríða meira en metra, klifra yfir steyptan kant og enda í vatninu. Sú kenning fékk vængi að Mark hefði misst stjórn á sér og ýtt Flor- ence yfir rekkverkið á þaki húsbáts- ins og síðan dregið hana meðvit- undarlausa yfir í vatnið. Þar hefði hann lokið verkinu og sviðsett morðið sem slys. Nokkrir sem til þekktu, þar á meðal faðir Florence, upplýstu að hún hefði verið myrkfælin í meira lagi og því ólíklegt að hún hefði verið sátt við að vera ein á þakinu í kolniðamyrkri. Undarleg hegðun Að sögn Linn Duncan hegðaði Mark sér undarlega eftir að lík Flor- ence fannst. Eftir að Linn færði hon- um tíðindin rauk Mark beint að lík- inu þó að hann hefði engan veginn, þar sem hann stóð, getað séð ná- kvæmlega hvar það var. Einnig var eftir því tekið að þegar Mark hringdi í ættingja og vini til að færa þeim þessa harmafregn þá snökti hann í um það bil mínútu, en varð síðan rósemdin uppmáluð. Mark Unger var ákærður fyrir morð í maí 2004, en það liðu nærri tvö ár áður en réttarhöld hófust. Við réttarhöldin fullyrtu verjendur hans að hann hefði aldrei getað gert Flor- ence mein, hann hefði elskað hana út af lífinu. Þeir bentu á að hand- riðið á þaki húsbátsins hefði verið fúið, 25 sentimetrum lægra en regl- ur kváðu á um og þakið sjálft nánast mosavaxið. Florence hefði einfald- lega runnið til og steypst yfir hand- riðið. Drukknun eða ekki? Eins og við var að búast kölluðu verj- endur og sækjendur til sérfræðinga í áverkum; læknir sem krufði líkið af Florence sagði banamein henn- ar vera höfuðáverka en viðurkenndi þó að drukknun væri möguleg. Annar læknir, sem fór ítarlega yfir krufningarskýrsluna, fullyrti, sækj- endum til mikillar ánægju, að Flor- ence hefði drukknað. Hvað sem þessum vangaveltum líður þá kom nýr vinkill í ljós; Flor- ence hafði átt í ástarsambandi við Glenn nokkurn Stark, vin Marks, og höfðu þau, örfáum dögum fyrir dauða Florrence, notið ásta. Verjandi Marks sagði að skjól- stæðingur sinn hefði ekki komist að framhjáhaldi eiginkonu sinnar fyrr en eftir dauða hennar, svo ekki gæti það talist ástæða til morðs. Stórskuldugur spilafíkill Florence hafði ekki flíkað ástarsam- bandi hennar og Glenns en hafði ekki farið í launkofa með þau von- brigði sem hún hafði orðið fyrir hvað hjónaband hennar og Marks áhrærði. Mark var fyrrverandi veðlána- miðlari og hafði einnig átt góðu gengi að fagna sem íþróttaþul- ur í útvarpi. Heldur hafði sigið á ógæfuhliðina hjá honum því hann átti að baki meðferð vegna áfengis- og eiturlyfjafíknar og var skuldum vafinn vegna spilafíknar. Í júní 2006, í níundu viku rétt- arhaldanna yfir Mark Unger, komst kviðdómur að þeirri niðurstöðu að Mark væri sekur um morð að yfir- lögðu ráði. Það hafði tekið kviðdóm 26 klukkustundir á fjögurra daga tímabili að komast að þeirri niður- stöðu. Dómari í málinu fyrirskipaði að Mark skyldi vera í varðhaldi þar til dómur yrði kveðinn upp, sem gert var 19. júlí. Mark Unger fékk lífs- tíðardóm án möguleika á reynslu- lausn. n Florence Unger Sérfræðingar voru ekki á einu máli um banamein hennar.„… rauk Mark beint að líkinu þó að hann hefði engan veginn, þar sem hann stóð, getað séð nákvæmlega hvar það var. Mark Unger Þótti grun- samlegur frá upphafi. S HELGASON - Steinsmiðja síðan 1953 Opnunartími Mán - fim 9:00 -18:00 Föstudaga 9:00 - 17:00 Laugardaga 10:00 -14:00 Sími: 557 6677 Netfang: shelgason@shelgason.is www.shelgason.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.