Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Page 31
Helgarblað 8.–11. júlí 2016 Menning 27
s: 426 5000 - booking@bbkefairport.is - bbkeflavik.com
Ertu á leið í flug?
Við geymum bílinn frítt, keyrum þig á
flugvöllinn og sækjum þig við heimkomu
Láttu fara
vel um þig
nóttina fyrir
eða eftir flug
og gistu hjá
okkur
Ný rúm frá RB
rúm
Útlendingarnir höfðu ekki heyrt
þetta áður og fannst þetta mjög exó
tískt,“ segir hann og þá segist hann
hafa tekið málið í sátt: „Röddin er
svolítið eins og hljóðfæri, og íslensk
an verður svolítið eins gítareffekt
sem aðrir geta ekki keypt.“
Náttúra og varhugaverð
þjóðernishyggja
Addi segir að Sólstafir hljóti
stundum sérstaka athygli fyrir ís
lenskuna og bakgrunninn, það þyki
töff og framandi, en hann segist þó
vera smeykur við að leggja einhverja
sérstaka áherslu á þjóðernið.
„Ísland er oft í fréttunum fyrir
alls konar fáránlega
hluti: Björk, banka
hrun, Eyjafjallajökull,
handboltalandsliðið,
Jón Pál og Lindu Pjé.
En Norðmönnum
finnst líka voða
merkilegt að vera
frá Noregi, og margir
Frakkar eru stoltir af
því að vera Frakkar,
en mér finnst þetta
allt jafn glatað. Þetta
eru hættulegir tímar
til að vera að hrósa sér
fyrir hvaðan maður
er, með flóttamanna
strauminn og allt þetta. Nú sér mað
ur fólk flagga íslenska fánanum og
ég hugsa bara: „Æi …“ Þetta eru
skrýtnir tímar.“
En þið eruð samt duglegir við að
nota einkennandi íslenska náttúru í
myndböndum og á plötuumslögum,
er það ekkI?
„Jú. Þetta getur alveg orðið klisja
og stundum spyr ég mig hvort við
séum búnir að ofnota þetta. En Fjara
var til dæmis tekin að mestu leyti
upp af bandarískum vini okkar sem
benti okkur bara á hvað það voru
flottir hlutir í bakgarðinum okkar.
Fjara var skotin á Suðurlandinu,
Lágnætti á Ströndum, og Miðaftan
líka á Suðurlandinu. Þetta er sjón
rænt flott og við fáum ótrúlega mikil
viðbrögð frá fólki sem hefur hlustað
á tónlistina okkar á Íslandi, til dæm
is fólk sem hefur keyrt um og hlust
að á disk með okkur, þá byrjar lag og
svo tíu mínútum síðar er komið nýtt
veður og nýtt umhverfi og nýtt lag.
Oft er fólk bara í einhverju andlegu
ferðalagi í bílnum. Það er í alvöru
til fólk sem er að koma til Íslands af
því að það sá myndbandið við Fjöru.
Vinir okkar djóka stundum: hvenær
kemur nýja Flugleiðaauglýsingin?“
segir Addi og glottir. „Við ættum að
vera á prósentu frá Icelandair.
En ég væri líka alveg til í að fara til
Grænlands og Afganistan með fjór
ar þyrlur að skjóta eitthvað flott, ar
abíska hesta eða hvað sem er, en við
erum ekki með „budget“ í það.“
Þungarokk á
Rás 2
Fjórða platan,
Svartir sand
ar, kom Sól
stöfum, árið
2012, á stað
sem þeir
bjuggust lík
legast aldrei við, á toppinn á íslensk
um vinsældalistum. Það var fyrst og
fremst lagið Fjara sem sló í gegn.
„Þetta var bara slys. Það var svo
soft „stöff“ á plötunni að við hugsuð
um að þungarokkararnir ættu eftir
að jarða okkur – yfirgefa okkur. Sem
betur fer höfðum við rangt fyrir okk
ur hvað það varðar. En heimskuleg
ustu hugmyndirnar eru yfirleitt þær
sem reynast bestar: að gera lag eins
og Fjöru, nota banjó í þungarokkslag
eða eitthvað. Okkur finnst ekki gam
an að gera bara örugga hluti og erum
ekki mikið fyrir að endurtaka okkur.
Ef við þurfum að spyrja: „Erum við í
alvöru að fara að gera þetta?“ þá er
svarið alltaf, „Já, auðvitað!““
Á síðustu plötu fengu Sólstafir
hjálp frá útvarpsþulnum Gerði G.
Bjarklind til að lesa upp veður
fregnir og á nýjustu plötunni, Óttu
frá 2014, notast þeir við banjóplokk
og strengjaspil frá hljómsveitinni
Amiinu. Tilraunagleðin hefur skilað
sér og Ótta hefur hlotið góðar við
tökur bæði heima og erlendis.
Nafnið og lagatitlar plötunnar
eru þematengdir, byggðir á eykta
mörkum, fornum tímaviðmiðum
sem notast var við áður en klukkur
urðu almenn eign.
„Eina sem við slepptum var „há
degi“ – það gekk ekki – við notuðum
miðdegi í staðinn. Það er hægt að
sjá margt í þessum titlum, þetta eru
átta hlutar, sólarhringurinn, árstíð
irnar, hringrás lífsins. Textarnir eru
ekki beint tengdir titlunum, en það
eru margar skírskotanir í ákveðinn
tíma sólarhringsins. Við áttum svo í
smá rökræðum um nafn á plötunni.
Fyrst átti hún að heita Eykt en það
gekk ekki vegna byggingarfyrirtækis
ins. En þetta hefur vakið miklu meiri
athygli en mig grunaði, sérstaklega
erlendis.“
Rokkstjörnulífið þreytist fljótt
Undanfarin ár hafa Sólstafir verið
nánast viðstöðulaust á tónleikaferð
um um heiminn. Addi segir að
„Heimskulegustu
hugmyndirnar eru
yfirleitt þær sem reynast
bestar.
Strengir og banjó Á nýjustu plötu Sólstafa halda félagarnir áfram að þróa tilraunakenndan þungarokkshljóm sinn.
Allt á einum stað:
Prentun, merkingar og frágangur.
Inni- og útimerkingar.
Segl- og límmiðapr ntun.
Ljósmynda-, striga- og segulpre tun.
Textaskraut, sandblástur,
GSM hulstur og margt fleira...