Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2016, Síða 40
Helgarblað 8.–11. júlí 2016 53. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 785 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Sé ég mjólkurtár á hvarmi? Lofar hækkunum n Ari Edwald, forstjóri MS, ber sig illa eftir að Samkeppnis­ eftirlitið lagði 480 milljóna króna stjórnvaldssekt á Mjólk­ ursamsöluna fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína í sölu á hrámjólk til keppinauta, og klekkja þannig á öðrum að­ ilum. Á honum má skilja að fyrirtækið standi höllum fæti: „Afkoman er í raun mjög lítil af þessari starfsemi.“ Hann lof­ ar viðskiptavinum því að þeir muni borga sektina í formi hærra vöruverðs. Ari fær bágt fyrir hjá almannatenglinum Andrési Jónssyni, sem skýrir málið. „Glatað hvað margir trúa svona MS söng um að samkeppn­ issektir séu borgaðar af neytendum. Nei, þær skapa færi fyrir aðra að keppa við þá seku.“ ASKJA Regnfatasett kr. 14.990 NAOMI 3ja laga jakki kr. 24.900 RÚN Quick Dry bolur kr. 4.900 MIST Regnjakki kr. 18.990 STEINA Göngubuxur kr. 14.300 BRÍET Flíspeysa kr. 9.320 KÁRI Flíspeysa kr. 14.900 LEIFUR Pólóbolur kr. 4.500 FREYR Polarstretch kr. 9.350 STÍGUR Göngubuxur kr. 14.300 RÚNAR Quick Dry bolur kr. 4.900 HRAFN Flíspeysa kr. 7.990 LITIR LITIR LITIR LITIR LITIR LITIR LITIR LITIR LITIR LITIR LITIR LITIR VERSLANIR ICEWEAR „Ég kveð í bili“ n Blaðamanninum Birni Þorláks- syni var á dögunum hafnað í próf­ kjöri Pírata. Hann hafnaði í sjö­ unda sæti og kærði sig ekki um að taka það. Hann sagði í kjölfarið að stjórn Pírata hefði haldið hæf­ asta og öflugasta fólkinu, sjálf­ um sér og einhverjum öðrum, frá efstu sætum. „Ég bauð mig fram korter í þrjú en í þessu prófkjöri kom á daginn að fremur fáa inni í litla lokaða prófkjörinu langaði að breyta heiminum með mér,“ skrif­ aði hann á Facebook en nokkuð fjaðrafok varð vegna orða hans. Í kjölfarið hefur Björn ákveðið að hætta á Facebook. „Ef það hefur nokkru sinni verið dauða­ færi til að taka góða face­ book­pásu er það nú.“ H in heimsfrægu athafnahjón, David og Victoria Beckham, skráðu nöfn sín á hinn sí­ stækkandi lista Íslandsvina á fimmtudag þegar einkaflugvél þeirra lenti á Reykjavíkurflugvelli. Ætlunin er að dvelja hérlendis í sumarfríi í nokkra daga og eru vinahjón þeirra með í för. Beckham­hjónin verða gestir auðjöfursins Björgólfs Thors Björgólfssonar og herma heimildir DV að hópurinn ætli meðal annars að bregða sér í laxveiði. Langá á Mýr­ um, ein allra besta laxveiðiá lands­ ins, varð fyrir valinu og munu Beck­ ham­hjónin hefjast handa við að renna fyrir fisk upp úr kl. 16 í dag, föstudag. Fáum sögum fer af áhuga Beck­ ham­hjónanna á veiði og virðist hann vera nýr af nálinni. Fyrir ári greindu erlendir fjölmiðlar þó frá því að uppi hafi orðið fótur og fit í smá­ bænum Weymouth í Englandi þegar David fór í sjóstangaveiði með elsta syni sínum, Brooklyn. Segja má að knattspyrnukappinn sé heldur betur að færa sig upp um deild með því að takast á við villta íslenska laxa í stað breskra golþorska. Þá er ekki loku fyrir það skotið að hjónin heim­ sæki eitt af útibúum Hamborgarabúllunnar hérlendis en eins og frægt er þá eru David og Victoria miklir aðdáendur skyndi­ bitastaðarins í London. Þar ytra heitir veitingastaðurinn Tommi's Burger Joint og bókuðu hjónin meðal annars staðinn undir afmæli sonar síns, Romeo, í fyrra. n Beckham-hjónin renna fyrir lax Heimsækja Ísland í fyrsta sinn í boði Björgólfs Thors

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.