Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Qupperneq 2
Vikublað 15.–17. nóvember 20162 Fréttir
V
ið vorum að koma af frá-
bærum fundi með fulltrúum
innan ríkisráðuneytisins, sem
gefur okkur tilefni til bjart-
sýni. Okkur var afar vel tekið og það
var lögð áhersla á að starfsmönn-
um ráðuneytisins væri mjög um-
hugað um farsæla lausn málsins. Við lögðum áherslu á að fyrsta krafa okk-
ar væri sú að aðstæður sonar míns
yrðu skoðaðar gaumgæfilega og
metið hvort að hann sé ekki hæfur
til að fá forræði yfir syni sínum. Til
vara þá óskum við þess að Eyjólfur
verði fóstraður hérlendis,“ segir Guð-
ný Helga Þórhallsdóttir, föðuramma
hins fimm ára gamla Eyjólfs Kristins
Elvusonar.
Aðstæður Eyjólfs hafa vakið mikla
athygli fjölmiðla en nýlega kvað
Hæstiréttur Íslands upp þann úr-
skurð að drengurinn skyldi sendur út
til Noregs í ljósi þess að norska barna-
verndin hefði forsjárrétt yfir honum.
Þar ytra er ráðgert að Eyjólfur verði
fóstraður til 18 ára aldurs. Ef svo fer
getur móðir drengsins aðeins heim-
sótt hann tvisvar á ári í tvær klukku-
stundir í senn, undir ströngu eftirliti.
Samræður milli
barnaverndaryfirvalda
Reiðialda skók íslenskt samfélag
þegar úrskurðurinn lá fyrir enda
um að ræða íslenskan ríkisborgara.
Fljótlega eftir úrskurðinn veitti Bragi
Guðbrandsson, forstjóri Barnastofu,
viðtal á Bylgjunni þar sem hann
sagði að viðræður væru í gangi milli
stofnunarinnar og norskra barna-
verndaryfirvalda. „Ég held að allir
hafi skilning á því að þessi drengur
fái tækifæri til þess að alast upp á
Íslandi og í íslensku samfélagi en
ég hef enga ástæðu til að ætla ann-
að en að Norðmenn séu því sam-
mála, en það á bara eftir að koma í
ljós hvernig okkur gengur að finna
lausn,“ sagði Bragi. Hann áréttaði þó
að málið væri á viðkvæmu stigi.
Ófær um að annast son sinn
Ljóst er að forsjá drengsins til fram-
tíðar liggur ekki í höndum móður
hans og fjölskyldu hennar. Í dómi
Hæstaréttar kemur fram að móðir
Eyjólfs, Elva Christina Hafnadóttir,
hafi verið í mikilli neyslu og glímt
við margþættan annan vanda. Þá
hafi hún lýst sig ófæra um að ann-
ast son sinn. Hún hafi síðan lýst mis-
notkun móður sinnar á áfengi um
langt skeið sem og ofbeldi föður síns
gagnvart fjölskyldu sinni. Þá á hún
að hafa ítrekað sagt að að hún óskaði
þess að sonur sinn fengi ekki sams
konar uppeldi og hún sjálf.
Faðirinn væntanlegur til landsins
Baráttan sem nú fari í hönd snúi að
því hvort faðir drengsins, Sigurjón
Elías Atlason, fái forræði yfir honum.
„Sigurjón er væntanlegur til landsins
í kvöld [aðfaranótt þriðjudags, innsk.
blm.] og framundan eru annasamir
dagar. Við ráðgerum að fara á fund
utanríkismála- og velferðarráðu-
neytisins á allra næstu dögum sem
og annan fund hjá Barnastofu. Ég
trúi ekki öðru en að aðstæður hjá
syni mínum verði kannaðar í þaula
og hann verði fyrsti valkostur varð-
andi forsjá drengsins. Fyrir því
ætlum við að berjast,“ segir Guðný
Helga.
Stuðningsmenn safna
Málstaður sonar hennar hefur fengið
meðbyr undanfarið og meðal annars
hófu stuðningsmenn að safna fé
til stuðnings feðgunum ungu. „Við
erum mjög þakklát fyrir hlýhuginn.
Baráttan verður kostnaðarsöm. Þetta
er önnur ferð Sigurjóns til landsins á
skömmum tíma og hér þarf hann að
vera næstu vikurnar. Hann er að taka
sér frí frá námi til þess að hella sér út
í þetta og þarf að sjá fyrir fjölskyldu,
þar á meðal nýfæddum syni, í Dan-
mörku,“ segir Guðný Helga. n
K O L R E S T A U R A N T · S K Ó L A V Ö R Ð U S T Í G U R 4 0 · S Í M I 5 1 7 7 4 7 4 · K O L R E S T A U R A N T . I S
JÓLASTEMNINGIN
HEFST 23. NÓV
…og matseðillinn fer í léttan jólabúning
VILLIBRÁÐARSÚPA,
TVÍREYKT HANGIKJÖT,
TÚNFISKUR,
DJÚPSTEIKT ANDAR-CONFIT,
GRAFIÐ HREINDÝR,
HANGIREYKTUR LAX,
KRÓNHJÖRTUR OG PURUSTEIK eða KOLAÐUR LAX,
MÖNDLUKAKA
Verð 8.990 kr. á mann
Borðapantanir í síma 517 7474 eða kolrestaurant.is
KVÖLD
JÓLAMATSEÐILL
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Vilja að faðir
Eyjólfs VErði
fyrsti kostur
n Sigurjón freistar þess að fá forræði yfir syni sínum
Feðgar Aðeins eru þrjár vikur til stefnu þar til Eyjólfur Kristinn verður sendur úr landi
til Noregs. Faðir hans, Sigurjón Elías, býr í Danmörku en er kominn til landsins til þess að
funda með ráðuneytum og freista þess að fá forræði yfir drengum.