Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2016, Side 16
Vikublað 15.–17. nóvember 2016 Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7000 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 16 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Með viðræður í sínum höndum Það vekur athygli hverja Bjarni Benediktsson valdi að taka með sér í stjórnarmyndunarviðræður við Viðreisn og Bjarta framtíð. Með Bjarna eru aðstoðarmenn hans, Svanhildur Hólm og Teitur Björn Einarsson, og splunkunýr þingmaður Áslaug Arna Sigur- björnsdóttir. Enginn reynslu­ mikill þingmaður Sjálfstæðis­ flokks er þarna. Talið er að Bjarni hagi hlutum á þennan hátt til að hafa viðræðurnar í sínum höndum en reynsluboltar í þingflokknum væru líklegir til að setja fram alls kyns kröfur og skilyrði á fundum, en það gæti gert viðræðurnar æði erfiðar. Össur Skarp­ héðinsson skýrir þetta skemmti­ lega á Facebook síðu sinni og seg­ ir: „Óttarr Proppé og Benedikt Jó­ hannesson myndu varla staldra lengi við ef þeir þyrftu að þusa dægrum saman við Guðlaug Þór Þórðarson, snarpasta andstæðing ESB á þingi, um hvenær og hvort eigi að hafa þjóðaratkvæði um framhald aðildarviðræðna.“ Farðu á kaffihús og fáðu þér heitan drykk Bryndís Schram kom útigangsmanni til aðstoðar. – DV Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ Súrdeigsbrauðin okkar eru alvöru u Heilkorna u 100% spelt u Sykurlaus u Gerlaus u Olíulaus Þ að var ósköp neyðarlegt að verða vitni að því þegar Píratar ofmetnuðust vegna velgengni sinnar í skoðanakönnunum og settu af stað stjórnarmyndunarvið­ ræður fyrir kosningar. Afleiðingarn­ ar urðu þær að kjósendur fylltust margir skelfingu við tilhugsunina um Pírata í helstu ráðherraembættum, vildu gera þá umboðslausa og kusu samkvæmt því. Af þessu ættu stjórn­ málamenn að læra að það er heppi­ legra að búið sé að telja upp úr kjör­ kössunum áður en farið er að mynda ríkisstjórn. Stjórnmálamenn tala aldrei meira en í aðdraganda kosninga og gá því ekki alltaf að sér. Þannig fóru þeir sumir að útiloka samstarf við flokka, áður en kosið var og einnig eftir að úrslit voru ljós. Þetta er vítavert ábyrgðarleysi. Þjóðin kýs og stjórn­ málamenn verða að taka mið af vali hennar. Kosningaúrslitin sýndu að þjóðin kærir sig ekki um ríkisstjórn undir forystu Pírata og hún virð­ ist heldur ekki kæra sig um hreina vinstri stjórn. Jafn erfitt og sumum finnst að sætta sig við það þá fengu hin borgara legu öfl brautargengi í kosningunum. Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn, Björt framtíð og Fram­ sóknarflokkur fengu 40 þingmenn af 63 þingmönnum, sem er dágóður meirihluti. Ýmsum kann að mislíka þessi úrslit stórlega, en það breytir því ekki að þau eru staðreyndin. Það er sjálfsögð krafa að for­ ystumenn flokka setjist saman eftir kosningar og reyni að mynda starf­ hæfa stjórn. Vinstri menn vilja ekki ræða við Sjálfstæðismenn og eru æfir vegna þess að fulltrúar annarra flokka setjast niður með Bjarna Benediktssyni og ræða hvort flötur sé á samstarfi. Þessi háværi hópur vinstri manna (og Píratar flokkast þar á meðal) hefur ausið óbótaskömm­ um yfir þann mæta stjórnmálamann Óttar Proppé og talað eins og hann hafi svikið heilagan málstað. Þetta fólk veit nákvæmlega ekkert um mál­ efnavinnu á fundunum, en það kem­ ur ekki í veg fyrir að það æpi og góli sem mest það getur um svik. Björt framtíð er miðjuflokkur og það er í eðli slíkra flokka að láta málefni ráða og geta bæði starfað til vinstri og hægri. Það var sjálfsagt hjá Bjartri framtíð að mæta við borðið og ræða málefni og skoða hvort málamiðlun verði náð í samvinnu við Sjálfstæðisflokkinn og Viðreisn. Stjórnmálaflokkar hljóta að vilja hafa áhrif, af hverju ætti þeir annars að marka sér stefnu? En það er líka þannig að í ríkisstjórnarsamstarfi flokka þarf að ná málamiðlun. Í fimm flokka ríkisstjórn sem áðurnefndir hávaðaseggir virðast þrá svo mjög, myndi sannarlega reyna á málamið­ lun og þá væri það ekki endilega sá sem gaggaði hæst sem fengi málum sínum framgengt. Menn ættu að anda rólega og leyfa forystumönnum Sjálfstæðisflokks, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar að ræða málin. Engan veginn er víst að samkomulag náist. En ef menn hafa lýðræðisást í heiðri, sem við vonum að flestir geri, þá er ekki vænlegt að saka stjórnmálamenn um illar hvat­ ir þegar þeir eru að sinna þeirri sjálfsögðu skyldu sinni að setjast niður eftir kosningar og kanna mál­ efnagrundvöll. n Skylda stjórnmálamanna H vernig á að efla Samfylk­ inguna á ný til þess að hún geti gegnt sínu hlutverki sem flokkur jafnaðarmanna ? Spurt hefur verið: Er klassískur jafn­ aðarmannaflokkur ef til vill orðinn tímaskekkja? Ég svara því neitandi. Flokkur jafnaðarmanna á enn er­ indi við Íslendinga, þrátt fyrir mikl­ ar breytingar á þjóðfélaginu og bætt kjör verkalýðsins frá árdög­ um verkalýðshreyfingarinnar. Aðal­ baráttan er ekki í dag eins og í upp­ hafi: Barátta fyrir brauði og fyrir því að komast af. Nú er það barátta fyrir bættum kjörum allra launþega og einkum þeirra lægst launuðu, bar­ átta fyrir bættum kjörum aldraðra og öryrkja og fyrir hagsmunum allra þeirra, sem standa höllum fæti í lífs­ baráttunni. Og því miður býr enn í dag alltof stór hópur fólks við sára fátækt, þar á meðal mörg börn og hópur lífeyrisþega. Samfylkingin á að vera launþegaflokkur Ég mun nú lýsa í stórum dráttum því, sem ég tel að Samfylkingin eigi að leggja höfuðáherslu á, en ég tel að þau mál muni stuðla að eflingu flokksins . Okkar höfuð­ markmið á að vera að berjast fyrir launþega landsins. Allir launþegar, verkamenn, sjómenn, iðnaðar­ menn, skrifstofumenn, verslunar­ menn og allir aðrir, sem selja vinnu sína eru verkalýður Íslands, sem Samfylk­ ingin á að berjast fyrir sem jafnaðarmanna­ flokkur. Við þurfum að efla tengsl okkar við verkalýðshreyf­ inguna. Samfylkingin á að vera launþega­ flokkur, verkalýðsflokk­ ur. Þótt þetta markmið eigi að vera í forgangi breytir það því ekki, að Samfylkingin á einnig að berjast fyrir smáatvinnurekendur (smáfyrir tæki) og smábændur, sem oft eiga í höggi við stóratvinnu­ rekendur og verða fyrir barðinu á samkeppnishömlum. Sam­ fylkingin á að gæta þess, að heil­ brigð samkeppni ríki og að ekki sé reynt með samkeppnishömlum að hindra eðlilega starfsemi smáat­ vinnurekenda. Þess vegna þarf ætíð að gæta þess, að samkeppnislög­ gjöf og neytendalöggjöf sé nægilega fullkomin. Samfylkingin á að berj­ ast gegn einokun, gegn hvers kon­ ar samkeppnishömlum. Samfylk­ ingin á að vera neytendaflokkur. Samfylkingin á að vera brjóstvörn einyrkja og annarra smáatvinnu­ rekenda. Samfylkingin á að berj­ ast fyrir bættum kjörum aldraðra og öryrkja. Samfylkingin er sósíal­ demókratískur flokkur; aðhyllist blandað hagkerfi eins og bræðra­ flokkarnir í Evrópu. Á að berjast fyrir bættum kjörum aldraðra og öryrkja Af því sem nú hefur verið sagt er ljóst, að ég tel að Samfylkingin eigi fyrst og fremst að vera laun­ þegaflokkur og flokkur líf­ eyrisfólks. Ekki er víst að allir jafnaðarmenn séu sammála um það. En ég er eindregið þessar­ ar skoðunar. Ég tel að Samfylkingin eigi, sem jafnaðarmannaflokkur, að safna sem flestum launþegum undir merki sitt. Þegar það hefur tekist að verulegu leyti, getur Samfylkingin sótt inn að miðjunni en fyrr ekki. Samfylkingin á að hlusta á laun­ þega og taka upp sem flest baráttu­ mál þeirra. Samfylkingin á einnig að berjast fyrir hagsmunamálum neyt­ enda. Og mjög mikilvægt verkefni Samfylkingarinnar er að berjast fyrr bættum kjörum aldraðra og öryrkja. Hluti lífeyrisþega á við mjög bág kjör að búa, hefur varla í sig og á þótt frá­ farandi ríkisstjórn hafi þóst vera að bæta kjör þeirra. Sem fyrr segir býr hluti lífeyrisþega við sára fátækt og það er verkefni Samfylkingarinnar að berjast gegn fátækt á Íslandi hvar sem hana er að finna. Það á að vera eitt helsta verkefni Samfylkingar­ innar að útrýma fátækt. n Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk! Björgvin Guðmundsson skrifar Kjallari „Það er verkefni Samfylkingarinnar að berjast gegn fátækt á Íslandi hvar sem hana er að finna. Eins og munurinn á 15 og 16 tommu pítsu Sævar Helgi Bragason ræddi „ofurtungl“. – RÚV Ég vil aldrei fá þessa tilfinningu aftur Dóttir Maríu Sigurborgar var hætt komin þegar hilla og sjónvarp féll yfir hana. – DV „Það var sjálf- sagt hjá Bjartri framtíð að mæta við borðið og ræða málefni og skoða hvort mála- miðlun verði náð. Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.