Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Blaðsíða 11
Helgarblað 2.–5. desember 2016 Fréttir 11
jólagjöfin í ár!
Þráðlausu Touch heyrnartólin fást www.mytouch.rocks
Hægt að tengja við síma, ipad og öll bluetooth tæki.
Einnig er hægt að svara í símann með þeim.
fæst á www.mytouch.rocks
Rúmfatalagerinn
hagnast um rúman
hálfan milljarð
n Töluverð
aukning milli ára
n Móðurfélagið
skuldar tengdum
félögum 7 milljarða
n Engin óvissa um
rekstrarhæfi
R
úmfatalagerinn hagnaðist
um 532 milljónir króna
á síðasta rekstrarári og
jókst hagnaðurinn um
233 milljónir króna milli
ára. Samkvæmt ársreikningi Rúm
fatalagersins ehf. fyrir rekstrarárið
frá 1. mars 2015 til loka febrúar 2016
námu heildareignir 2,2 milljörðum
króna í lok rekstrarársins, eigið fé
var jákvætt um rúmar 600 milljónir
króna en skuldir námu 1,6 milljörð
um króna, þar af ríflega 460 milljónir
við tengd félög.
Rétt úr kútnum
Ljóst er á þessu að tekist hefur
að rétta verulega af rekstur Rúm
fatalagersins sem árið 2013 tapaði
114 milljónum, auk þess sem eigið
fé hans var neikvætt um rúmar 278
milljónir. Skuldastaða félagsins var
þá reyndar um 1,7 milljarðar. Annað
sem breyst hefur verulega er upp
hæð ábyrgða sem Rúmfatalagerinn
gekkst undir vegna tengdra félaga.
Árið 2013 námu þær 15,3 milljörðum
króna og gerði endurskoðunar
fyrirtækið KPMG athugasemd við þá
staðreynd í ársreikningnum – sagði
að veruleg óvissa ríkti um áfram
haldandi rekstrarhæfi félagsins ef
ábyrgðirnar féllu á félagið. Stjórn
endur Rúmfatalagersins voru þó
vissir um að ábyrgðirnar myndu ekki
lenda á félaginu.
Þessi ábyrgð hefur lækkað veru
lega síðan þá. Í ársreikningi 2016
kemur fram að félagið hafi ábyrgst
greiðslur vegna tengdra félaga sem
nemi um 623 milljónum króna sem
stjórnendur telja enn ólíklegt að
lendi á félaginu.
Skuldugt móðurfélag
Móðurfélag Rúmfatalagersins og
fleiri fyrirtækja, til dæmis Ilvu, er
Lagerinn Iceland ehf. Móðurfélagið
hagnaðist um 2,6 milljarða króna á
síðasta rekstrarári, þar sem mestu
munaði um áhrif dótturfélaga upp á
rúman milljarð. Heildareignir námu
5,6 milljörðum króna. Eigið fé þess
var þó neikvætt um tæpa 1,4 milljarða
króna og skuldir þess námu tæpum
7 milljörðum. Þrátt fyrir stöðu eigin
fjár og skuldir segir í ársreikningum
að skuldir Lagersins Iceland séu við
tengd félög. „Mun móðurfélag þess
halda áfram að styðja við rekstur fé
lagsins og ríkir þar af leiðandi engin
óvissa um áframhaldandi rekstrar
hæfi félagsins.“
Skakkaföll Jákups
Aðaleigandinn er sem fyrr fær
eyski athafnamaðurinn, Jákup á Dul
Jacob sen sem stofnaði meðal annars
Rúmfatalagerinn á níunda áratug
síðustu aldar. Hann hefur verið um
svifamikill í viðskiptalífinu undan
farin ár en árið 2013 var greint frá því
að félag hans, LInvestments ehf.,
hefði farið í 31 milljarðs króna gjald
þrot þar sem aðeins fengust þrjár
milljónir króna greiddar upp í kröfur
í þrotabúið. LInvestments hét áður
Lagerinn ehf. og kom fyrir í skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis sem
einn af stærstu skuldurum viðskipta
bankanna. Skuldaði félagið Lands
bankanum rúma 28,9 milljarða
króna og Kaupþingi 1,6 milljarða.
Þrátt fyrir skakkaföllin í hruninu
virðist Jákup enn sterkefnaður og af
afkomu Rúmfatalagersins að dæma
er allt á réttri leið. n
Réttir úr
kútnum Jákup
á Dul Jacobsen,
stofnandi og
aðaleigandi Rúm-
fatalagersins,
gekk í gegnum
skakkaföll í
hruninu en Rúm-
fatalagerinn er að
rétta úr kútnum.
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Syndir, Sigrar og Sviðin jörð
n Ris og fall Brautarholtsbræðra n Eitt stærsta gjaldþrot Íslandssögunnar n Dauðir kjúklingar í fjöru
árum og reiknaði Búnaðar bankinn út
að framleiðendur væru að greiða 120
krónur með hverju kílói af kjúklingi.
Brautarholtsfeðgar töpuðu einnig
á svínarækt og í árslok 2002 skuldaði
Brautarholtsbúið 1,2 milljarða. Þeir
voru þó ekki einu framleiðendurn
ir sem töpuðu á þessum árum. Of
framleiðsla var á öllu kjöti á þessum
árum og framleiðendur buðu neyt
endum sem hagstæðast verð í ör
væntingarfullri tilraun til að halda
rekstri gangandi. Til marks um erfið
leikana, þá hættu tíu svínabú rekstri
á árinu 2002.
KB banki tók svo yfir reksturinn
í Brautarholti og sá Kristinn um að
reka búið. Staða fyrirtækja þeirra
var erfið og Síld & fiskur rekið með
tapi. Í árslok 2003 hætti Kristinn af
skiptum af rekstri fyrirtækisins og í
janúar 2004 var Svínabúið í Brautar
holti og félag sem hélt utan um fast
eignir Síldar & fisks lýst gjaldþrota.
Þá fór Nesbú einnig á hliðina. Í árs
lok skulduðu fyrirtæki Brautarholts
feðga rúma fimm milljarða. Líkt og
segir í umfjöllun Morgunblaðsins
er ljóst að þeir feðgar hefðu þurft að
eiga meira eigið fé þegar þeir keyptu
upp hin og þessi fyrirtæki. Þá greiddu
þeir of hátt verð fyrir Síld & fisk og
Nesbú. Eftir gjaldþrot félaganna sak
aði forstjóri SS Kristinn Gylfa um
að mismuna kröfuhöfum. Kristinn
hafði tekið á sig miklar persónu
legar ábyrgðir í tengslum við rekstur
fyrir tækja sinna. Fyrirtækin störfuðu
áfram og fólk hélt vinnu. Kristinn
sagði í samtali við DV árið 2004:
„Ég er búinn að fá bú mitt afhent
aftur og get um frjálst höfuð strokið
á nýjan leik. Það hefur enginn tap
að á mér persónulega, heldur eru
þetta kröfur vegna ábyrgða minna
á skuldum fyrirtækjanna, hvers
skiptalokum er ólokið, en þar eru
eignir upp í skuldir og fyrirtækin nú
í blómlegum rekstri.“
Leyniskýrsla
Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur
fram að það félag sem tapaði mest
á gjaldþroti Móa var Mjólkur félag
Reykjavíkur (MR). Það fyrirtæki sá
um alla fóðursölu til Kristins og
bræðra. Skuldasöfnun MR olli mikl
um deilum en Kristinn Gylfi var
stjórnarformaður MR þar til í árs
byrjun 2003. MR afskrifaði 345
milljónir vegna fyrirtækja tengdum
Brautarholtsfeðgum. Þá greindi DV
frá því í júlí 2004 að félagsmenn í MR
vildu opinbera rannsókn á meintum
brotum Kristins. Þar var fyrirsögnin
„Leyniskýrsla afhjúpar spillingu
svínakóngs“. Þar sagði:
„Í greinargerð sem Þórarinn Við
ar lögmaður tók saman að beiðni
stjórnar MR er dregin upp sú mynd
að Kristinn Gylfi og Sigurður Eyjólfs
son, fyrrverandi framkvæmdastjóri
MR, hafi brotið gegn félaginu þegar
þeir létu það lána fyrirtæki í eigu
Kristins Gylfa, Svínabúinu Brautar
holti ehf., 41 milljón króna í bein
hörðum peningum. Þess utan þykir
hafa farið langt út fyrir öll venjuleg
viðmið hversu miklum skuldum
fyrir tæki í eigu Kristins Gylfa og
fjölskyldu hans fengu að safna hjá
MR vegna fóðurkaupa allt fram á
síðasta ár. Endurskoðunarfyrirtækið
PricewaterhouseCoopers metur tap
MR vegna viðskiptanna 465 milljón
ir króna. Er tapinu lýst sem alvarlegu
áfalli fyrir félagið. Tapið nam 195
milljónum króna vegna kjúklinga
búsins Móa, 159 milljónum vegna
Svínabúsins í Brautarholti og 111
milljónum vegna eggjaframleiðsl
unnar Nesbús.“
Þá sagði lögmaðurinn að Kristinn
hefði verið vanhæfur í starfi frá
hausti 2002 og fram að aðalfundi í
mars 2003 þar sem hann hafi setið
beggja megin borðsins.
„Fara ekki út og eru
í þröngu rými“
Árið 2011 birti DV frétt með fyrir
sögninni „Fara ekki út og eru í þröngu
rými“. Þar sagði að aðbúnaður
hænsna væri ekki í samræmi við
reglugerð um vistvæna vottun. Sagði
Árni Stefán Árnason lögfræðingur
að hann hefði heimsótt Brúnegg. En
fullyrt hefur verið að Matvælastofn
un hafi vitað af blekkingum gagnvart
neytendum í meira en áratug. Vit
að er að staða Brúneggja var mikið
rædd innan Matvælastofnunar á síð
asta ári og vildu einstaka starfsmenn
Óvart Dauðum fuglum
var sturtað niður í fjöru
fyrir neðan Brautarholt.
Ósáttir bræður Páll, föðurbróðir Kristins,
var ósáttur við að svínaskít væri sturtað í
sjóinn í tonnatali.