Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Qupperneq 12
Helgarblað 2.–5. desember 201612 Fréttir
upplýsa neytendur um ástandið hjá
Brúneggjum. Það var ekki gert og
er á ábyrgð yfirstjórnar MAST. Árni
Stefán sagði í samtali við DV:
„Eftir heimsóknina kynntum við
okkur reglugerðina um vistvæna
vottun og vorum öll sammála um
að aðstaða dýranna væri ekki í sam
ræmi við reglugerðina. Fuglarnir fá
ekki að fara út og eru í frekar þröngu
rými. Þetta gefur neytandanum
blekkjandi mynd af því sem um er
að ræða.“
Í frétt DV sagði enn fremur að
þröngt væri um fuglana.
„Samkvæmt reglugerð um vist
væna vottun frá 1998 skal gæta þess
að hænsnin njóti eðlislægs atferlis í
hvívetna, þau skuli vera í lausagöngu
í húsi og njóta útvistar þegar aðstæð
ur leyfa auk þess sem hús og útig
erði skulu vera þurr og hús vel loft
ræst, hæfilega björt og auð þrífanleg.
Árni Stefán segir að svo hafi ekki ver
ið á eggjabúinu. „Það er alveg af og
frá að segja að þær geti notið eðlis
lægs atferlis, það mundi hver sem er
viðurkenna það. Auk þess sáum við
engin útigerði, þau voru í glugga
lausu rými sem var lýst upp með raf
magnslýsingu og ammóníakslyktin
var slík að við eigin lega flúðum út.“
Tveimur dögum síðar gerði Krist
inn athugasemd við frétt DV:
„Því er algerlega hafnað að
Brúnegg ehf. hafi staðið í óbeinum
blekkingum varðandi aðbúnað
hænsnanna. Aldrei hefur verið gefið
í skyn að þær gangi úti eða bíti gras.
Hollusta afurðanna veltur ekki síst
á gæðum fóðursins sem hænurnar
eru aldar á og þar njóta hænur
Brúneggja hins besta. Aðbúnaður
hænsnanna hjá Brúneggjum er í
samræmi við reglugerð um vistvæna
vottun að öðru leyti en því að ekki
er hægt að koma því við að hleypa
hænunum úr húsi.“
Kristinn sagði einnig að hænun
um liði mjög vel hjá sér og að grund
vallaratriði í vistvænni vottun væri
að hænurnar væru ekki í búrum.
„Við höfum áhuga á að koma
þeim út og æskilegt væri að vera
með einhvers konar útiaðstöðu fyrir
dýrin. Það kemur kannski í framtíð
inni.“
Lítið fyrir sér fara
Frá árinu 1980 hefur verið yfir tvö
hundruð sinnum fjallað sérstaklega
um Kristinn í fjölmiðlum með ýms
um hætti, viðskipti, yfirtöku, kaup
á fyrirtækjum og sóðaskap. Síðustu
ár hefur Kristinn ekki verið mikið
í sviðsljósinu. Í viðtali við Bænda
blaðið sagði hann stefnuna að
hænurnar gætu farið úr húsi. Þá
lýsti Kristinn lífi hænsna sinna
eins og þær lifðu lúxuslífi í hús
um Brúneggja. Það var einnig gert
á heimasíðu fyrirtækisins sem nú
er búið að loka. Kristinn sagði um
„sældarlíf“ hænsnanna:
„Þegar þær vakna á morgnana
fá þær sér að borða og fara svo að
huga að varpi. Þær verpa mest fyrri
part dags. Síðan eftir hádegi, þegar
þær eru farnar úr hreiðri, er bland
að geði við aðrar hænur, sinna þörf
um sínum og svo fara þær í svo
kallað rykbað. Þá þyrla þær ryki og
undirburðinum yfir sig og hrista sig
síðan vel. Þetta er mikilvægur hluti
af þeirra lífsháttum. Þær eru mikið
á ferðinni og njóta þess að fara um
húsið.“
Þarna var Kristinn að tala um
húsnæði Brúneggja í Stafholtsveggj
um en myndskeið MAST var tekið í
því húsnæði og sýndi hryllilegan að
búnað.
Á síðustu dögum hefur Kristinn
verið á allra vörum. Í umfjöllun Kast ljóss kom fram að fyrirtækið hefur
ítrekað, allt frá árinu 2007, brotið lög
um velferð dýra og er nú sakað um
að blekkja neytendur. Samfélagið
logaði og þúsundir einstaklinga létu í
sér heyra á samskiptamiðlum. Lýstu
þeir yfir að þeir ætluðu ekki að kaupa
aftur egg frá fyrirtækinu. Melabúð
in reið á vaðið og greindi frá því að
hún ætlaði ekki að selja vörur fyrir
tækisins. Krónan, Hagkaup og Bónus
fylgdu í kjölfarið.
„Ég biðst afsökunar á því að
Brúnegg hafi ekki farið hundrað pró
sent eftir vistvænu reglugerðinni. Við
viðurkennum það og það er stað
reynd,“ sagði Kristinn Gylfi Jónsson
í samtali við DV og vildi meina að
myndir Kastljóss væru af gömlum
hænum. Sagði Gylfi að ef viðskipta
vinir sneru ekki til baka væri rekstur
inn búið spil. Þá sagði Kristinn óvíst
til hvaða ráða yrði gripið ef ljóst væri
að fyrirtækinu yrði ekki bjargað:
„Fækka fuglunum, hugsanlega slátra
þeim. Eggin eru viðkvæm fram
leiðsluvara og það segir sig sjálft að
við geymum þau ekki endalaust.
Þannig að þá er ekkert eftir nema að
snúa lyklinum.“
Framtíðin
Kristinn er ekki í sömu stöðu og þegar
hann fór í gegnum eitt stærsta gjald
þrot Íslandssögunnar. Í frétt á Stund
inni kemur fram að Brúnegg ehf. sem
selur egg sín á 40 prósent hærra verði
hefur hagnast um 215 milljónir á síð
ustu sjö árum. Á meðan Kristinn og
bróðir hans rökuðu inn seðlum gerði
MAST athugasemdir við reksturinn
en í eftirlitsskýrslunni sagði meðal
annars að fuglar væru skítugir og
meira og minna fiðurlausir. Þá var
músaeitur í eggjageymslu, lirfur og
dauðar mýs en allt í allt 21 frávik frá
lögum um dýravernd. Í Mosfellsbæ
voru dauðir fuglar á jörðinni. En yfir
stjórn gaf ekki greint ljós á að upp
lýsa neytendur um hvernig var í pott
inn búið í Borgarfirði.
„Loftgæði eru mjög slæm í öllum
húsum. Þar sem er lágt til lofts, sér
staklega innst í húsunum var loft
ið það þungt (ammoníakslykt) að
skoðunarmenn áttu erfitt með að
anda.“
Kristinn útilokar ekki að það þurfi
að slátra öllum fiðurfénaði ef ekki
tekst að endurnýja viðskiptasam
bönd. Hann hefur í sínum rekstri
slátrað hænum eftir að þær ljúka
sínu hlutverki og selt þá sem vist
vænar unghænur. Ekki fara allar
hænur í verslanir, Sorpa sér um að
urða dauðar hænur fyrir Brúnegg.
Brúnegg hefur í gegnum tíðina
selt varphænur sínar sem vistvænar
unghænur eins og Fréttablaðið
greindi frá á fimmtudag. Kristinn
Gylfi segir í samtali við DV söluna
hafa verið óverulega.
„Það hefur nú ekki verið mikið í
gegnum árin en markaðurinn hefur
verið ákaflega lítill. Við höfum ekki
slátrað í þeim tilgangi að selja ung
hænur á þessu ári. Þessum fugli
hefur því eðlilega verið fargað með
viðurkenndum aðferðum. Við erum
eini aðilinn sem hefur reynt að gera
einhver verðmæti úr unghænum
og þetta hefur verið óverulegt en
það hefur alltaf verið einhver mark
aður fyrir það sem kallað er súpu
hænur. Þetta hefur verið selt í búð
um,“ segir Kristinn Gylfi en vildi
ekki segja hvaða verslanir væri um
að ræða sem byðu upp á hænur sem
hafa verpt sínu síðasta eggi fyrir
Brúnegg. n
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
Á markaðsdeild DV er í
boði starf fyrir góðan og
harðduglegan starfsmann.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að vera
skemmtilegur, jákvæður, harðduglegur,
samviskusamur, heiðarlegur, ábyrgur,
úrlausnamiðaður, hafa áhuga á
sölumennsku og markaðsmálum.
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði
fyrir góðan og duglegan sölumann.
Umsóknir sendist á steinn@dv.is
Umhugsunarefni Kristinn var í miklum persónulegum ábyrgðum. Þá var jörð hans að
Brautarholti veðsett. Uppboð var stöðvað þegar í ljós kom að um óðalsjörð var að ræða.
Leyniskýrsla sögð afhjúpa svínakóng
Þórarinn Viðar lögmaður gagnrýndi að Krist-
inn hefði lánað eigin fyrirtæki fjármuni MR.
Brúnegg ehf. gagnrýnt Árið 2011 gagn-
rýndi Árni Stefán lögfræðingur Brúnnegg og
sagði aðstöðu óviðunandi.
Stórhuga bændur Þegar allt lék í lyndi
í bræðraveldi. Bræðurnir ætluðu sér stóra
hluti. Ásamt föðurnum fyrir framan nýja
svínabúið. F.v.: Jón Bjarni Jónsson, Björn
Jónsson, Kristinn Gylfi Jónsson, Ólafur
Jónsson og Jón Ólafsson.
Hryllilegur aðbúnaður Mynd úr Kastljósi.
Brautarholt Brautarholtsbúið lenti í kröggum og skuldaði 1,2 milljarða króna í árslok
2002.
Blekktu neytendur „Ég biðst afsökunar á því að Brúnegg hafi ekki farið hundrað prósent
eftir vistvænu reglugerðinni,“ sagði Kristinn við DV. mynd SigtryggUr ari