Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Side 15
Helgarblað 2.–5. desember 2016 Fréttir 15
É
g kannast við þessa umræðu,
hún kemur oft upp og þá er
kvartað yfir Útvarpi Sögu sér-
staklega,“ segir Heiða Björg
Hilmisdóttir, stjórnarfor-
maður Strætó bs., sem telur þörf á
að ræða útvarpsnotkun vagnstjóra
Strætó, sem fari fyrir brjóstið á ein-
hverjum farþegum. Umræða um
Söguhlustun vagnstjóra hefur áður
verið tekin í stjórninni.
Ákært fyrir hatursorðræðu
Greint var frá því í síðustu viku að
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hafi ákært Pétur Gunnlaugsson,
útvarpsmann á Útvarpi Sögu,
fyrir hatursorðræðu og útbreiðslu
haturs með því að hafa í samræð-
um við hlustendur stöðvarinnar,
í þætti sínum Línan er laus, látið
ummæli falla sem þóttu haturs-
full í garð samkynhneigðra. For-
saga málsins snertir tilkynningu
þess efnis að hinsegin fræðsla yrði
hluti af kennsluefni grunnskóla í
Hafnarfirði sem fór misvel í hlust-
endur stöðvarinnar sem hringdu
inn til að viðra skoðanir sínar. Svo
fór að Samtökin 78 kærðu málið
til lögreglu og að lokum var ákært
fyrir ummæli sem féllu í þættinum.
Skiptar skoðanir eru á ákærunni
þar sem fólk ýmist fagnar inngrip-
inu eða telur vegið að tjáningar-
frelsinu. Sjálfur hefur Pétur lýst því
yfir í fjölmiðlum að hann telji þetta
út í hött.
Áður ratað á borð stjórnar
Það var síðan í vikunni sem borgar-
fulltrúinn fyrrverandi, Gísli Marteinn
Baldursson, vakti athygli á því í um-
ræðum á Twitter um mál þessu tengt
að hlustun vagnstjóra Strætó á Út-
varp Sögu hefði eitt sinn verið tek-
in fyrir á stjórnarfundi Strætó bs. Á
Twitter hafði þeirri spurningu verið
velt upp hvort hægt væri að ákæra
Strætó fyrir að útvarpa áðurnefndri
hatursorðræðu yfir farþega. DV
spurðist fyrir um málið hjá Heiðu
Björg sem segir að þetta hafi verið
fyrir hennar tíð í stjórninni. Um-
ræðuna kannist hún þó við.
Lækki í útvarpinu
„Útvarpið á bara að vera fyrir vagn-
stjórana, þetta er ekki útvarp vagns-
ins, heldur vagnstjóranna sem eru
í vinnunni. Fólki þótti þá ekki rétt
að segja starfsmönnum hvaða út-
varpsstöðvar þeir mættu hlusta á í
vinnunni, en því beint til þeirra að
stilla útvarpið ekki of hátt,“ rifjar
Heiða Björg upp.
Margir farþegar Strætó kannast
við að lenda í því sem í daglegu tali
er gjarnan kallað „Sögu-strætó“
þar sem vagnstjórinn er að hlusta
þessa tilteknu stöð það hátt að
fremstu sætaraðirnar neyðist til að
hlusta líka.
Hugnast ekki umræðurnar
„Okkur berast kvartanir, bæði mér
beint og Strætó líka. Það hugnast
ekki öllum að hlusta á umræðuna
á Útvarpi Sögu, eins og sést,“ segir
Heiða og vísar þar í ákærurnar á
hendur þáttastjórnandanum. Hún
segir að þetta sé því eitthvað sem
þurfi að skoða.
„Við erum að fara yfir núna hvað
farþegar mega taka með sér í vagn-
ana í samráði við vagnstjóra og
þetta verður kannski eitt af því sem
við munum líka ræða. Þetta er eitt
af því sem þarf að skoða. Fólki þarf
auðvitað að líða vel í vagninum,
það er mikilvægt.“ n
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira
Leiðandi á leiksvæðum • Sími 565-1048
jh@johannhelgi.is • www.johannhelgi.is
Gervigras og
sparkvellir
Jóhann Helgi & Co ehf, „Stofnað 1990“
Sími 565 1048 - 820 8096
jh@johannhelgi.is – www.johannhelgi.is
Útileiktæki: Rólur, vegasölt,
gormatæki, rennibrautir,
leikkastalar ofl. Frá viðurkenndum
framleiðendum eins og Lappset,
Wicksteed, Stilum, Dynamo, Huck
ofl.
Járnrimlagirðingar fyrir
skóla- og leikskólalóðir, íþróttavelli,
fjölbýlishús og einkalóðir. Þýsk gæði
frá Legi.
Hjólabrettapallar frá Rhino
Ramps í Belgíu, komnir upp víða
um land við frábærar undirtektir
notenda.
Fallvarnarefni: Gúmmíhellur
frá Þýskalandi og gúmmímottur á
gras, þar sem grasið vex upp í gegn
um motturnar og motturnar hlífa
grasinu og virka sem fallvörn.
Leikföng, húsgögn og
búnaður fyrir leikskóla frá
stærsta dreifingaraðila Danmörku,
Lekolar (áður Rabo - Brio).
Mörk og körfur,
útiþrektæki og ýmsar
gerðir af sparkvöllum frá
viðurkenndum framleiðendum eins
og t.d. Sure Shot, Lappset, Wicksteed
og Saysu.
Bekkir, ruslafötur,
stubbahús, skýli,
reiðhjólagrindur,
trjágrindur, pollar,
ljósastaurar, blómaker ofl.
frá GH Form, Vekso, Nifo, Orsogril
Vestre o.fl.
Bændur og hestamenn:
Nótuð plastborð, fjárhúsgólf,
búgarðagirðingar (Dallas), gerði
og girðingarstaurar. úr plasti,
básamottur og fóðurgangamottur.
BJóðuM HeiLdarLausnir á
LeiksvæðuM. uppsetning,
viðHaLd og þJónusta
Leitið tiLBoða
w
w
w
.jo
ha
nn
he
lg
i.i
s
Sumarhúsið og garðurinn 2. 2009 33
M
yn
di
r f
rá
F
er
ða
þj
ón
us
tu
nn
i V
at
ns
ho
lti
w
w
w
.s
ta
yi
ni
ce
la
nd
.is
Þörf á að stjórnin skoði
útvarpsnotkun vagnstjóra
Stjórnarformaður Strætó segir farþega reglulega kvarta yfir því að þurfa að hlusta á Útvarp Sögu
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
„Fólki þarf
auðvitað að líða
vel í vagninum.
Umdeilt mál Pétur Gunnlaugsson, útvarpsmaður á Útvarpi Sögu, var í síðustu viku ákærður fyrir hatursorðræðu og útbreiðslu haturs.
Hugnast ekki öllum Heiða Björg Hilm-
isdóttir, borgarfulltrúi og stjórnarformaður
Strætó bs., segir þörf á að stjórnin bregðist
við kvörtunum um Söguhlustun vagnstjóra.