Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Síða 28
Helgarblað 2.–5. desember 20162 Ljósadýrð - Kynningarblað Íslensk framleiðsla á hagstæðu verði Kubbaljós Á rið 2007 hóf vélvirkinn Guðmundur Valdimarsson að hanna og smíða kubba- ljós á verkstæði sínu. Vegna mikillar eftirspurnar dafn- aði og stækkaði þessi starfsemi ört. Árið 2014 stofnaði Guðmundur ásamt eiginkonu sinni, Ósk Guð- mundsdóttur, fyrirtækið Gæðastál sem sinnir margs konar járnsmíði og hefur um 12 manns í vinnu. Kubba- ljós eru ein deild innan þessa litla og frísklega fyrirtækis, þar sem sérhæf- ingin liggur í hönnun, framleiðslu og sölu á kubbaljósum og hringljósum. „Þetta eru kubbalaga ljós sem fest eru á veggi eða upp í loft. Við fórum líka út í að búa til hringljós vegna mikillar eftirspurnar eftir þeim. Við framleiðum einnig útistaura og úti- ljós,“ segir Ósk Guðmundsdóttir. Sem fyrr segir eru kubbaljósin bara lítill hluti af starfsemi Gæðastáls en fyrirtækið þjónustar fjölda fyrirtækja með alls kyns smíði og viðhaldi, m.a. fiskbúðir og fiskverkanir. „Við erum með litla ljósabúð á Smiðjuvegi 4 og þar er líka verk- stæðið þar sem ljósin eru búin til,“ segir Ósk. Kubbaljós státa bæði af hagstæðu verði og persónulegri þjónustu: „Við erum ódýrust í kubbaljósum og smæðin gerir okkur það kleift, við erum að selja beint úr verk- smiðjunni. Fólki finnst mjög gaman að koma hingað í ljósabúðina okk- ar því þetta er svona beint-frá-býli upplifun, að kaupa ljósin á staðnum þar sem þau eru smíðuð. Við veitum persónulega þjónustu og sérsmíðum ljós fyrir þá sem þess óska. Bjóðum til dæmis upp á aðrar stærðir en þær sem eru á lager, smíðum ljós í hallandi loft og reynum að koma til móts við þarfir viðskiptavinar- ins. Svona þjónustu er ekki hægt að fá í stórverslun þar sem viðskipta- vinurinn verður að gera sér að góðu það sem er til í hill- unum.“ Ljósin eru smíðuð úr áli og eru útiljósin sérhönnuð fyrir íslenska veðráttu og hafa reynst gríðarlega vel. Þau eru síðan dufthúðuð í hinum ýmsu litum og er hægt að fá þau í flestum RAL-litum. Ljósabúð Kubbaljós er sem fyrr segir til húsa að Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Opið er virka daga frá kl. 11 til 17 og laugardaga frá 11 til 14. Nánari upplýsingar og fleiri myndir er að finna á vefsíðunni kubbaljos.is. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.