Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Side 43
Helgarblað 2.–5. desember 2016 Skrýtið Sakamál 31
Gerum við Apple vörur
iP
one í úrvali
Sérhæfum okkur í Apple
Allskyns
aukahlutir s: 534 1400
n Peggy Knobloch
hvarf sporlaust árið
2001 n Alræmdur
nýnasisti grunaður
um ódæðið
H
ver urðu örlög hinnar níu
ára gömlu Peggy Knobloch,
sem hvarf sporlaust frá
heimili sínu í Bæjaralandi?
Þetta er spurning sem Þjóð
verjar hafa spurt sig allt frá þeim
örlagaríka degi í maí árið 2001.
Aðstandendur stúlkunnar, sem
stundum var kölluð hin þýska Made
leine McCann, fengu ákveðin svör
við spurningum sínum í sumar þegar
líkamsleifar hennar fundust, 15 kíló
metrum frá heimili hennar. Og í vik
unni fengu aðstandendur enn frekari
svör þegar DNArannsókn leiddi
í ljós að alræmdur nýnasisti, Uwe
Bönhardt, virðist hafa átt þátt í hvarf
inu.
Dæmdur í lífstíðarfangelsi
Hvarfið á Peggy vakti gríðarlega
athygli á sínum tíma en hún sást
síðast skammt frá heimili sínu í
Lichtenberg í Bæjaralandi þann 7.
maí 2001. Hundruð lögreglumanna
tóku þátt í leitinni á sínum tíma og
þyrlur sveimuðu yfir nágrenninu svo
vikum skipti. Allt kom fyrir ekki – ekki
fannst Peggy.
Það var ekki fyrr en í júlí í sumar
að einhver svör fengust um örlög
hennar. Maður sem var að tína mat
sveppi gekk þá fram á líkamsleifar og
leiddi DNArannsókn í ljós að þarna
væri komin fram Peggy Knobloch.
Rannsókn lögreglu varð til þess að
andlega vanheill maður, Ulvi Kulac,
var dæmdur fyrir aðild að hvarfinu
árið 2004 og dæmdur í lífstíðarfang
elsi. Tæpum tíu árum síðar, eða árið
2014, var hann látinn laus eftir að
áfrýjunardómstóll komst að þeirri
niðurstöðu að fangelsisdómurinn
hefði verið byggður á veikum grunni.
Alræmd samtök
Eftir að líkamsleifarnar fundust í
sumar fór rannsókn lögreglu á fullt
aftur. Tekin voru DNAsýni og þau
send í rannsókn og þá komu tengslin
við Uwe Bönhardt í ljós. Erfðaefnin
fundust á fötum Peggy. Bönhardt
var einn af liðsmönnum þýsku
nýnasista og hryðjuverkasamtak
anna NSU (þ. Nationalsozialistischer
Untergrund). Samtökin eru talin
hafa staðið á bak við bankarán og
morð á að minnsta kosti tíu manns
árin 2002 til 2007; átta tyrkneskum
innflytjendum, grískum ríkisborgara
og þýskri lögreglukonu. Bönhardt
og félagi hans úr samtökunum, Uwe
Mundlos, frömdu sjálfsvíg árið 2011
eftir að hafa framið vopnað bankarán
í borginni Eisenach.
Dauðalisti
NSUsamtökin komust einmitt í um
ræðuna í Þýskalandi í nóvember 2011
eftir að öflug sprenging varð í íbúðar
húsi í borginni Zwickau í austurhluta
Þýskalands það ár. Nokkrum klukku
stundum áður höfðu Bönhardt og
Mundlos framið fyrrgreint rán, en
þeir bjuggu í húsinu sem sprakk,
ásamt Beate Zschäpe sem talin er að
hafa sprengt húsið í loft upp. Beate,
Bönhardt og Mundlos voru elskend
ur. Í húsarústunum fundust meðal
annars DVDdiskar þar sem ábyrgð
var lýst á morðunum tíu og skotvopn
sem notuð voru við morðin. Þá fannst
dauðalisti með nöfnum 88 einstak
linga í Þýskalandi; stjórnmálamanna,
þingmanna og fulltrúa tyrkneskra
og íslamskra samtaka í Þýskalandi.
Fjöldi nafna á listanum, 88, þyk
ir þó ekki vera nein tilviljun. Talan
er vinsæl meðal nýnasista en hún er
eins konar stytting á orðtakinu „Heil
Hitler“, en H er áttundi stafurinn í
stafrófinu. Beate er nú fyrir dómi,
ákærð fyrir aðild að morðunum árin
2002 til 2007.
Beate ber vitni
Þýskir fjölmiðlar greindu frá því í
vikunni að Beate væri reiðubúin
að bera vitni um meint ódæðisverk
Bönhardts gegn Peggy á sínum tíma.
Ekki liggur fyrir hvers vegna Bönhardt
nam stúlkuna á brott og myrti eins
og margt bendir til. Fer lögregla
nú meðal annars yfir tölvur sem
Bönhardt notaðist við til að kanna
hvort eitthvað komi fram sem varpað
gæti betra ljósi á örlög stúlkunnar.
Mathias Grasel, verjandi Beate, sagði
við þýska fjölmiðla að skjólstæðingur
sinn væri reiðu búinn að svara
spurningum um hvarf stúlk unnar.
Vitnaleiðslur fara fram í næstu viku. n
Þremenningarnir Uwe
Bönhardt, sem er lengst til
hægri á myndinni, er grun-
aður um aðild að hvarfinu.
Erfðaefni úr honum fundust á
fötum Peggy. Fyrir miðri mynd
er Beate Zschäpe og Uwe
Mundlos er til vinstri. Fimmtán ára ráðgáta
virðist loksins vera leyst
Fannst látin Peggy
hvarf árið 2001. Líkams-
leifar hennar fundust í
sumar.
Fyrir dómi Beate
er sögð vera reiðu-
búin til að bera vitni
gegn fyrrverandi
elskhuga sínum,
Uwe Bönhardt.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is