Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2016, Qupperneq 54
Helgarblað 2.–5. desember 201642 Fólk
Sérmerktu
persónulegu
gjafavörurnar
ALLT MERKILEGT
GarðatorG 3, Garðabæ - S: 555 3569 - Sala@alltmerkileGt.iS - alltmerkileGt.iS
Pantaðu í netversluninni
Hægt er að fá bæði sent heim
eða sækja í nýju versluninni okkar!
Allt
merkilegt
10 árA
Heimsfrægar leikkonur segja frá einelti sem þær urðu fyrir
Erfið skólaár
stjarnanna
Þ
eir sem verða að þola
einelti gleyma því ekki. Það
á líka við um stjörnurnar
í Hollywood. Skólafélagar
Steven Spielberg kölluðu
hann nörd, Tom Cruise var strítt
vegna þess að hann glímdi við
lestrar erfiðleika og Kate Winslet
var kölluð feitabolla. Og þær þrjár
heimsfrægu stjörnur sem fjallað er
um hér á síðunni urðu fyrir miklu
aðkasti í skóla vegna þess að þær
þóttu vera öðruvísi og féllu ekki inn
í hópinn. Á þeim sannaðist að sá
hlær best sem síðast hlær. Skóla
félagarnir sem níddust á þeim á sín
um tíma vildu í dag örugglega vera í
þeirra sporum. n
Jennifer Lawrence
Óskarsverðlaunaleikkonan varð
fyrir svo miklu einelti sem barn að hún
skipti margoft um skóla. Í gagnfræðaskóla
niðurlægði skólasystir hennar hana þegar hún fékk hana
til að hjálpa sér við að dreifa afmælisboðskorti til skóla
félaganna, en Lawrence var ekki boðið í það afmæli.
Winona
Ryder
Winona Ryder varð
fyrir grófu ofbeldi
í skóla. Nokkrir
skólafélagar hennar
réðust á hana, slógu
höfði hennar við dyr
og þegar hún féll í
jörðina spörkuðu
þeir í hana og börðu
hana. Eftir atvikið var
henni vísað úr skóla
meðan hinir ungu
ofbeldisseggir héldu
áfram skólagöngu
eins og ekkert hefði í
skorist. Seinna, þegar
Ryder var orðin fræg
Hollywoodstjarna,
gekk einn ofbeldis
mannanna að henni á
kaffihúsi og bað hana
um eiginhandar áritun.
Hún spurði hann hvort
hann myndi eftir að
hafa gengið í skrokk
á skólasystur sinni á
árum áður. Hann sagði
að sig rámaði í það.
„Þetta var ég, farðu
til fjandans,“ sagði
Ryder.
Sandra Bullock
Móðir Söndru Bullock var óperusöngkona og tók dóttur sína með sér í ferðalög til Evrópu.
Þegar Bullock sneri aftur í skólann í Bandaríkjunum var henni miskunnarlaust strítt
vegna klæðnaðar síns, sem var mjög evrópskur. Bullock segist enn muna nöfnin á öllum
þeim krökkum sem hæddu hana og lumbruðu á henni.