Fréttablaðið - 09.02.2017, Blaðsíða 6
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
www.varmaclothing.com
Nú er hægt að versla Varma á netinu
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Eldhúsvaskar og -tæki
Schutte Hoga eldhústæki
11.590
Oulin Stálvaskur 0304
2 hólf 62x47cm 0,8mm*
17.890
Oulin Stálvaskur F201
2 hólf 87x49 1,2mm*
39.990
Oulin Stálvaskur F301A
1 hólf 50x45cm 1,2mm*
18.890
Oulin Stálvaskur FTR101R
89x51cm 1,2mm*
25.890
Oulin Florens
eldhústæki
11.890
Schutte Falcon
eldhústæki
7.790
Oulin stálvaskur F302A
1 hólf 59x53cm 1,2mm*
19.790
SCHÜTTE
* þykkt á stáli
product
design
award
Undirbúningur er að hefjast til að
greiða þeim vistmönnum á Kópa-
vogshæli, sem eru enn á lífi, bætur
fyrir þá vanrækslu sem þeir þurftu
að sæta. Vistheimilanefnd telur að
hundrað börn, sem vistuð voru á
Kópavogshæli, séu enn á lífi.
Samkvæmt lögum um sanngirnis-
bætur verða ákveðin skilyrði að vera
fyrir hendi til að einstaklingur eigi
rétt á bótum. Einstaklingur verður að
hafa orðið fyrir illri meðferð eða of-
beldi meðan á vistuninni stóð sem
olli viðkomandi varanlegum skaða.
Með því er átt við refsiverða líkam-
lega valdbeitingu eða valdbeitingu
þar sem óþarfa sársauka var valdið.
Ógnandi eða niðurlægjandi athöfn
gagnvart barni eða athafnir sem eru
til þess fallnar að misbjóða barni
eða vanrækja uppeldi þess þannig
að líkamleg og andleg heilsa þess
sé hætt búin.
Upphæð sann-
girnisbóta
miðast við
alvarleika of-
beldisins. Há-
mark þeirra
er 6 milljónir
króna.
Guðrún Ögmundsdóttir hefur
það hlutverk að fara yfir skýrsluna
og koma með tillögu að bótum sem
samþykkt verður af sýslumanni.
„Ég vissi alveg að niðurstaðan
gæti orðið mjög alvarleg. Nú þarf
ég bara að leggjast yfir skýrsluna
og breyta vinnulaginu því þetta er
öðruvísi hópur. Ef þú ert með fólk
sem getur lítið tjáð sig þarf að finna
aðrar leiðir.“ Nú þegar liggur fyrir að
80 milljónir eru til reiðu í sanngirnis-
bætur.
STJÓRNSÝSLA Í nýrri skýrslu Vistheim-
ilanefndar um Kópavogshæli og Efra-
Sel er eindregið mælst til þess að mótað
verði nýtt fyrirkomulag um könnun
og uppgjör sanngirnisbóta vegna illrar
meðferðar og ofbeldis gagnvart börn-
um á stofnunum. Málið fer í ferli í ráðu-
neytinu að sögn dómsmálaráðherra.
Vistheimilanefnd var fyrst skipuð
árið 2007 og var nefndinni falið að
skila skýrslu um starfsemi Breiðavíkur-
heimilisins. Í kjölfar þeirrar skýrslu
skilaði nefndin þremur skýrslum um
önnur vist- og meðferðarheimili fyrir
börn. Árið 2012 var ný vistheimila-
nefnd skipuð og henni falið að kanna
málefni Kópavogshælis. Var það gert að
beiðni Þroskahjálpar.
Í lögum um sanngirnisbætur er það
skilyrði fyrir greiðslu bóta að skýrsla
vistheimilanefndar liggi fyrir. Í skýrsl-
unni sem skilað var í fyrradag eru talin
upp þrettán önnur heimili og stofn-
anir þar sem börn voru vistuð en engin
skýrsla liggur fyrir.
„Spurningin sem liggur í loftinu er
hvort niðurstaðan frá þeim heimilum
sé ekki sú sama. Vitum við ekki hrein-
lega nóg til að geta dregið nokkuð
almennar ályktanir?“ spyr Hrefna
Friðriksdóttir, formaður vistheimila-
nefndar.
Í niðurstöðukafla skýrslunnar er
stungið upp á úrbótum til að gera
fyrirkomulag við greiðslu sann girnis-
bóta skilvirkari. Tillögurnar eru að
stærstum hluta efnislega í samræmi
Nýjar leiðir kannaðar
Vistheimilanefnd gerir athugasemdir við fyrirkomulag á könnun og uppgjöri
sanngirnisbóta. Tillögur nefndarinnar eru að stærstum hluta þær sömu og 2011.
Frá skemmtun á Kópavogshæli árið 1980. Vistheimilanefnd hefur skilað skýrslum um fimm vistheimili þar sem margt mis-
jafnt kom í ljós. Í nýjustu skýrslunni eru talin upp 13 önnur heimili sem enn á eftir að skoða. Mynd/LjósMyndasaFn ReyKjaViKuR
Undirbýr bætur fyrir þá sem eru á lífi
við tillögur sem fyrri nefnd skilaði árið
2011. Þar var meðal annars stungið upp
á að sýslumaður eða sjálfstæð stofnun
sæi um verkefnið.
„Einnig er hægt að halda núverandi
fyrirkomulagi. Það er hægt að fela
nefndinni að skoða fleiri heimili en það
útheimtir mikla vinnu. Þetta er gríðar-
legt magn gagna og tímafrek vinna,“
segir Hrefna.
„Ég tel að það eigi að íhuga vel tillög-
ur um breytt fyrirkomulag,“ segir Sig-
ríður Á. Andersen dómsmálaráðherra.
Spurning sé hvort ástæða sé til að leggja
vinnu nefndarinnar nú til grundvallar
á öðrum heimilum eftir atvikum. Málið
fari nú í ferli í ráðuneytinu.
„Ég legg áherslu á að vandað sé til
verka en það er ekki víst að það þjóni
tilgangi að taka jafn langan tíma í þau
mál sem á eftir koma,“ segir Sigríður.
johannoli@frettabladid.is
Okkur grunar að
það hafi verið meira
um kynferðislegt ofbeldi
gagnvart fullorðnu fólki.
Rannveig Traustadóttir, prófessor við
Háskóla Íslands og nefndarmaður
SAmféLAg Rannsókn vistheimila-
nefndar á Kópavogshæli tók aðeins
til meðferðar á börnum sem vistuð
voru á hælinu en ekki til fullorðinna.
Vistheimilanefndin fór engu að síður
í gegnum allar sjúkraskýrslur sem
lágu fyrir um vistmenn til að vinsa
út hverjir voru vistaðir frá barnsaldri.
Rannveig Traustadóttir, prófess-
or við Háskóla Íslands og nefndar-
maður, segir fulla ástæðu til að
rannsaka einnig þá meðferð sem
fullorðnir þurftu að þola á hælinu.
„Við í nefndinni töldum að það hefði
verið meira um ofbeldi og oft verri
aðbúnaður gagnvart fullorðnu fólki
en varðandi börnin. Okkur grunar að
það hafi verið meira um kynferðis-
legt ofbeldi gagnvart fullorðnu fólki.“
Fyrrverandi starfsmaður Kópa-
vogshælis sem Fréttablaðið ræddi
við greindi frá ungri konu sem kom
fyrst á Kópavogshælið eftir að hún
varð sjálfráða. Faðir konunnar tók
hana reglulega af heimilinu í helgar-
leyfi og stúlkan kom iðulega til baka
örmagna og í ástandi sem vakti grun-
semdir um kynferðislega misnotkun.
Allt starfsfólkið var meðvitað um
þessar grunsemdir en ekki var haft
samband við lögreglu eða yfirvöld.
Faðirinn fékk áfram að hitta dóttur
sína. Annar starfsmaður, kona, sem
Fréttablaðið ræddi við starfaði á
hælinu í kringum 1990. Hún sagði
að þegar hún hóf störf þar hefði verið
búið að segja mörgum upp sem ekki
þóttu starfi sínu vaxnir. Í hinum nýja
starfsmannahópi gengu sögur af svo-
kölluðu „fávitakasti“ þar sem vist-
mönnum var kastað til og frá líkt og
í dvergakasti.
Þá hafi stór hluti starfseminnar
farið í að vinda ofan af áralangri
vanrækslu vistmanna, meðal annars
með því að gera að þrálátum legu-
sárum fólks. Þá hafi kona, sem var
heyrnarskert, fengið heyrnartæki í
fyrsta sinn sem leiddi í ljós að hægt
var að kenna henni að tala. Áður fyrr
hafði verið talið að konan væri mál-
laus. – snæ
Rétt að athuga aðbúnað fullorðinna
9 . f e b R ú A R 2 0 1 7 f I m m T U D A g U R6 f R é T T I R ∙ f R é T T A b L A ð I ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-1
0
7
4
1
D
1
3
-0
F
3
8
1
D
1
3
-0
D
F
C
1
D
1
3
-0
C
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K