Fréttablaðið - 09.02.2017, Síða 8
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Við kynnum nýjan Mitsubishi ASX. Þessi snaggaralegi fjórhjóladrifni sportjeppi skilar þér miklu
ai á mjúkan og sparneytinn hátt. Þú situr hærra, hefur meira rými og nnur hvernig þægindin gera
aksturinn að hreinni upplifun. Taktu snúning á ASX og leyfðu skilningarvitunum að skemmta sér.
Mitsubishi ASX 4x4
Intense ClearTec dísil, sjálfskiptur frá:
4.890.000 kr.
FYRIR HUGSANDI FÓLK
NÝR MITSUBISHI ASX 4x4
5 ára ábyrgð
FRAMÚR VONUM
„Sjálfur er ég þeirra skoðunar að
bönn eða ýmsar takmarkanir á sölu
þessarar vöru umfram aðrar séu ekki
til góðs til lengri tíma litið. Af því að
enn bærast í mér frelsishugmyndir
og almennt óþol gagnvart afskiptum
ríkisvaldsins vil ég hafa sem mest
frelsi í viðskiptum með löglegar
vörur,“ segir Brynjar.
„Ég trúi því nefnilega að best sé
að einstaklingurinn beri ábyrgð
á sjálfum sér og það sé vænlegast
þegar upp er staðið. Hins vegar tel
ég rétt, með hliðsjón af afstöðu stórs
hluta landsmanna, að stíga smærri
skref í átt til frjálsræðis í þessum
efnum, í stað þess að gefa helmingi
þjóðarinnar á lúðurinn. Það verði í
raun árangursríkara. Þróunin verður
auðvitað sú að almenningur mun
krefjast betra og meira aðgengis að
þessari vöru, alveg eins og gerðist
þegar bjórinn var leyfður. Sömu
rök voru fyrir bjórbanninu og nú
fyrir banni á sölu áfengis í mat-
vörubúðum. Dómsdagsspár eru
manninum eðlilegar þrátt fyrir
að við lifum þær allar af.“
Brynjar segir áfengissölu
alltaf verið tilefni ágreinings.
„Ástæðan er auðvitað sú að
það er alltaf hluti þjóðarinnar
sem kann ekki fótum sínum
Við lifum af dómsdagsspárnar
„Svíar prófuðu á sínum tíma að setja
léttvín í matvöruverslanir og það jók
áfengisneyslu verulega og sér í lagi
hjá yngri hópunum með tilheyrandi
áskorunum. Svíar hurfu frá þessari
stefnu vegna þessarar reynslu.“
Hún bætir við að fyrirkomulagið
eins og það er í dag, að ríkið standi
eingöngu í sölu áfengis, hafi reynst
okkur vel.
„Lýðheilsurannsóknir sýna að
aukið aðgengi eykur áfengisneyslu.
Við þurfum því að spyrja okkur
hvort það sé rétt forgangsröðun í
heilbrigðiskerfinu að setja þetta
mál á dagskrá – á sama tíma og mikið
ákall er um að styrkja innviði heil-
brigðiskerfisins og auka forvarnir.“
Er það þá ekki hluti af annarri
umræðu, sem snýr að því að banna
notkun áfengis alveg? „Íslandi, Sví-
þjóð og Noregi hefur farnast vel í að
móta stefnu í þessum málaflokki,
þ.e. ekki meðhöndla áfengi eins og
hverja aðra neysluvöru og stýrt
aðgengi með ákveðnum hætti án
þess að banna neyslu,“ útskýrir
Lilja og bætir við að ákveðið jafn-
vægi og sátt ríki um núverandi
fyrirkomulag í samfélaginu.
„Þess vegna sé ég ekki ástæðu
til að breyta um stefnu. Áfengi er
Aukið aðgengi eykur neyslu
Brynjar
Níelsson
þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins
Lilja
Alfreðsd.
fyrrverandi utanríkisráð-
herra og varaformaður
Framsóknarflokksins
Með eða á móti Áfengisfrumvarpið
Lýðheilsu-
rannsóknir
sýna að
aukið
aðgengi
eykur
áfengis-
neyslu.
Ég trúi því
nefnilega að
best sé að
einstakl-
ingurinn
beri
ábyrgð á
sjálfum
sér.
forráð í þessum efnum. Sama gildir
um margt annað sem sumir ráða
ekki við.“
En er fyrirkomulagið þá ekki gott
eins og það er?
„Þjónusta þessa góða fyrirtækis
hefur batnað verulega. Bæði er hún
víðar um höfuðborgarsvæðið og ekki
þarf lengur að bíða í röð fyrir utan
verslanirnar. Með hliðsjón af því
er eðlilegt að spyrja af hverju leyfa
eigi sölu í matvörubúðum. Meðan
þjónustan er þetta góð er ekki nauð-
synlegt að matvörubúðir
selji áfengi. Ekkert
frekar en að nauð-
synlegt hafi verið
að heimila sölu
mjólkurafurða í
matvörubúðum á
sínum tíma enda
mjólkurbúðir á
hverju horni.“
ekki eins og hver önnur neysluvara.“
Er sala verslana á áfengi samt ekki
bara óhjákvæmileg þróun, hvort sem
hún verður með samþykkt þessa
frumvarps eða þess næsta sem lagt
verður fram?
„Það er ekki forgangsmál er varðar
stefnumótun í heilbrigðismálum.
Rannsóknir sýna að hliðarverkanir
eru umfangsmiklar og til þess þarf
að hugsa áður þessi stefnubreyting
á sér stað. Að auki hefur Landlæknis-
embættið sett sig alfarið á
móti frumvarpinu og
mér finnst rökin
sem ég hef farið
yfir og önnur
sem koma frá
L a n d l æ k n i s -
e m b æ t t i n u
vera þess eðlis
að óhjákvæmi-
legt er að vera
m ó t f a l l i n n
frumvarpinu.“
9 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r8 f r é T T I r ∙ f r é T T a b L a ð I ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-2
4
3
4
1
D
1
3
-2
2
F
8
1
D
1
3
-2
1
B
C
1
D
1
3
-2
0
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K