Fréttablaðið - 09.02.2017, Qupperneq 10
Nánari upplýsingar
í síma 666 4000
eða leiga@reginn.is
TIL LEIGU Í MIÐBÆNUM
TIL LEIGU einstaklega vel
staðsett um 460 m2 rými í
miðborg Reykjavíkur á horni
Þingholtsstrætis og Skálholts-
stígar. Rýmið er á tveimur
hæðum, komið inná jarðhæð
og möguleiki á aðgengi í
kjallara af jarðhæð. Ótal
möguleikar eru með nýtingu
á rýminu t.d. verslun, skrif-
stofur, kaffihús o.s.frv. Á heima-
síðu okkar www.reginn.is má
finna nánari upplýsingar um
eignina, svæðið, tillögur og
hugmyndir sem unnar hafa
verið um mögulega nýtingu.
Leigutaki hefur möguleika á
að hanna rýmið með leigu-
sala og séraðlaga þannig
húsnæðið að sínum þörfum.
Hér er á ferðinni einstakt
tækifæri á frábærum stað í
hjarta Reykjavíkur.
Þingholtsstræti 27
reginn.is
reginn@reginn.is
sími 512 8900
2x15
(99x150)
Snilldarbragð
til að njóta
Engjaþykkni með flauelsmjúku
og mildu sítrónubragði.
- Þinn nýi uppáhaldseftirréttur?
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
LaxeLdi Markaðs- og kynningar-
stjóri Hreggnasa segir ótækt að lax-
eldisfyrirtæki auglýsi og markaðs-
setji afurð sína sem íslenskan lax þar
sem hann sé ekki af íslenskum stofni
heldur norskum. Forstjóri Arnarlax
telur hins vegar um íslenska afurð
að ræða.
„Það er til vara sem heitir íslenskur
lax, vara sem markaðssett hefur
verið erlendis í áratugi með þeirri
ímynd að þar fari hrein afurð, villt
úr íslenskri náttúru,“ segir Haraldur
Eiríksson, markaðsstjóri Hregg-
nasa, sem selur veiðileyfi í íslenskar
laxveiðiár til einstaklinga um allan
heim.
„Nú ber svo við að hingað er
komið norskt sjókvíaeldisfyrirtæki,
elur upp norskan lax í sjókvíum og
selur hann og markaðssetur sem
íslenskan. Meira að segja er íslenskur
fáni settur á vöruna í Asíu og á Ind-
landi,“ bætir Haraldur við.
Er Haraldur hér að vitna til fyrir-
tækisins Arnarlax, sem rekur laxeldi
frá Bíldudal og fer framleiðslan fram í
þremur fjörðum; Patreksfirði, Arnar-
firði og Tálknafirði.
Þessu er Kristian Matthiasson, for-
stjóri Arnarlax, ósammála.
„Þetta er í grunninn lax sem var
fluttur til Íslands fyrir tveimur ára-
tugum. Við kaupum hann frá inn-
lendu fyrirtæki og köllum hann
íslenskan lax. Þeir sem eru síðan
á móti laxeldinu segja að hann sé
norskur lax,“ segir Kristian.
„Þetta er alveg eins með okkur
Íslendingana sem höfum verið hér
í 20 ár.“
Fyrirtækið áformar að slátra um
tíu þúsund tonnum af laxi í ár. „Við
verðum að átta okkur á að hér er um
að ræða kynbættan lax frá fyrirtæki
hér á landi. Því er ekki rétt að segja
að þetta sé ekki íslenskur lax.“
sveinn@frettabladid.is
Laxastofn frá
Noregi sagður
vera íslenskur
Deilt er um hvort hægt sé að markaðssetja norskan
eldislax sem íslenskan því hann er alinn hér við
land. Eldislax er nær undantekningarlaust af norsku
bergi brotinn en markaðssettur sem íslenskur.
Laxinn sem kemur úr sjókvíum hér við
land er undantekningarlaust norskur.
Ólöf Nordal, varaformaður og þing-
kona Sjálfstæðisflokksins, lést í gær
fimmtug að aldri.
Ólöf var alþingismaður Sjálfstæð-
isflokksins í Norðausturkjördæmi
2007-2009 og var þingmaður Reykja-
víkurkjördæmis suður 2009-2013 og
aftur frá árinu 2016.
Ólöf tók við embætti innanríkis-
ráðherra þann 4. desember 2014 og
gegndi því embætti til 11. janúar á
þessu ári.
Ólöf greindist með krabba-
mein árið 2014 og gekkst þá undir
skurðaðgerð til að fjarlægja illkynja
æxli. Í byrjun síðasta árs hóf hún
lyfjameðferð á ný. Hún var oddviti
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkur-
kjördæmi suður fyrir þingkosningar
síðastliðið haust en dró sig til hliðar í
kosningabaráttunni til að ná bata.
Vinsældir Ólafar innan Sjálfstæð-
isflokksins voru miklar. Þar naut
hún afgerandi trausts og fékk ætíð
yfirburðakosningu þegar hún bauð
sig fram til embætta innan flokksins
sem og í prófkjörum hans. Hún var
kjörin varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins á landsfundi árið 2010 og
gegndi því embætti til ársins 2013.
Ólöf bauð sig síðan aftur fram í vara-
formannsembættið á landsfundi
árið 2015 og gegndi embættinu til
dauðadags.
Hún lætur eftir sig eiginmann og
fjögur börn.
Fæ d d 3 . d E s E M B E r 1 9 6 6 – dá I N 8 . F E B rúA r 2 0 1 7
Ólöf Nordal, fv. innanríkisráðherra
Meira að segja er
íslenskur fáni settur
á vöruna í Asíu og á Ind-
landi.
Haraldur Eiríksson, markaðsstjóri
Hreggnasa
9 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f i M M T U d a G U r10 f r é T T i r ∙ f r é T T a b L a ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-1
F
4
4
1
D
1
3
-1
E
0
8
1
D
1
3
-1
C
C
C
1
D
1
3
-1
B
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K