Fréttablaðið - 09.02.2017, Síða 15

Fréttablaðið - 09.02.2017, Síða 15
Ein líkleg skýring á bágu ástandi stjórnmálanna í Bandaríkjunum og Evrópu nú er uppreisn reiðra kjósenda gegn forréttindum, m.a. gegn stjórn- málaflokkum sem hegða sér eins og hagsmunasamtök stjórnmála- manna og bönkum sem hegða sér eins og ríki í ríkinu. Byrjum vestra. Þar hefur það gerzt í fyrsta sinn að nýr forseti nýtur ekki trausts meiri hluta kjósenda frá fyrsta degi sínum í embætti, heldur stendur hann andspænis götumótmælendum um allt land og erlendis, dómstólar hnekkja tilmælum hans, og hann er dreginn sundur og saman í svo beittu háði í sjónvarpi kvöld eftir kvöld að annað eins hefur ekki sézt síðan Charlie Chaplin reif Adolf Hitler í sig í Einræðisherranum 1940. Hvernig gat þetta gerzt? Óvinveitt yfirtaka Repúblikanar á þingi höfðu gengið svo fram af mörgum kjósendum sínum að Donald Trump, alls óreyndur í stjórnmálum, gat tekið flokkinn yfir eins og að drekka vatn: þetta var óvinveitt yfirtaka eins og það heitir á viðskiptamáli. Trump stráfelldi keppinauta sína og tryggði sér þannig útnefningu flokksins sem lyppaðist niður. Laskaður Repúblikanaflokkur náði meiri hluta í báðum deildum þingsins. Við erum vitni að sögu- legri tilraun kjósenda til að taka flokkinn yfir. Litlu munaði að svipað gerðist í flokki demókrata nema Hillary Clinton, fv. þingmaður og ráð- herra, stóð af sér yfirtökutilraun Bernie Sanders sem var nýgenginn til liðs við flokkinn og hafði áður verið óháður þingmaður í öldungadeildinni. Clinton hlaut 16 milljónir atkvæða í prófkjörum demókrata gegn 12 milljónum atkvæða Sanders. Til viðmiðunar hlaut Trump 13 milljónir atkvæða í prófkjörum repúblikana. Hvers vegna varð eitt ofan á í flokki repúblikana og annað meðal demókrata? Hvers vegna var Samfylkingunni og Framsókn refsað grimmilega í síðustu þing- kosningum hér heima – en hvorki Sjálfstæðisflokknum né Vinstri grænum? Vegir kjósenda eru órannsakanlegir. Kjósendur – að vísu ekki meiri hluti kjósenda á landsvísu heldur meiri hluti kjörmanna í úr sér gengnu kosningakerfi – tóku upp- reisnarmann í röðum repúblikana fram yfir fulltrúa flokkseigenda meðal demókrata. Kjósendur refs- uðu demókrötum m.a. fyrir að hafa rofnað úr tengslum við kjósendur eins og blaðamaðurinn Thomas Frank lýsir vel í nýrri bók, Listen, Liberal, og fyrir of náið samneyti við bankamenn á Wall Street sem höfðu næstum keyrt landið í kaf 2007-2008. Því fór sem fór. Tilmæli Trumps forseta fyrstu daga hans í embætti snúast nær öll um að endurreisa forréttindi handa einkavinum forsetans sem hefur umkringt sig með einsleitum hópi auðmanna. Tilmælin snúast m.a. um að slaka á umhverfisvernd með því að veita fyrirtækjum aftur rétt til að demba eitruðum úrgangi í ár og vötn, draga úr fjármála- eftirliti með því að veita bönkum aftur rétt til að féflétta grunlausa viðskiptavini o.fl. í þeim dúr. Varla var það þetta sem kjósendur voru að biðja um. Þetta er gamalt her- bragð: repúblikanar laða til sín kjósendur með því að lofa þeim að banna fóstureyðingar og nota þingstyrkinn síðan til að mylja enn frekar undir auðmenn eins og Thomas Frank lýsir í bók sinni What’s the Matter with Kansas?: How Conservatives Won the Heart of America. Þegar lygin hrífur Sömu tilhneigingar verður nú vart í Evrópu. Yfirvofandi úrsögn Breta úr ESB er angi á þessum meiði. Baráttan fyrir úrsögn í aðdraganda þjóðar atkvæðagreiðslunnar 2016 var að miklu leyti byggð á ósann- indum líkt og kosningabarátta Trumps í Bandaríkjunum. Lygin var hlaupin hringinn í kringum landið áður en sannleikurinn náði að reima á sig skóna. Og nú standa Frakkar frammi fyrir forsetaframbjóðanda Þjóð- fylkingarinnar, Marine Le Pen, sem berst fyrir úrsögn Frakka úr ESB. Aðalkeppinauturinn, François Fill- on, frambjóðandi hægri manna, á hendur sínar að verja gegn ásök- unum um spillingu, sams konar spillingu og stjórnmálastéttin þar í landi og víðar hefur gert sig seka um í stórum stíl. Jacques Chirac, forseti Frakklands 1995-2007, fékk skilorðsbundinn tveggja ára fangelsisdóm 2011 fyrir spillingu. Dómskerfið virkar. Skattaskjól ógna lýðræði Spilling í Evrópu og Ameríku tekur á sig ýmsar myndir. Ein þeirra leynist í skattaskjólum eins og franski hagfræðingurinn Gabriel Zucman, lektor í ríkisháskólanum í Berkeley í Kaliforníu, lýsir vel í nýrri bók, The Hidden Wealth of Nations. Zucman metur saman- lagðan fjárauð heimsins á tæpa 100.000 milljarða Bandaríkjadala. Af þessu fé eru 8.000 milljarðar geymdir í skattaskjólum (þar af um þriðjungur í Sviss), jafnvirði landsframleiðslu Íslands í næstum 500 ár. Það mega Frakkar þó eiga og aðrar Evrópuþjóðir að af 332 ráðherrum álfunnar fundust bara fjórir í Panama-skjölunum: einn á Möltu og þrír á Íslandi, en enginn á meginlandinu. Panama-skjölin vitna þó aðeins um hluta vandans. Panama er ekki eina skattaskjólið. Við bætist að stórfyrirtæki hafa svikið launþega um réttmæta hlut- deild í ávinningnum af aukinni alþjóðlegri verkaskiptingu og tækniþróun og grafið þannig undan almennum stuðningi við slíkar framfarir. Væri falið fé dregið fram í dagsljósið með samstilltu átaki og væri það skráð myndi tvennt gerast. Í fyrsta lagi myndu tekjur af þessum eignum verða skattlagðar líkt og aðrar fjármagnstekjur. Það myndi gerbreyta landslagi heims- búskaparins enda þótt eignar- skattar sem tíðkast óvíða nú orðið væru ekki teknir upp aftur. Í annan stað myndu tortryggni og úlfúð almennings gagnvart auðmönnum minnka og líkurnar á lýðræðislegu kjöri óheflaðra öfgamanna til for- ustu í stjórnmálum myndu einnig minnka. Til mikils er að vinna. Uppreisn kjósenda Þorvaldur Gylfason prófessor Í dag Repúblikanar á þingi höfðu gengið svo fram af mörgum kjósendum sínum að Donald Trump, alls óreyndur í stjórnmálum, gat tekið flokkinn yfir eins og að drekka vatn: þetta var óvinveitt yfirtaka eins og það heitir á viðskiptamáli. AÐALFUNDUR MAREL HF. 2017 Dagskrá: • Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins. • Skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu. • Tillaga um kaupréttarkerfi. • Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf. • Önnur mál, löglega borin fram. Fundarstörf munu fara fram á ensku. Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:00 laugardaginn 25. febrúar. Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði teknar þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en tíu dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 mánudaginn 20. febrúar. Á aðalfundarvef félagsins, www.marel.com/agm, er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðal-fundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2016, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu m.v. 8. febrúar 2017, umboðsform auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum sjö dögum fyrir fundinn á framangreindum aðalfundarvef félagsins sem og á skrifstofu félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ. Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang. Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15:30. Stjórn Marel hf. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15F i M M T u d a g u R 9 . F e B R ú a R 2 0 1 7 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :4 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 2 -E 8 F 4 1 D 1 2 -E 7 B 8 1 D 1 2 -E 6 7 C 1 D 1 2 -E 5 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 8 2 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.