Fréttablaðið - 09.02.2017, Síða 22
Í dag
19.00 Meistaradeild hesta Sport
20.00 AT&T Pebble B. Golfstöðin
Maltbikar karla, undanúrslit
17.00 Valur - KR Laugardalshöll
20.00 Þór Þ. - Grindavík Laugard.
Coca Cola-bikar kv., undanúrslit
19.30 Stjarnan - ÍBV TM-höllin
9 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r22 s p o r T ∙ f r É T T a b L a ð I ð
KörfUboLTI Undanúrslitaleikir
Malt bikars karla í körfubolta fara
fram í Laugardalshöll í dag en þar
mætast Reykjavíkurliðin KR og
Valur annars vegar og Grindavík
og Þór Þorlákshöfn hins vegar. KR-
ingar eru ríkjandi bikarmeistarar
eftir sigur á Þórsurum í fyrra en þeir
unnu þá sinn ellefta titil á meðan
Þorlákshafnarliðið var að komast í
úrslitaleikinn í fyrsta sinn.
Í ár er í fyrsta sinn úrslitavika
spiluð þar sem undanúrslitin og
úrslitaleikurinn fara fram í sömu
vikunni. Liðin eru komin í Höllina
en þurfa að vinna einn leik til þess
að komast á stóra ballið.
Auðvelt fyrir KR
Flestir búast við öruggum sigri KR
í Reykjavíkurslagnum enda liðið
Íslands- og bikarmeistari á meðan
Valur er í næstefstu deild. KR-liðið
hefur verið að hiksta að undanförnu
en þó ekki svo mikið að það tapar
ekki leik og trónir á toppi Dom-
ino’s-deildarinnar.
„Það er mjög auðvelt að spá KR
sigri því það er mun betra lið. Ef
KR-ingar mæta rétt stemmdir til
leiks því þeir gera alveg örugglega
þá vinna þeir leikinn. Ég hef engar
áhyggjur af því að KR vanmeti Val
því það er búið að lenda í vand-
ræðum upp á síðkastið eins og gegn
Hetti í bikarnum,“ segir Friðrik Ingi
Rúnarsson, nýráðinn þjálfari Kefla-
víkur, um leikinn en Fréttablaðið
fékk hann til þess að spá í spilin.
„Þetta er algjört ævintýri hjá
Val að vinna þrjú lið úr efstu deild
sem er ótrúlegt. Ég sagði við Gústa
[Ágúst Björgvinsson, þjálfara Vals]
um daginn að hann þyrfti að passa
að missa ekki sjónar á aðalmark-
miðinu sem er auðvitað að koma
Val upp í efstu deild. Það getur verið
erfitt fyrir unga leikmenn að drag-
ast inn í þetta bikarævintýri en ég
held að KR fari með sigur af hólmi
nokkuð örugglega.“
Má búast við spennu
Þórsarar stigu sín fyrstu skref í Höll-
inni í fyrra en Grindavíkingar hafa
töluvert meiri reynslu. Grindavík á
fimm bikarmeistaratitla að baki í
átta ferðum í úrslitaleikinn.
„Grindavík er tiltölulega gott
bikarlið og hefur verið mjög oft í
Höllinni. Ég þekki það nú sjálfur
eftir að vinna tvisvar sinnum með
Grindvíkinga,“ segir Friðrik Ingi.
„Þórsararnir voru þarna í fyrra
og spiluðu á löngum köflum vel í
þeim leik. Alltaf þegar lið eru búin
að gera eitthvað einu sinni hleðst
upp ákveðin reynsla þannig að
þeir vita meira út í hvað þeir eru
að fara núna. Þetta er algjör 50-50
leikur. Ég á mjög erfitt með að spá
um sigurvegara. Þetta er eiginlega
bara eins og að varpa hlutkesti. Ég
myndi segja svona 51 á Þór og 49 á
Grindavík.“ tomas@365.is
Spenna og
öruggur sigur
Undanúrslitaleikir Maltbikars karla fara fram í
Höllinni í dag. Friðrik Ingi Rúnarsson spáir í spilin.
Fyrirliðar liðanna fjögurra sem keppa í undanúrslitum Maltbikarskeppni karla í dag. Frá vinstri eru Benedikt Blöndal, Val, Þorleifur Ólafsson, Grindavík, Emil Karel Einars-
son, Þór, og Brynjar Þór Björnsson, KR. FRéTTABlAðið/EyÞÓR
Það getur verið
erfitt fyrir unga
menn að dragast inn í þetta
bikarævintýri.
Friðrik Ingi Rúnarsson,
þjálfari Keflavíkur
Fylkir - Fram 20-26
Mörk Fylkis: Thea Imani Sturludóttir
11, Christine Rishaug 4, Vera Pálsdóttir
2, Þórunn Friðriksdóttir 2, Hildur Karen
Jóhannsdóttir 1.
Mörk Fram: Sigurbjörg Jóhannsdóttir 7,
Ragnheiður Júlíusdóttir 6, Elva Þóra Arnar-
dóttir 4, Rebekka Rut Skúladóttir 3, Guðrún
Þóra Hálfdánsdóttir 2, Marthe Sördal 2,
Hildur Þorgeirsdóttir 2.
Afturelding - Haukar 14-26
Mörk Aftureldingar: Telma Rut Frímanns-
dóttir 3, Jónína Líf Ólafsdóttir 3, Þóra María
Sigurjónsdóttir 2, Paula Chinlá 2.
Mörk Hauka: Maria Ines Pereira 6, Guðrún
Erla Bjarnadóttir 4, Ramune Pekarskyte 4,
Ragnheiður Sveinsdóttir 3, Sigrún Jóhanns-
dóttir 2, Erla Eiríksdóttir 2, Karen Helga
Díönudóttir 2, Berta Rut Harðardóttir 1,
Selfosss, Fram og Haukar eru komin
í undanúrslitin.
Nýjast
Coca Cola-bikar kvenna
Keflavík - Haukar 82-67
Keflavík: Ariana Moorer 20/18 fráköst/6
stoðsendingar/5 stolnir, Emelía Ósk
Gunnarsdóttir 18/7 fráköst, Thelma Dís
Ágústsdóttir 9, Katla Rún Garðarsdóttir 9,
Birna Valgerður Benónýsdóttir 8/7 fráköst,
Þóranna Kika Hodge-Carr 7, Salbjörg Ragna
Sævarsdóttir 6/7 fráköst.
Haukar: Nashika Wiliams 37/15 fráköst/3
varin skot, Rósa Björk Pétursdóttir 13/4
fráköst, Dýrfinna Arnardóttir 7/4 fráköst,
Þóra Kristín Jónsdóttir 7/11 stoðsendingar,
Sólrún Inga Gísladóttir 3/4 fráköst
Skallagrímur - Snæfell 70-68
Skallagrímur: Tavelyn Tillman 20/8 stoð-
sendingar, Kristrún Sigurjónsdóttir 14/7
fráköst, Ragnheiður Benónísdóttir 12/9
fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 10/11
fráköst/5 stoðsendingar/5 varin skot, Sig-
rún Sjöfn Ámundadóttir 10/11 fráköst.
Snæfell: Aaryn Ellenberg-Wiley 27/10 frá-
köst, Berglind Gunnarsdóttir 13, Andrea
Björt Ólafsdóttir 10, Bryndís Guðmunds-
dóttir 7, Gunnhildur Gunnarsdóttir 7/9
fráköst, Alda Leif Jónsdóttir 2.
Maltbikar kvenna
stRÁKARnIR Í LAs VEGAs
Íslenska karlalandsliðið
í knattspyrnu lék
æfingaleik gegn
Mexíkó í Las
Vegas í Banda-
ríkjunum í nótt.
Leikurinn hófst
eftir að Frétta-
blaðið fór í prentun í
gærkvöldi en umfjöllun um leik-
inn má finna á íþróttavef Vísis. Um
vináttulandsleik var að ræða, þann
þriðja hjá lærisveinum Heimis
Hallgrímssonar á þessu ári.
VALDÍs FARIn AF stAð
Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra
Jónsdóttir hóf í gærkvöldi leik á
fyrsta móti ársins á Evrópumóta-
röðinni sem heitir Oates Vic Open.
Það mót fer reyndar fram í Ástr-
alíu og var skagamærin í fyrsta rás-
hópnum sem fór út klukkan 7 um
morguninn að staðartíma. Það var
klukkan 20.00 að íslenskum tíma.
Þegar Fréttablaðið fór í prentun
í gærkvöldi var Valdís Þóra búin að
leika sjö holur og var á einu höggi
undir pari.
nánari upplýsingar um gengi
Valdísar Þóru í Ástralíu má finna
á Vísi.
sport
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-1
A
5
4
1
D
1
3
-1
9
1
8
1
D
1
3
-1
7
D
C
1
D
1
3
-1
6
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K