Fréttablaðið - 09.02.2017, Síða 28
Pálmar segir að stíga þurfi varlega til jarðar í kringum karlmenn þegar kemur að skeggsnyrtingu. „Skeggjaðir karlmenn hugsa
mjög mikið um skeggið á sér og er alls ekki sama hvernig það er snyrt.“ Mynd/Auðunn níelSSon
„Ég tók hressilega U-beygju þegar
ég fór í hárgreiðsluna en ég byrj-
aði á að taka grunndeild málm-
iðna í Verkmenntaskóla Akureyr-
ar. Eftir hana ætlaði ég í gullsmíði
en komst ekki að og tók mér þá frí
frá skóla í eitt ár. Ég hafði alltaf
haft áhuga á hárgreiðslu en þegar
farið var að ýta á mig að læra þá
iðn var ég samt ekkert alveg á því,
þurfti að eiga við smá fordóma hjá
sjálfum mér út af einsleitri um-
ræðunni um að allir karlmenn í
hárgreiðsluiðn séu hommar. Það
er auðvitað bara kjaftæði,“ segir
Pálmar Magnússon hársnyrtir létt.
Hann sér ekki eftir þeirri U-
beygju enda hlaut hann viður-
kenningu fyrir framúrskarandi
árangur á sveinsprófi hjá Iðnað-
armannafélaginu í Reykjavík um
liðna helgi. Hann hafi sannarlega
fundið sína hillu á Rakarastofu
Akureyrar þar sem hann klippir
karla og snyrtir skegg. Það sé alls
ekki einhæft starf að klippa karla
þó flestir þeirra vilji tiltölulega
einfalda klippingu.
„Herraklippingar eru kannski
aðeins einfaldari en dömuklipp-
ingar, eða kannski má segja að
það sé einfaldara að díla við karl-
ana. Þeir vilja „bara fá klipp-
ingu“ meðan miklu meiri hugsun
er yfirleitt á bak við klippingu hjá
konum,“ segir hann sposkur. Þegar
kemur að skeggsnyrtingu þurfi þó
að stíga varlega til jarðar kring-
um karlmenn.
„Skeggjaðir karlmenn hugsa
mjög mikið um skeggið á sér og
er alls ekki sama hvernig það er
snyrt. Þegar stelpurnar eru að
safna hári má varla taka einn
sentimetra af því, þá er það „of
mikið“. Þessu er alveg eins með
karlana, þeim finnst einn senti-
metri allt of mikið þegar þeir
eru að safna skeggi og hafa mikl-
ar skoðanir á hvernig á að gera
þetta,“ segir Pálmar. „En það
verður að snyrta skegg, annars
verður það ekki fallegt. Auðvit-
að spá margir strákar mikið í
hártísku og ungir strákar fylgj-
ast vel með því hvað til dæmis
Ron aldo gerir við hárið á sér.
Eins og ég á þeirra aldri fylgdist
með hárinu á David Beckham. Ég
hafði alltaf skoðanir á því hvern-
ig hárið á mér átti að vera. Maður
var að setja í sig strípur og var
alltaf með gel í hárinu. Beckham
er reyndar enn þá leiðandi í hár-
tískunni í dag.“
Hefurðu gefið gullsmíðina upp
á bátinn?
„Ég bý að gullsmíðaáfanganum
sem kenndur var í málmiðninni á
sínum tíma. Ég er búinn að koma
mér upp aðstöðu heima hjá mér og
sinni þessu sem áhugamáli. Enda
á maður víst aldrei að læra áhuga-
málið, þá fær maður leiða á því.“
Körlunum eKKi
sama um sKeggið
Pálmar Magnússon hársnyrtir hlaut viðurkenningu á árlegri
nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík síðastliðinn
laugar dag. Hann fann sína hillu í skeggsnyrtingu og herraklipp-
ingum eftir að hafa lært logsuðu og málmsmíði. Hann segir
skeggjaða karlmenn hafa miklar skoðanir á skegginu á sér.
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Pámar Magnússon skipti úr málmsmíði
og logsuðu yfir í hár- og skeggsnyrt-
ingu og sér ekki eftir því. Hann hlaut
viðurkenningu Iðnaðarmannafélags-
ins í Reykjavík fyrir framúrskarandi
árangur á sveinsprófi.
Fa
rv
i.i
s
//
0
21
7
KRINGLUNNI | 588 2300
TÚNIKA
5.995
Kemur í bláu og svörtu
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga kl.
11–18
Opið laugardaga k
l. 11-15
900 kr.
1.900 kr.
2.900 kr.
3.900 kr.
4.900 kr.
ÚTSÖLULOK
Einungis 5 verð:
9 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r6 f ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X Xf ó l k ∙ k y n I n G a r b l a ð ∙ T í s k a
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-1
5
6
4
1
D
1
3
-1
4
2
8
1
D
1
3
-1
2
E
C
1
D
1
3
-1
1
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K