Fréttablaðið - 09.02.2017, Page 30
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Ólafur H. Hákonarson | olafurh@365.is | s. 699-5900
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
„Foreldrar eru fyrirmyndirnar í
lífi barnanna ásamt öðrum í nær-
fjölskyldunni og börnin sækja í það
sem þau sjá aðra borða. Sé venj-
an að skera niður ávexti og græn-
meti verður það eðlilegt fyrir börn-
in. Gott er að rýna vel í venjurn-
ar á heimilinu; borðar fjölskyldan
saman við matarborðið í rólegheit-
um eða fyrir framan sjónvarpið?
Eru foreldrarnir fastir við símann
og börnin skömmuð fyrir sömu
iðju? Eru kósíkvöld með snakki,
gosi og pitsum eða niðurskornum
ávöxtum og sódavatni? Er keypt ein
gosdós til spari á mann eða 2 lítra
kippa til að hafa með kvöldmatn-
um? Er kveikt á sjónvarpinu á
laugardags- eða sunnudagsmorgn-
um eða farið í sund eða göngutúra í
góðu veðri? Lífið er vissulega ekki
svarthvítt en við stöndum daglega
frammi fyrir mörgum ákvörðunum
þegar kemur að mat,“ segir Sigrún
en það er hlutverk foreldra að sníða
matarvenjur heimilisins.
„Gott er að hafa í huga að grunn-
skólabörn gera ekki innkaupin á
heimilinu heldur fullorðna fólkið,“
bætir hún við og Anna nefnir að
það sé aldrei of seint að skapa góðar
matarvenjur, breyta þeim eða bæta
en það geti vissulega kostað vinnu
af hálfu foreldra.
Þær segja almennt æskilegt að
velja matvæli sem eru rík af nær-
ingarefnum frá náttúrunnar hendi,
svo sem grænmeti, ávexti, ber,
hnetur, fræ, heilkornavörur, baun-
ir og linsur, feitan og magran fisk,
olíur, fituminni mjólkurvörur og
kjöt og svo vatn til drykkjar. „Við
mælum með að auka hlut græn-
metis og ávaxta í fæðu barnanna
og ekki gleyma D-vítamíninu, t.d.
úr lýsi. Sömuleiðis þarf að gæta að
saltmagni í mat ungra barna, en
það er best tryggt með því að velja
meira af hreinum vörum og forð-
ast mikið unnar vörur, þar á meðal
hvers konar nasl og pakkamat,“
segir Anna.
Ekki kalla börn matvönd
Spurðar hvað gott sé að gera til að
fá matvönd börn til að borða fjöl-
breytt fæði segja þær að á vef
foreldrar eru fyrirmyndin og skapa
góðar matarvenjur barna sinna
Sigrún Þorsteinsdóttir og anna Sigríður ólafsdóttir eru sérfróðar um næringu barna og vita hvernig hægt er að fá börn til að borða
hollan, fjölbreyttan og næringarríkan mat. Þær segja gott að hafa í huga að foreldrar sjá um innkaupin á heimilið en ekki börnin.
Landlæknisembættisins séu hag-
nýt ráð þar að lútandi. „Þar er
ákveðin lykilsetning sem er mik-
ilvægt að hafa að leiðarljósi til að
börn venjist fjölbreyttum mat. Full-
orðnir ráða hvað er í matinn og hve-
nær er borðað en börnin ráða því
hvort þau borða og hversu mikið.
Því oftar sem börnin hafa mat-
inn fyrir augunum og því eðlilegri
hluti sem hann verður af umhverfi
þeirra, þeim mun líklegra er að þau
fari að smakka og loks þykja eitt-
hvað gott,“ segir Anna. „Bjóða upp
á fjölbreytt fæði og ekki tala um að
þau séu matvönd. Sé barni sagt að
það sé matvant er ólíklegt að það
breytist,“ segir Sigrún.
Tekur tíma að venjast grænmeti
Sigrún og Anna tala um að flest-
um börnum finnist ávextir góðir
og auðvelt sé að fá þau til að borða
fjölbreytt úrval ávaxta ef þeir eru
í boði. Grænmeti sé aftur á móti
flóknara þar sem bragðið höfði ekki
endilega til barnanna á sama hátt
og sæta bragðið í ávöxtunum. „Al-
mennt tekur lengri tíma að venjast
beisku bragði og því bragðmeira
sem grænmetið er, þeim mun fleiri
tilraunir þarf til að venjast bragð-
inu og þykja það gott. Eðlilegt er
að börn þurfi að smakka nýja fæðu
í allt að 15 skipti áður en þeim fer
að hugnast hún. Því má ekki gefast
upp þótt fúlsað sé við grænmetinu
í fyrstu,“ segir Anna.
„Börn hafa gaman af því að fá
að leika svolítið með grænmetið
og ávextina og um að gera að leyfa
þeim að búa til grænmetisandlit
úr gúrkum, paprikum, kirsuberja-
tómötum og gulrótum eða skrifa
nafnið sitt með gúrku- eða gul-
rótarstrimlum hafi þau aldur og
þroska til. Mörgum börnum þykir
áferðin á soðnu grænmeti ógirni-
leg og þá má bjóða þeim niðurskor-
ið hrátt grænmeti í staðinn. Sumum
börnum þykir það betra soðið og þá
má bjóða þeim það í staðinn fyrir
hrátt,“ segir Sigrún.
Of mikið nammi á nammidögum
Margir hafa nammidaga um helg-
ar en Sigrún og Anna segja nammi-
magnið orðið vandamál. „Einu sinni
var hlutverk nammidaga að stilla
sætindum í hóf en þeir hafa snúist
upp í andhverfu sínu með því mikla
magni sem innbyrt er hverju sinni.
Hófstillt magn er lykilatriði. Erfitt
er að útrýma nammidögum ef vin-
irnir eru vanir að hafa nammidaga.
Við mælum með að börnin horfi á
vikuna í heild. Ef boðið er í afmæli
og aðrar veislur þarf að gera ráð
fyrir sætu bitunum þar og þá ólík-
legt að einnig sé pláss fyrir nammi
á nammidegi,“ segir Anna.
Þær leggja áherslu á að börn
ættu aldrei að heyra neitt neikvætt
um líkama sinn frá foreldrum,
systkinum, ættingjum eða öðrum.
„Þau geta tekið það mjög nærri sér,
meira að segja þó það sé bara eitt
orð eða eitt „djók“, segir Sigrún.
„Athugasemdir varðandi vaxtar-
lag barna eða útlit eru ekki einung-
is óþægilegar fyrir þau og um leið
vanvirðing, heldur getur það vakið
mikinn kvíða hjá börnum, sér í lagi
hjá þeim sem eru viðkvæm fyrir.
Erfitt getur verið að eiga við stríðni
í skólum og er það miður en við
getum allavega styrkt þau heima
fyrir og áréttað það við aðra fjöl-
skyldumeðlimi að leggja áherslu
á líkamsvirðingu og styrkleika
barnanna frekar en veikleika. Öll
börn hafa styrkleika og þó maður
sé í offitu, þýðir það ekki að maður
sé verri manneskja,“ segir Anna.
anna Sigríður er prófessor í næringarfræði við menntavísindasvið Háskóla Íslands og Sigrún er klínískur barnasálfræðingur
með mSc í heilsusálfræði. Þær starfa í teymi hjá Heilsuskóla barnaspítalans við að bæta heilsu barna með offitu sem hafa oft
þróað með sér fylgikvilla af hennar völdum. mynd/gVa
Sigríður inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni, Kjarval og Húsasmiðjunni
...ómissandi í eldhúsið!
Jólagjöfin í ár - Algör snilld!
Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma
• Klippir plastfilmur og ál
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setja í uppþvottavél
Engar flæk
jur
Ekkert vese
n
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni, Kjarval og Húsasmiðjunni
...ómissandi í eldhúsið!
Jólagjöfin í ár - Algör snilld!
Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma
• Klippir plastfilmur og ál
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setja í uppþvottavél
Engar flæk
jur
Ekkert vese
n
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni, Kjarval og Húsasmiðjunni
...ómissandi í eldhúsið!
Jólagjöfin í ár - Algör snilld!
Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma
• Klippir plastfilmur og ál
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setja í ppþvottavél
Engar flæk
jur
Ekkert vese
n
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fæst í FK, Hagkaupum, Byko, Nettó, Krónunni, Kjarval og Húsasmiðjunni.
• Klippir álfilmur og plast
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setj í up vottavél
• Afar auðvelt í notkun
...ómissandi í eldhúsið!
www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is
Yfir 300 vörutegundir
fyrir veitingastaði,
mötuneyti og fyrir þig !
gott er að rýna
vel í venjurnar á
heimilinu. eru foreldr-
arnir fastir í símanum?
Sigrún Þorsteinsdóttir
Hollt og bragðgott Kynningarblað
9. febrúar 20172
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-0
1
A
4
1
D
1
3
-0
0
6
8
1
D
1
2
-F
F
2
C
1
D
1
2
-F
D
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K