Fréttablaðið - 09.02.2017, Page 32
Veitingastaðurinn Kínahofið
fagnar 30 ára afmæli á þessu ári
en hann er sennilega elsti asíski
veitingastaðurinn á höfuðborgar-
svæðinu og þótt víðar væri leit-
að. Kínahofið var lengstum rekið
af tveimur bræðrum en fyrir sex
árum keypti núverandi eigandi,
Karen Lien Nguyen, veitinga-
staðinn og hefur hún leitast við
að bæta allt sem hægt er í rekstr-
inum.
„Eftir 30 ára starfsemi þurfti
eðlilega að huga að ýmsum breyt-
ingum og endurnýjunum eins og
eðlilegt er. Ég vildi stækka hús-
næðið og þá myndaðist kjörið
tækifæri til að taka allan staðinn
í gegn. Nú hefur bókstaflega allt
verið endurnýjað, t.d. í eldhúsinu,
í veitingasalnum, á snyrtingun-
um og svo gefur nýi barinn okkar
alveg sérstakan svip.“
Matseðill Kínahofsins er mjög
langur og fjölbreyttur en hann
hefur lítið breyst í áranna rás.
„Við viljum ekki breyta of
miklu vegna viðskiptavina okkar
sem biðja oft um það sama ár
eftir ár og líkar því eðlilega mat-
urinn mjög vel.
Einkenni asískrar matargerðar
er einna helst að þar allt er eldað
ferskt og því er nánast ekkert til-
búið fyrirfram. Það felst mikil
vinna í að skera niður hráefni og
hafa tilbúið til eldunar en elda-
mennskan fer ekki fram fyrr en
viðskiptavinur biður um ákveð-
inn rétt.“
Hlaðborð alla daga
Sú nýbreytni er nú í boði hjá Kína-
hofinu að boðið er upp á hádegis-
hlaðborð alla daga, einnig um
helgar. „Hádegishlaðborðin eru
vinsæl á virkum dögum hjá fjöl-
breyttum hópi viðskiptavina og
svo er tilvalið fyrir fjölskyldur að
nýta sér hlaðborð um helgar. Opn-
unartíminn er einnig breyttur og
nú er veitingastaðurinn opinn frá
kl. 11-22 alla daga vikunnar.“
Kínahofið er nýlega farið að
bjóða upp á veisluþjónustu en þá
mæta starfsmenn með réttina í
hitabökkum á staðinn þar sem
gestir geta skammtað sér að vild.
„Þetta getum við gert fyrir fjöl-
skylduboð, fyrirtækjaveislur eða
vinahópa sem vilja breyta til.
Einnig er hægt að panta alls kyns
rétti af matseðli okkar og við setj-
um saman veislu með viðskipta-
vininum eftir hans óskum.“
Nánari upplýsingar og fjölbreytt-
an matseðil má finna á www.kina-
hofid.is.
Bragðgóður
matur í 30 ár
Kínahofið í Kópavogi hefur boðið landsmönnum upp á
fjölbreytt úrval af kínverskum mat í 30 ár. Nú hefur
staðurinn verið opnaður aftur eftir breytingar og býður
m.a. upp á girnilegt hádegishlaðborð alla daga vikunnar.
Nýi barinn setur skemmtilegan svip á útlit Kínahofsins. MYND/STEFÁN
Veitingasalurinn er rúmgóður og boðið er upp á hádegishlaðborð alla daga
vikunnar. MYND/STEFÁN
hollT og BragðgoTT Kynningarblað
9. febrúar 20174
Gyða Erlingsdóttir starfar sem
flugfreyja hjá Icelandair og yfir-
þjálfari í Víkingaþreki í Mjölni.
Hún er IAK þjálfari og Level II
kettlebells instructor frá Steve
Maxwell. Dagarnir eru oft anna-
samir hjá Gyðu. Henni líður best
af hollum og næringarríkum mat
og til að hann sé til taks þegar hún
flýgur yfir höf útbýr hún nesti fyrir
hvern dag. Gyða féllst á að svara
nokkrum spurningum um mataræði
og hreyfingu og gefa góð ráð.
Hvað æfir þú oft í viku? Ég æfi
um það bil þrisvar til fimm sinnum
í viku en það er þó mjög mismun-
andi eftir vikum. Þegar ég er að
fljúga gefst minni tími. Þá er gott að
kunna (og nenna!) að taka einfalda
æfingu inni á hótelherbergi. Ann-
ars mæti ég í Mjölni og tek ýmist
krefjandi víkingaþreksæfingu eða
eitthvað mýkra eins og jóga.
Hver er uppáhaldsæfingin þín?
Það er ekki einfalt að velja eina.
Pínu eins og að eiga að gera upp
á milli barnanna sinna. En ef ég
ætti að nefna einhverja eina væri
það líklega „swing“ með ketil-
bjöllu. Hún er svo margþætt og
reynir bæði á styrk og úthald. Svo
er planki líka frábær og vanmetin
æfing sem hægt er að gera alls
staðar og í mörgum útgáfum. Það
ættu allir að planka í nokkrar mín-
útur á dag. Það styrkir til dæmis
djúpu kviðvöðvana, axlir og bak og
stuðlar að góðri líkamsstöðu.
Aðhyllist þú eitthvert ákveðið
mataræði? Ég er alltaf að verða
meðvitaðri um það hvað það sem
við látum ofan í okkur hefur mikil
áhrif á skapið, orkuna, svefninn og
heilsuna almennt. Sem krakki gat
ég borðað hvað sem var en samt
haft orku til að hamast allan lið-
langan daginn. Núna finn ég að
mér líður langbest og hef mesta
orku þegar ég borða hollan og
góðan mat. Ég borða mikið af
grænmeti, grófu brauði, ávöxtum,
hollum kolvetnum og prótínum. Ég
er þó alls ekki á einhvers konar
ströngum matarkúr og fæ mér
kökusneið eða súkkulaði þegar það
er í boði ef mig langar til.
Er eitthvað sem þú forðast? Ég
forðast ekkert eins og heitan eld-
inn nema það sem mér finnst vont
eða líður illa af. Ég er svo heppin
að finnast gos vont og óþægilegt
í maga. Ég drekk eiginlega bara
vatn, kaffi og te til skiptis. Ég
sleppi því líka algjörlega að nota
hvítan sykur í það sem ég útbý
heima hjá mér. Ég nota heldur
döðlur eða banana til að fá sætu í
baksturinn. En annars er ekkert á
neinum sérstökum bannlista.
Getur þú lýst dæmigerðum mat-
seðli yfir daginn? Segjum að
þetta sé dagur þar sem ég er ekki í
flugi og hef góðan tíma til að græja
mat.
Morgunmatur: Kaffi og banana-
pönnukökur (banani, hafrar og 2
egg hrærð saman og steikt)
Hádegismatur: Kínóa með svört-
um baunum, sætum kartöflum og
alls konar grænmeti. Mjög gott að
setja tamari-sósu út í kínóað þegar
það sýður til að fá gott bragð.
Kvöldmatur: Grófar tortillur með
salsa, salati, restinni af hádegis-
matnum, oumph og guacamole.
Desert: Sjeik með banana- og
hnetusmjörsbragði. Þetta er einn
besti eftirréttur sem ég veit um.
(Takið tvo frosna banana, 1,5 dl
mjólk (ég nota haframjólk), 4 döðl-
ur og stóra matskeið af hnetu-
smjöri. Setjið allt í góðan blandara
eða matvinnsluvél og blandið vel
saman).
Hvað borðar þú milli mála? Mér
finnst mjög gott að græja tvö lítil
nestisbox fyrir millimál yfir dag-
inn. Í annað þeirra set ég niður-
skorið grænmeti eins og gulrætur,
blómkál, papriku, tómata eða bara
það sem ég á í ísskápnum. Í hitt
boxið set ég blöndu af alls konar
hnetum og fræjum og yfirleitt smá
súkkulaði með. Svo er ég alltaf með
banana og epli í nestistöskunni.
Hefur þú sett þér markmið fyrir
Meistaramánuð? Ég strengdi
þess heit um áramótin að útbúa
nesti fyrir hvern dag og ætla að
halda því áfram í Meistaramánuði.
Þetta hljómar kannski eins og lítið
og létt markmið en það getur verið
mjög krefjandi þar sem sumir
dagar hefjast klukkan sex, ef ég á
að mæta í morgunflug, og klárast
ekki fyrr en 21 ef ég er að þjálfa.
Þetta krefst því fyrirhyggju en
gerir mér kleift að hafa hollan og
góðan mat við höndina allan dag-
inn og heldur mér frá skyndibit-
anum og flugvéla-baguettum.
Er átak á borð við Meistaramán-
uð gagnlegt fyrir þá sem huga
að heilsunni? Átak getur reynst
vel til að koma sér upp venjum sem
eru góðar fyrir heilsuna. Það þarf
samt að passa að hafa markmiðin
í hvers kyns átaki raunhæf og að
ætla sér ekki að breyta of miklu í
einu. Meistaramánuður gefur fólki
líka tækifæri til að segja öðrum
frá markmiðum sínum sem hjálp-
ar til við að halda þau út.
Lumar þú á einhverjum góðum
heilsuráðum? Já. Ég hef komist
að því af eigin reynslu að besta
leiðin til að bæta heilsuna er ekki
að banna sér hitt og þetta heldur
að koma nýjum venjum inn í
rútínuna. Í stað þess að segja: „Í
febrúar ætla ég ekki að borða neitt
nammi,“ er til dæmis betra að
segja: „Í febrúar ætla ég að borða
fimm skammta af ávöxtum og
grænmeti á hverjum degi.“ Smám
saman kemur svo góða venjan inn
í staðinn fyrir hina.
alltaf með eitthvað hollt við höndina
Einkaþjálfarinn og flugfreyjan Gyða Erlingsdóttir setti sér það markmið að útbúa nesti fyrir hvern dag í upphafi árs. Hún ætlar að halda því
áfram í Meistaramánuði. Hún segir að það geti verið krefjandi en að það geri henni kleift að hafa hollan mat við höndina allan daginn.
gyða á erfitt með að gera upp á milli æfinga í uppáhaldi. Swing með ketilbjöllu er þó ofarlega á lista enda hefur hún marg-
þætta verkun og reynir bæði á styrk og úthald. MYND/gVa
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
2
-E
D
E
4
1
D
1
2
-E
C
A
8
1
D
1
2
-E
B
6
C
1
D
1
2
-E
A
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K