Fréttablaðið - 09.02.2017, Qupperneq 36
hollt og bragðgott Kynningarblað
9. febrúar 20178
Grísk jógúrt nýtur mikilla vinsælda
um þessar mundir. Á vefsíðunni
authoritynutrition.com eru taldir
upp fimm kostir grískrar jógúrtar.
1. hún hefur hærra prótein
innihald
Í grískri jógúrt eru 9 grömm af
próteini í 100 g. Það er þrisv-
ar sinnum meira en í venjulegri
jógúrt.
2. hún er kolvetnasnauðari
Grísk jógúrt er búin til með því
að fjarlægja mysu úr venju-
legri jógúrt, en í mysu er laktósi/
mjólkursykur. Því er grísk jógúrt
með færri kolvetni en sú hefð-
bundna.
3. hún þykir góð í maga
Líkt og hefðbundin jógúrt eru
í grískri jógúrt hollar bakteríur
sem eru góðar fyrir heilsuna, sér
í lagi fyrir meltingarstarfsemina.
4. grísk jógúrt er uppspretta
b12vítamíns
B12 er mikilvægt vítamín sem
hefur áhrif framleiðslu rauðra
blóðkorna og starfsemi tauga-
kerfisins. Grísk, líkt og hefð-
bundin, jógúrt er rík af B12-víta-
míni.
5. Minni laktósi
Margir hafa óþol fyrir laktósa/
mjólkursykri en geta þolað lítið
magn af því í fæðu. Þar sem grísk
jógúrt inniheldur lítinn mjólkur-
sykur er hún betri kostur fyrir þá
sem hafa óþol.
Fimm kostir
grískrar jógúrtar
Á einum þriðja af disknum ætti alltaf að
vera grænmeti og eða ávöxtur, einn þriðji
kolvetnagjafar á borð við gróft kornmeti,
bygg, hafra, heilkorna brauð, heilhveiti-
pasta og kartöflur og einn þriðji prótein-
gjafar eins og fiskur, kjöt, egg, baunir eða
mjólkurmatur. Með hækkandi aldri má
auka grænmetisskammtinn og láta hann
taka yfir hluta af plássi annarra kolvetna-
gjafa enda gefur grænmetið líka kolvetni.
Börn þurfa að borða reglulega yfir
daginn; morgunmatur, hádegismatur og
kvöldmatur ættu að vera fastir liðir og
flest börn þurfa eitthvað í gogginn á 2 til
3 klukkustunda fresti. Það kallar á milli-
bita milli máltíða bæði að morgni og síð-
degis. Auðveldara er að fá börn til að
borða vel ef kvöldmaturinn er snemma
og þá komum við í veg fyrir nartið síð-
degis.
Diskamódelið ætti að hafa í huga í
hvert sinn sem borðað er. Þannig ætti
grænmeti eða ávöxtur að vega þungt
í hvert skipti sem eitthvað er borð-
að, og hentar vel einnig vel milli mála ef
svengdin kallar ekki á eitthvað meira.
Diskurinn er gott viðmið fyrir allar máltíðir
Niðurskornir ávextir, grænmeti
og grófmeti er tilvalið í nestisbox-
ið, ásamt eggjum og lófafylli af
þurrkuðum ávöxtum á borð við
mangó, rúsínur, gráfíkjur og döðl-
ur, að sjálfsögðu án viðbætts syk-
urs. Hnetur eru líka góður kost-
ur en hafa ber í huga að á mörgum
stöðum eru þær ekki leyfðar vegna
ofnæmis.
Hrökkbrauð með fræjum, sól-
kjarnabrauð, gróft brauð, hummus
og fleira í þeim dúr er einnig gott
að hafa í nesti. Forðast ætti sykr-
aða mjólkurdrykki, safa, orku-
drykki, próteinstangir og orku-
stangir, ekki síst ef nestið er ætlað
börnum.
Fjölbreytt nesti í
skóla og vinnu
Eftir að bækurnar okkar Heilsuréttir fjölskyldunnar
og Nýir heilsuréttir komu út kom í ljós að fólk hefur
því miður ekki alltaf tíma til þess að elda næringar-
ríkan mat frá grunni eins og það vildi gera, m.a.
til þess að forðast aukaefni og of mikinn sykur.
Þannig að fljótlega varð okkar næsta verkefni að
búa til heilsurétti án aukaefna, viðbætts sykurs,
eins og maturinn væri í raun matreiddur í eld-
húsinu heima, en samt hægt að kaupa tilbúna
úti í búð. Nú eru komnir tveir nýir réttir frá okkur,
Grænmetispottréttur með viðbættu Omega-3
og Fiskibollur með viðbættu Omega-3. Bragðgóðir
réttir, fullir af þarflegum næringarefnum.
Bestu kveðjur, Berglind og Siggi.
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
3
-0
6
9
4
1
D
1
3
-0
5
5
8
1
D
1
3
-0
4
1
C
1
D
1
3
-0
2
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K