Fréttablaðið - 09.02.2017, Qupperneq 44
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Gerða T. Garðarsdóttir
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Hólabraut 15,
lést föstudaginn 3. febrúar.
Við þökkum starfsfólki Hrafnistu fyrir
góða umönnun og hlýju í hennar garð. Útför hennar fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 10. febrúar kl. 15.
Elsa Aðalsteinsdóttir
Björn Árnason
Auðunn Gísli Árnason Fríða J. Jónsdóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Guðrún Matthíasdóttir
myndlistarmaður,
Suðurlandsbraut 62, Reykjavík,
lést sunnudaginn 5. febrúar á
hjúkrunar heimilinu Mörk. Útför
hennar fer fram frá Kristskirkju í Landakoti þriðjudaginn
14. febrúar kl. 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Sigurður St. Helgason
Matthías Sigurðarson Dalla Ólafsdóttir
og barnabörn.
1788 Jósef II lýsir stríði á hendur Tyrklandi fyrir hönd Austurríkis.
1849 Lýst er yfir stofnun lýðveldisins Rómar undir stjórn Giuseppe
Mazzini.
1962 Jamaíka verður sjálfstætt ríki innan Breska samveldisins.
1964 Bítlarnir koma fram í fyrsta sinn í beinni útsendingu í amer-
ísku sjónvarpi í skemmtiþætti Eds Sullivan.
1971 Jarðskjálfti í grennd við Los Angeles í Bandaríkjunum verður
a.m.k. 64 að bana.
1984 Maður með lambhúshettu rænir útibú Iðnaðarbankans í
Breiðholti og kemst undan með 400.000 krónur.
1991 Um það bil 90 prósent kjósenda í Litháen kjósa að rjúfa
tengslin við Sovétríkin.
MERKISATBURÐIR
Í dag er 67 ára afmæli herferðar bandaríska öldunga-
deildarþingmannsins Josephs R. McCarthy gegn
kommúnisma. Árið 1950 hélt McCarthy ræðu í Wheeling
í Vestur-Virginíu þar sem hann sakaði yfir 200 starfsmenn
utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um kommúnisma.
Hann veifaði plaggi sem átti að vera með nöfnum svikar-
anna. Tveimur dögum síðar skrifaði hann Harry Truman
Bandaríkjaforseta bréf og sagðist hafa komið saman lista
með 57 kommúnistum. 20. febrúar sama ár hélt hann
svo sex tíma ræðu í þinginu þar sem hann vísaði til um 80
manna sem hann sagði vera kommúnista.
Hann nafngreindi engan, en þó mátti þekkja fólkið.
Í framhaldinu var sett á stofn undirnefnd til að kanna
ásakanir McCarthys, en þá hafði listinn skroppið saman
í 10 nöfn. Ásakanirnar voru ekki staðfestar, en margir
misstu vegna þeirra vinnuna eða æruna. McCarthy varð
mjög vinsæll fyrir nornaveiðar sínar og þegar hæst stóð
samþykktu 25 ríki Bandaríkjanna lög sem bönnuðu
samtök kommúnista. Ekki fór að halla undan fæti
hjá honum fyrr en hann beindi spjótum sínum
að Bandaríkjaher. Almenningur snerist svo gegn
honum eftir sjónvarpsyfirheyrslur yfir hermönnum
sem hann sakaði um kommúnisma án þess að
geta fært sönnur á mál sitt. Árið 1954 fékk
McCarthy ávítur þingsins fyrir framgöngu
sína. Hann hallaði sér
að flöskunni og dó
svo árið 1957.
þ etta g e r ð i st 9 . f e b rúa r á r i ð 1 9 5 0 :
McCarthy hóf nornaveiðar sínar
1950 Joseph R.
McCarthy hóf
herferð sína gegn
kommúnisma.
Mynd/Getty
„Hún hafði mikla yfirburði í kjörinu en
þetta voru átta pör eða einstaklingar sem
hægt að var að kjósa á milli í ár. Hún rúll-
aði þessu upp,“ segir ritstjóri austurfréttar,
gunnar gunnarsson, en hann veitti þór-
unni Ólafsdóttur viðurkenninguna aust-
firðingur ársins 2016.
„Við byrjum á að láta fólk tilnefna
þá sem koma til greina og rökstyðja af
hverju viðkomandi hafa skarað fram úr
á árinu. svo setjum við könnun á netið,“
segir gunnar um kosningaferlið. „Hún var
einnig tilnefnd í fyrra og var með drjúgan
hluta atkvæða þá en ekki hlutskörpust í
það sinn.“
þórunn var kosin austfirðingur ársins
2016 annars vegar vegna hjálparstarfs síns
með flóttamönnum og hins vegar fyrir að
vekja athygli á kynferðislegri áreitni í garð
fiskvinnslufólks.
þórunn skrifaði í mars á seinasta ári
grein um kynferðislega áreitni sem við-
gekkst á hennar fyrsta vinnustað, í fisk-
vinnslu Loðnuvinnslunnar á fáskrúðs-
firði, og í fréttatilkynningu frá austurfrétt
kemur fram að þórunn hafi verið hikandi
við að birta hana. „Mér fannst mjög ógn-
vekjandi að birta hana, var með hnút í
maganum og svaf lítið nóttina áður en
hún birtist. Viðbrögðin eiga það til að
verða ofsafengin þegar stungið er á svona
kýli.“
eins talaði hún um starf sitt með flótta-
mönnum í fréttatilkynningunni. „annars
vegar sýnir þessi viðurkenning að málefni
fólks á flótta eru samfélaginu hugleikin og
það þykir mér gott. Persónulega finnst mér
hjálparstarfið mjög sjálfsagður hlutur og
ég hef sagt það áður að mér þyki smá ógn-
vekjandi þegar þessi borgaralega skylda að
hjálpa öðrum sé orðin að einhvers konar
hetjudáð,“ sagði þórunn, sem er formaður
samtakanna akkeris sem aðstoða og vekja
athygli á málefnum flóttafólks.
þetta mun vera í fimmta sinn sem aust-
urfrétt stendur fyrir kosningu um aust-
firðing ársins. „Við veljum austfirðinga í
breiðu samhengi, þetta snýst ekki endilega
um að fólk búi hérna á svæðinu, þórunn
er t.d. uppalin hér en býr ekki á svæðinu.
Hún hefur líka verið á flakki um heiminn
undanfarin ár,“ segir gunnar og vekur svo
athygli á að þetta er þriðja árið í röð sem
kona hlýtur viðurkenninguna.
gudnyhronn@365.is
Var með yfirburði í kjörinu
Þórunn Ólafsdóttir frá Fáskrúðsfirði var kosin Austfirðingur ársins 2016 af lesendum
Austurfréttar og var afhent viðurkenning í vikunni. Þórunn var kosin bæði fyrir störf
sín til hjálpar flóttamönnum og fyrir pistil sinn um kynferðislega áreitni.
Gunnar afhenti Þórunni viðurkenningarskjal frá Austurfrétt, bókina Hesta eftir Pétur Behrens og gjafabréf fyrir tvo á Gistihúsinu á egils-
stöðum.
Okkar einlægustu þakkir fyrir samúð
og hlýju við fráfall okkar ástkæru
Kristínar Þorsteinsdóttur
kennara.
Starfsfólki og vinum á Sóltúni 2
sendum við sérstakar þakkir.
Alúð ykkar var einstök.
Sólveig Þórarinsdóttir Þórður Þórðarson
Rannveig Þórarinsdóttir Stefán Stefánsson
Katrín Mixa
Sigrún Þorsteinsdóttir Örn Þorsteinsson
ömmubörn og langömmubarn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, sonur og bróðir,
Gísli Pálsson
sem lést 2. febrúar,
verður jarðsunginn í dag, 9. febrúar,
kl. 15.00 frá Fríkirkjunni í Reykjavík.
Madalena Zandamela
Jón Kristófer Adele Alexandra
Páll Gíslason Borghildur Maack
Vera Pálsdóttir og Nanda Maack Murangi
Ástkær dóttir, móðir og systir okkar,
Erla Lóa Ástvaldsdóttir
lést á sjúkrahúsi á Ítalíu
þann 7.2. 2017.
Útförin verður auglýst síðar.
Ástvaldur Eiríksson
Linda og Carlo
Marco og Veronica
Erika og Edo
Ólafur og Lára
Lárus og Kristín
Helga og Ágúst
og fjölskyldur.
Hún var einnig tilnefnd
í fyrra og var með
drjúgan hluta atkvæða.
9 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r24 T í M a M ó T ∙ f r É T T a b L a ð I ð
tímamót
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
3
-1
5
6
4
1
D
1
3
-1
4
2
8
1
D
1
3
-1
2
E
C
1
D
1
3
-1
1
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K