Fréttablaðið - 09.02.2017, Page 54
KviKmyndir
La La Land
HHHH Leikstjóri: Damian Chazelle
Framleiðendur: Fred Berger, Marc
Platt, Jordan Horowitz
Handrit: Damian Chazelle
Tónlist: Justin Hurwitz
Kvikmyndataka: Linus Sandgren
Aðalhlutverk: Emma Stone, Ryan
Gosling, Rosemarie DeWitt
Glansandi Hollywood-söngleikir
hafa aldrei almennilega dáið út en
oft og reglulega átt það til að leggj-
ast í dvala. Seinast komust þeir í
tísku rétt eftir aldamótin þegar
myndir eins og Moulin Rouge og
(hin miður ofmetna) Chicago létu
til sín taka og heilluðu Óskars-
nefndir. Með tilkomu og velgengni
myndarinnar La La Land er nokkuð
ljóst að búið sé að opna flóðgátt-
irnar aftur fyrir fleiri söngva- og
dansmyndir á næstunni.
La La Land er önnur mynd leik-
stjórans Damians Chazelle í fullri
lengd. Frumraun hans frá árinu
2014, Whiplash, var ein af allra
bestu myndum þess árs og hérna
sannast að Chazelle er ekki bara
afar hæfileikaríkur þegar kemur
að samsetningu og leikarasam-
spili, sögum um metnað, drauma
og fórnir, heldur undarlega fjöl-
breyttur líka. Með La La Land mat-
reiðir hann ákaflega ljúfsára, lokk-
andi og skemmtilega mynd sem á
rætur sínar að rekja til Hollywood-
söngleikja gullaldartímans og
frönsku perlunnar Les Para pluies
de Cherbourg (sem þessi mynd fær
ýmislegt „lánað“ frá). Útkoman er
bæði nokkuð einstök og dæmi-
gerð, en einlægnin stendur upp úr
og aðeins áhorfendur með verstu
söngleikjafóbíu munu stand-
ast þessa heillandi umgjörð að
ógleymdri orku parsins á tjaldinu.
Emma Stone og Ryan Gosling
hafa núna þrisvar sinnum sýnt það
hversu vel það fer þeim að vinna
saman, einu sinni í krúttkómedí-
unni Crazy Stupid Love og seinna
í misheppnuðu glæpamyndinni
Gangster Squad. Kemistría þeirra
hefur kraftinn til þess að bæta
fyrir ýmsa handritsgalla, virðist
vera, en sjálfsagt að frátalinni Bird-
man hefur Emma aldrei nokkurn
tímann staðið sig betur en hér. Að
jafnaði hefur hún átt auðvelt með
að vera heillandi og viðkunnanleg
en hér tekst henni einnig að nýta
stórfín raddbönd sín. Hún lífgar
upp á klisjukennda persónu og
gerir hana bæði elskulega og sterka.
Gosling er ekki mikið síðri, fyrir
utan það að söngrödd hans er ekki
alveg að smella. Sem betur fer er
hún sparlega notuð, annars væri
kjánahrollurinn nær því svæði
sem Pierce Brosnan tileinkaði sér
í Mamma Mia!. Það er svæði sem
enginn vill vera á.
Hins vegar fer ekki á milli mála
að flottustu „danshæfileikar“
myndarinnar eru í höndum upp-
tökumannsins Linus Sandgren.
Myndavélin svífur með glæsibrag
í gegnum aðlaðandi og vel æfð
númer, auk þess að leyfa heilum
senum að spilast oft út í óslitnum
tökum. Litanotkunin er líka meiri-
háttar, sem og búningar og allt sem
viðkemur því að fanga rétta andann
og gefa nútíma sögusviðinu mjög
gamaldags svip, enda fortíðarþrá
eitt af lykilþemum sögunnar.
Myndin rýkur af stað með eld-
hressu og aðdáunarverðu opnunar-
atriði, sem gefur reyndar bjartari og
ýktari tón heldur en við fáum síðan
út restina af myndinni og fyrir
vikið kannski ekki alveg í réttum
takti við efnið. Síðan virðist eins og
það gleymist í óvenju langan tíma
að myndin sé í rauninni söngleikur,
rétt í kringum miðbikið. Fátt er í
söguþræðinum sem kemur á óvart
en lykilatriðið er að við tengjumst
parinu og höldum upp á baráttu
þeirra við að eltast við drauma sína.
Af þessum stærstu Óskarstil-
nefndu myndum í ár er ekkert sem
getur slegið út gæði hinnar ómót-
stæðilegu Moonlight, en La La Land
réttlætir tilvist sína og tilnefninga-
hlass með talsverðum sjarma, botn-
lausri umhyggju fyrir efninu og
græðir sitt hvað á því að leika sér
að litlum klisjum og forðast meló-
dramatík. Lögin mættu mörg vera
örlítið eftirminnilegri en hjartað
slær fast í þessu kvikindi og tilfinn-
ingin eftir stórglæsilegt lokaatriði
varir lengi að áhorfi loknu. Gott
bíó.
Tómas Valgeirsson
niðurstaða: Ljúfsár og yndislegur
óður til söngleikja af gamla skól-
anum. Það geislar af parinu á tjaldinu
þótt Gosling sé kannski ekki frábær
söngvari, en myndin hittir samt beint
í mark, sérstaklega á lokametrunum.
Fortíðarþrá með söng í hjarta
Kemistría Ryans Gosling og Emmu Stone getur bætt upp fyrir ýmsa handritsgalla.
La La Land fær ýmislegt „lánað“ frá
frönsku kvikmyndinni Les parapluies
de Cherbourg.
Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
FITUMÆLINGAVOGIR
Við erum með gífurlegt úrval
af öllum gerðum af vogum
GOTT
VERÐ
Tanita BC-587 fitumælingavog
Áður 32.860,- NÚ 18.749,-
FÆRIBANDAVOGIR - RANNSÓKNAVOGIR - IÐNAÐARVOGIR - SMÁVOGIR
VERÐÚTREIKNINGSVOGIR - TALNINGAVOGIR - KRÓKAVOGIR
BAÐVOGIR - BARNAVOGIR - GÓLFVOGIR - LÍMMIÐAVOGIR
gæði – þekking – þjónusta
Fríða Rut Heimisdóttir
Hárgreiðslumeistari
Úr einu fræi varð bylting.
Moroccanoil hárvörumerkið er
innblásið af ferskum vindum,
bláma sjávarins og landslagsins
í kringum Miðjarðarhafið.
Upphafið er sjálf Moroccanoil
Treatment olían sem er góður
grunnur fyrir hvaða hárgerð sem
er. Einnig góð í krakka og skegg.
Til að fá sem bestu næringarefnin
er gott að setja hana alltaf í blautt
hárið og blása það eða leyfa því að
þorna eðlilega.
Olíurnar eru þrjár og nýjust er Blow Dry Concentrate sem hönnuð er fyrir gróft og erfitt hár.
Moroccanoil Treatment hentar öllum hárgerðum og LIGHT fyrir fíngert og mikið ljóst hár.
Regalo ehf Iceland
Raumgestalt bretti
Verð frá 2.980 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Nýjar vörur frá
Útsöluaðilar:
Útilíf – Kringlunni – Smáralind • Sportver Akureyri • Toppmenn & Sport Akureyri
K Sport Keflavík • Nína Akranesi • Sportbær Selfossi • Axel Ó Vestmannaeyjum
Dreifingaraðili: DanSport ehf. Hægt að sjá vörur á dansport.is
9 . f e b r ú a r 2 0 1 7 f i m m t u d a G u r34 m e n n i n G ∙ f r É t t a b L a ð i ð
bíó
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
3
-1
0
7
4
1
D
1
3
-0
F
3
8
1
D
1
3
-0
D
F
C
1
D
1
3
-0
C
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
8
2
2
0
1
7
C
M
Y
K