Fréttablaðið - 10.06.2017, Qupperneq 18
Bretland Í gær lágu niðurstöður
fyrir í sögulegum þingkosning-
unum í Bretlandi og komu þær
mörgum verulega á óvart. Breski
Íhaldsflokkurinn tapaði meiri-
hluta sínum á þinginu. Flokkurinn
missti tólf þingsæti og er nú með
318 þingsæti, en 326 þingsæti þarf
til að ná meirihluta. Verkamanna-
flokkurinn bætti aftur á móti við sig
hátt í þrjátíu sætum og er nú með
261 þingsæti.
Staðan sem kom upp fól í sér
mikla ringulreið þar sem enginn
flokkur er með þingmeirihluta.
Vox greinir frá því að venjulega
þegar þessi staða komi upp stjórni
stærsti stjórnmálaflokkurinn ríkis-
stjórninni, en geti ekki samþykkt
nein stórvægileg lög.
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands og formaður Íhalds-
flokksins, hefur tilkynnt að hún
hyggist mynda minnihlutastjórn
með stuðningi Lýðræðislega sam-
bandsflokksins (DUP) á Norður-
Írlandi sem náði tíu mönnum á þing
í kosningunum.
Fjölmiðlar í Bretlandi töluðu í
gær um „niðurlægingu“ og „mar-
tröð“ fyrir Íhaldsflokkinn og May
sem verið hefur forsætisráðherra
frá því í júlí í fyrra en hún tók við
keflinu af David Cameron sem sagði
af sér í kjölfar Brexit-kosninganna.
May boðaði til kosninganna með
stuttum fyrirvara og þremur árum
áður en þær áttu að fara fram til að
efla meirihluta Íhaldsflokksins á
þingi. Sú áætlun mistókst hins vegar
og hafa kosningarnar frekar veikt
stöðu May en bætt hana. Jeremy
Corbyn, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, kallaði í gær eftir afsögn
May í kjölfar niðurstöðunnar.
Nokkur atriði eru talin hafa haft
áhrif á niðurstöðu kosninganna.
Í fyrsta lagi var Corbyn talinn ná
að heilla kjósendur á kosningavið-
burðum síðustu vikna en sama má
ekki segja um May. Einnig hlaut
stefna Íhaldsflokksins er varðar
heilbrigðismál mikla gagnrýni.
Þá benda fyrstu tölur til þess að
allt að 72 prósent ungra Breta hafi
kosið í kosningunum en ungir kjós-
endur eru líklegri til að kjósa Verka-
mannaflokkinn.
Fari Íhaldsflokkurinn í minni-
hlutastjórn með stuðningi DUP
þykir ljóst að staða flokksins verður
ekki mjög sterk. DUP hefur sætt
verulegri gagnrýni fyrir stefnu
sína. Flokkurinn er vinstrisinnaðri
en Íhaldsflokkurinn er kemur að
útgjöldum ríkisins að sögn The Fin-
ancial Times en er með mun harðari
stefnu þegar kemur að samfélags-
málum, til að mynda hjónabandi
samkynhneigðra og fóstureyð-
ingum. Þá trúa einhverjir meðlimir
flokksins ekki á loftslagsbreytingar.
Fulltrúar DUP hafa staðfest að
þeir muni styðja ríkisstjórn Íhalds-
flokksins. Saman eru flokkarnir með
328 atkvæði. Talið er að May myndi
ríkisstjórn með ráðherrum úr röðum
Íhaldsflokksins og geri einhvers
konar óformlegt samkomulag við
DUP um að þeir styðji minnihluta-
stjórn í atkvæðagreiðslum á þingi.
Í ræðu sinni í gær sagði Theresa
May að þessi samvinna væri eini
möguleikinn til að tryggja að Bret-
land geti náð árangri í Brexit-við-
ræðum sem eiga að hefjast 19. júní.
Til þess að koma á minnihluta-
stjórninni þarf May að halda ræðu
sem nefnist „Drottningarræða“ og fá
meirihluta þingsins til að kjósa með
trauststillögu um að Íhaldsflokkur-
inn geti verið leiðtogi þingsins. Það
ætti að nást ef allir þingmenn DUP
styðja tillöguna.
Ef svo fer að meirihluti þingsins
styður ekki tillöguna mun Verka-
mannaflokkurinn líklega fá umboð
til að mynda stjórn.
Hart Brexit nú óvíst
Í aðdraganda kosninganna skoðuðu
greinendur hvaða áhrif þær myndu
hafa á viðræður Breta um útgöngu úr
Evrópusambandinu. Vox greindi frá
því að talið væri að May myndi sam-
þykkja svokallað „hart Brexit“ sem
myndi fela í sér veruleg takmörk á
flæði fólks frá Evrópusambandinu til
Bretlands. Þetta yrði gert á kostnað
aðgangs Bretlands að frjálsum mark-
aði við Evrópusambandsríkin.
Niðurstaða kosninganna bendir
þó til þess að svo verði ekki þar sem
fylgi Íhaldsflokksins minnkaði tölu-
vert. Leo Varadkar, forsætisráðherra
Írlands, sagði niðurstöðurnar benda
til þess að það væri engin þörf fyrir
„hart Brexit“.
Óvíst er hvort viðræðurnar muni
hefjast þann 19. júní eins og stefnt
var að. Theresa May hefur ekki sýnt
merki þess að hún muni segja af sér
sem leiðtogi Íhaldsflokksins, en ef
svo færi myndi það leiða til þess að
upphaf viðræðna myndi frestast.
Bretland yfirgefur Evrópusam-
bandið sjálfkrafa í mars 2019. Þang-
að til hafa stjórnvöld þar tækifæri til
að semja um hvort útgangan verði
með eða án aðgangs að Evrópu-
markaðnum.
Ríkisstjórn May stendur veikum fótum
Útlit er fyrir minnihlutastjórn Íhaldsflokksins með stuðningi Lýðsræðislega sambandsflokksins á Norður-Írlandi í breska þinginu.
Úrslit kosninganna voru sögð niðurlæging fyrir Theresu May forsætisráðherra. Óvissa um samninga Bretlands og Evrópusambandsins.
Pundið lækkaði vegna niðurstöðunnar
Markaðir virðast óvissir um leiðtogahæfni May. The Financial Times
greinir frá því að gengi pundsins hafi veikst eftir að útgönguspáin birtist
á fimmtudagskvöld og lækkaði í kjölfar þess að May greindi frá minni-
hlutastjórninni í gærmorgun.
Í gærkvöldi hafði gengi pundsins lækkað um 1,7 prósent frá því að
útgönguspáin birtist. Gengi hlutbréfa hækkaði hins vegar. FTSE 100 vísi-
talan hækkað um 1,04 prósent.
Staða May og Íhaldsflokksins er talin veikari nú en fyrir kosningar. FréttaBlaðið/EPa
May virðist
hafa vanmetið
og vanáætlað stöðu
sína mjög mikið.
Þorbjörn Þórðarson,
fréttamaður á Stöð 2
318
sæti fékk Íhaldsflokkurinn í
neðri deild breska þingsins.
Íhaldsflokkurinn í sérstakri stöðu
„Þessi laka útkoma Íhaldsflokksins
hefur aðallega komið á óvart í
þessum kosningum. Theresa May
virðist hafa vanmetið Jeremy
Corbyn og ofmetið eigin styrk.
Þetta sést best á því að hún eyddi
drjúgum tíma í kjördæmum þar
sem Verkamannaflokkurinn hefur
yfirleitt alltaf verið með meiri-
hluta þegar kosningaúrslit eru
skoðuð í sögulegu samhengi. Hún
fór reglulega inn í kjördæmi þar
sem Verkamannaflokkurinn er
yfirleitt talinn vera með yfirhönd-
ina í þeim tilgangi að ná þessum
aukna meirihluta á breska þinginu.
Þessi strategía hefur misheppnast
hrapallega,“ segir Þorbjörn Þórðar-
son, fréttamaður Stöðvar 2, sem
er staddur í London til að fylgjast
með kosningunum.
„May virðist hafa vanmetið
og vanáætlað stöðu sína mjög
mikið. Í stað þess að berjast í þeim
kjördæmum og tryggja öruggan
sigur í tvísýnum kjördæmum eða
þar sem Íhaldsmenn hafa yfirleitt
náð manni á þing þá var hún að
herja á vígi sem voru mjög erfið
viðureignar.“
Hann segir marga sem hann
hefur talað við mjög þreytta
á stöðunni og fjölda
kosninga. „Margir óttast
að hjaðningavíg verði
innan Íhaldsflokksins
og Boris Johnson eða
aðrir muni reyna að
ná May úr formanns-
stólnum. Það er
landsþing í október.
Margir eru þreyttir
á þessu, fólk vill
stöðugleika og vill að
lýðræðislega kosin
stjórnvöld
noti kjör-
tímabilið,“
segir Þor-
björn.
„Það er
augljóst
að marg-
ir vildu senda Íhaldsflokknum
skýr skilaboð um að þeir sæju í
gegnum þá yfirlýsingu May að hún
þyrfti sterkt lýðræðislegt umboð
og þess vegna hefði kosningunum
verið flýtt. Tilgangur kosninganna
var ekki að það þurfti aukinn
meirihluta til að leiða úrsögn úr
Evrópusambandinu, tilgangurinn
var að auka meirihlutann á þing-
inu því Íhaldsflokkurinn var að
mælast með svo mikið fylgi,“ segir
Þorbjörn.
Útlit er fyrir að Íhaldsflokkurinn
nái að mynda ríkisstjórn með
stuðningi DUP en að sögn Þor-
björns er staða flokksins mjög
sérstök. „Við erum ekki búin að
sjá stjórnarsáttmálann og við
erum ekki búin að sjá hvaða mál
DUP mun setja á oddinn. Þetta er
erfið staða fyrir Íhaldsflokkinn að
vera í. Að vera með flokk með tíu
þingmenn kjörna sem getur sett
Íhaldsflokknum afarkosti gegn
því að verja stjórnina í erfiðum
málum. Þannig að þetta er sérstök
staða sem Íhaldsflokkurinn er
kominn í, í ljósi þeirra aðstæðna
sem boðið var til snemmbúinna
kosninga,“ segir Þorbjörn.
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
Jeremy Corbyn var ánægður með úrslit kosninganna. FréttaBlaðið/EPa
1 0 . j ú n í 2 0 1 7 l a U G a r d a G U r16 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
1
1
-0
6
-2
0
1
7
1
7
:3
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
D
-3
9
A
0
1
D
0
D
-3
8
6
4
1
D
0
D
-3
7
2
8
1
D
0
D
-3
5
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
8
s
_
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K