Fréttablaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 102
Að venju efna Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið til sumarlesturs á meðal barna.
Fyrir hverja lesna bók skrá lesendur nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða og setja í pott
sem dregið er úr vikulega. Lestrarhestur vikunnar hlýtur bók að launum.
Mundir þú eftir að
bursta og skola í morgun?
GUM eru hágæða tannvörur
tannlæk
nar
mæla m
eð
GUM
tannvör
um
... fæst í næsta apóteki
og helstu stórmörkuðum
allar upplýsingar
á www.icecare.is
Öll skip úr höfn/stórfiskaleikur
Leikurinn hefst á því að allir
raða sér upp við enda leik-
svæðis, þar er höfn og hinum
megin er önnur höfn. Einn
leikmaður er „hann“
og stendur á miðju
svæðinu. Þegar
hann kallar „öll
skip úr höfn“ eiga
hinir að hlaupa
þvert yfir svæðið og
í hina höfnina. Þeir eiga að hlaupa
helst sem næst „honum“ og þá
reynir „hann“ að klukka sem
flesta.
Í næsta leik eru þeir sem
voru klukkaðir með
„honum“ í liði og svo
koll af kolli uns aðeins
einn er eftir. Sá er
„hann“ í næsta leik
og reynir að klukka
sem flesta.
Leikurinn
Hvað er skemmtilegast við
bækur? Það gerist margt í þeim
og það eru flottar myndir.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún? Skúla skelfi. Hún
var um Skúla að búa til sögur um
heimsmet. Hún var skemmtileg.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem
var í uppáhaldi hjá þér? Ys og
þys í Erilborg eftir Richard Scarry.
Afi minn og amma þýddu hana á
íslensku.
Hvers lags bækur þykir þér
skemmtilegastar? Spennandi
bækur eins og Óvættaför. Og
ævintýrasögur.
Í hvaða skóla gengur þú? Ég var
að klára 2. bekk í Vesturbæjar-
skóla. Inga Kristín var kennarinn
minn.
Ferðu oft á bókasafnið? Dáldið
mikið. Tvisvar í viku. Stundum
oftar í skólanum mínum.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Fótbolti og sund. Mér finnst líka
skemmtilegt að lesa. Stundum
finnst mér gaman að spila á fiðlu
með pabba mínum eða perla.
Það er líka gaman að vera úti. Mér
finnst líka skemmtilegt að smíða.
Lestrarhestur vikunnar Elva Qi Kristinsdóttir
Elva Qi fékk einmitt í verðlaun bókina Ys og þys í Erilborg sem afi hennar og
amma þýddu.
Valva Nótt Ómarsdóttir og Ása
Georgía Þórðardóttir Björnsson
urðu vinkonur þegar þær hittust í
Ísaksskóla síðasta haust. Þá settust
þær í fimm ára bekk en eru orðnar
sex ára núna. Þær voru kátar í
útskriftarveislu skólans í síðustu
viku, sungu og dönsuðu. Þær eru
sammála um að lagið Sautján
þúsund sólargeislar hafi verið
skemmtilegast.
En hvað ætluðu þær að gera
næsta dag, þegar enginn skóli
var lengur?
Ása: Kannski fara í sund?
Valva: Jónína amma ætlar að
kenna mér að lesa og ef ég verð
dugleg þá fæ ég verðlaun. Ég ætla
til hennar á morgun.
Hittist þið vinkonurnar líka
utan skólans?
Valva: Já, já. Ég fékk einu sinni að
gista hjá Ásu. Þá horfðum við á
mynd og borðuðum popp.
Hvað finnst ykkur langskemmti-
legast að gera?
Ása: Mér finnst skemmtilegast
á hjólabretti. Við Valva fórum
saman á hjólabretta námskeið í
vetur.
Valva: Svo fórum við líka á karate-
námskeið og í ballett.
Hvað ætlið þið að gera í sumar?
Saman: Við ætlum í sumarskóla.
Valva: Ég fer líka örugglega norður
á Húsavík.
Ása: Og ég í Birkihlíð. Það er
sumarbústaður og ég fer þangað
til að kasta steinum í vatnið og
fara í hengirúmið.
Hvað langar ykkur að verða
þegar þið verðið stórar?
Valva: Mig langar að verða læknir.
Ása: Mig langar að verða dýra-
læknir.
Langar til að lækna
Þær Valva Nótt og Ása Georgía eru sex ára og bestu, bestu vinkonur.
Valva Nótt og Ása Georgía eru búnar að fara saman á hjólabrettanámskeið, karatenámskeið og í ballett. Fréttablaðið/ErNir
Bragi Halldórsson
253
„Þar fór í ver,“ sagði Konráð. „Okkur liggur svo mikið á en þurfum að
komast í gegnum þetta völundarhús fyrst.“ Hann dæsti og bætti við
vonsvikinn, „við verðum of sein.“ „Eins og ævinlega,“ sagði Kata.
Getur þú hjálpað félögunum að komast í gegnum þetta völundarhús?
1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R56 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð
1
1
-0
6
-2
0
1
7
1
7
:3
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
0
D
-6
1
2
0
1
D
0
D
-5
F
E
4
1
D
0
D
-5
E
A
8
1
D
0
D
-5
D
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
8
s
_
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K