Fréttablaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 122
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lífið í
vikunni
04.06.17-
10.06.17
Víkingurinn
ragnheiður
Sunddrottningin og
leikkonan Ragnheiður
Ragnarsdóttir landaði
nýlega hlutverki í þátt-
unum Vikings. Tökur
á nýjustu seríunni
eru hafnar og fregnir
herma að Ragn-
heiður taki
sig vel út
á setti í
fullum vík-
ingaskrúða.
Fyrsti hundurinn
hennar BergLindar
Fjölmiðlakon-
an Berglind
Pétursdóttir
eignaðist
nýverið
sinn fyrsta
hund. Um St.
Bernard-hund
sem heitir Hófí
er að ræða. Berglind
sagði frá hundaævintýrinu í viðtali
við Lífið og greindi frá því að það
væri meira vesen að vera með
hvolp en ungbarn.
djúsí Vegan matur
Þau Linnea Hellström, Krummi
Björgvinsson og Örn Tönsberg ætla
að opna vegan dænerinn Veganæs
á næstunni. Hópfjármögnun fyrir
verkefninu er í fullum gangi á Kar-
olina Fund. Á staðnum verður hægt
að fá djúsí mat sem hægt er að
háma í sig með góðri samvisku.
h&m mun Bjóða upp á
gott VöruúrVaL
Álfrún Pálsdóttir,
ritstjóri íslenska
Glamour, skellti
sér í vikunni til
Óslóar og kynnti
sér hvað sænska
fatakeðjan H&M
mun bjóða landsmönnum upp á í
haust en eins og kunnugt er mun
H&M opna verslanir í Kringlunni
og Smáralind í ágúst. Álfrún segir
landsmenn eiga gott í vændum þar
sem H&M á Íslandi mun selja allar
tískulínur merkisins, að heimilis-
línunni undanskilinni.
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Eftir áralanga þróun og prófanir
höfum við náð markmiði okkar.
Við höfum búið til eina
þróuðustu dýnu heims
Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri
samsetningu 2500 keilulaga gorma
og móttækilegs minnissvamps.
Fáðu betri svefn
– sama hvert svefnmynstur þitt er.
90 x 200 cm 74.990 kr.
120 x 200 cm 89.990 kr.
140 x 200 cm 99.900 kr.
160 x 200 cm 114.990 kr.
180 x 200 cm 129.900 kr.
Simba dýnurnar eru fáan
legar í eftirtöldum stærðum
Komdu og
kynntu þér Simba
í næstu Dormaverslun eða á
www.simbasleep.is
DORMA KYNNIR
EINA ÞRÓUÐUSTU
HEILSUDÝNU HEIMS
Það er svo skemmtilegt við þetta húsnæði sem ég er í að það var neta-verkstæði áður en ég flutti inn. Það að gera að netum og prjóna er
svolítið svipað handverk og það
finnst mér svo skemmtilegt. Ég er
búin að búa til vegg úr gömlum
netakúlum sem mér finnast óskap-
lega merkilegar. Þetta eru glerkúlur
og glerið kemur með ansi óvana-
legt „element“ – það stirnir á það.
Það var á sínum tíma ofið utan um
kúlurnar og gínurnar mínar eru
svipaðar – ég prjóna og set utan um
gínurnar. Þannig að þarna er verið
að vinna með þetta gamla handverk
og í leiðinni verið að setja það í nýtt
samhengi,“ segir Steinunn Sigurðar-
dóttir en hún sýnir innsetninguna
sína á Hátíð hafsins í dag í verbúð
númer 17 sem hún hefur breytt í
stúdíó og verslun.
„Við erum að missa niður hand-
verk. Það er svolítið leiðinlegt finnst
mér. Ég er ein af þeim sem eru að
reyna að vinna handverk í hvaða
formi sem það er, hreinlega vegna
þess að það gefur hönnuðum nýtt
tækifæri að búa til hluti – ef við
kunnum handverk þá getum við
gert eitthvað. Eins og ég sem fata-
hönnuður, ég lærði að prjóna og hef
tekið prjónið upp á nýtt „level“ – ef
ég mætti þannig að orði komast.“
Steinunn vinnur mikið með prjón
og handverk og því liggur það beint
við að netagerðin hafi áhrif á verkið
hennar á Hátíð hafsins um sjó-
mannahelgina.
„Tengingin við hefðina hérna [á
Grandanum] er sterk og þetta er auk
þess að verða eitt skemmtilegasta
hverfi Reykjavíkur. Þegar þú býrð í
návist við það sem var hérna upp-
haflega – þá hlýtur maður að verða
innblásinn af því. Grandinn er svo
ótrúlega skemmtilegur líka vegna
þess að hér eru margir hönnuðir
og listamenn og margir óvenjulegir
hlutir að gerast. Ég finn alveg rosa-
legan mun á þessu hverfi síðan bara
fyrir sex árum.“
Í innsetningu Steinunnar er mikill
fjöldi bæði gína og netakúla.
„Ég er með tæplega þrjátíu gínur
hérna. Það kom útlendingur hérna
inn í morgun og sagði: „Er þetta
safn?“ segir Steinunn hlæjandi.
„Þetta býr til rosalega mögnuð
áhrif hérna inni í stúdíóinu mínu,
með netakúlunum mínum sem eru
alveg rosalega fallegar. Ég er með
heil áttatíu stykki.“
Hvar fannstu eiginlega áttatíu
stykki af netakúlum? „Ég fann þær í
antíkbúðum. Þær eru kannski ekki
auðfundnar í dag en það er eitt-
hvað við þetta handverk sem hefur
heillað mig alveg gífurlega,“ segir
Steinunn en innsetningu hennar
má skoða í dag á Hátíð hafsins en
það verður ýmislegt í gangi í tilefni
af henni úti á Granda, Hörpunni og
víðar. Dagskrána má kynna sér á
hatidhafsins.is.
stefanthor@frettabladid.is
margt svipað í
netagerð og prjóni
steinunn sigurðardóttir fatahönnuður sýnir innsetningu á Hátíð
hafsins sem hefst í dag. Þar vinnur hún með sameiginlega þætti
prjóns og netagerðar sem handverks. Steinunn hefur sankað að sér
miklum fjölda gína og netakúla úr gleri sem mynda innsetninguna.
Steinunn Sigurðardóttir hefur miklar mætur á handverki og vill minna fólk á gildi þess. FRÉTTABLAÐIÐ/EyÞÓR
Ég er með tæpLega
þrjátíu gínur
hÉrna. það kom útLending-
ur hÉrna inn í morgun og
sagði: „er þetta saFn?“
1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R76 L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð
1
1
-0
6
-2
0
1
7
1
7
:3
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
0
D
-6
6
1
0
1
D
0
D
-6
4
D
4
1
D
0
D
-6
3
9
8
1
D
0
D
-6
2
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K