Fréttablaðið - 10.06.2017, Page 122

Fréttablaðið - 10.06.2017, Page 122
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Lífið í vikunni 04.06.17- 10.06.17 Víkingurinn ragnheiður Sunddrottningin og leikkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir landaði nýlega hlutverki í þátt- unum Vikings. Tökur á nýjustu seríunni eru hafnar og fregnir herma að Ragn- heiður taki sig vel út á setti í fullum vík- ingaskrúða. Fyrsti hundurinn hennar BergLindar Fjölmiðlakon- an Berglind Pétursdóttir eignaðist nýverið sinn fyrsta hund. Um St. Bernard-hund sem heitir Hófí er að ræða. Berglind sagði frá hundaævintýrinu í viðtali við Lífið og greindi frá því að það væri meira vesen að vera með hvolp en ungbarn. djúsí Vegan matur Þau Linnea Hellström, Krummi Björgvinsson og Örn Tönsberg ætla að opna vegan dænerinn Veganæs á næstunni. Hópfjármögnun fyrir verkefninu er í fullum gangi á Kar- olina Fund. Á staðnum verður hægt að fá djúsí mat sem hægt er að háma í sig með góðri samvisku. h&m mun Bjóða upp á gott VöruúrVaL Álfrún Pálsdóttir, ritstjóri íslenska Glamour, skellti sér í vikunni til Óslóar og kynnti sér hvað sænska fatakeðjan H&M mun bjóða landsmönnum upp á í haust en eins og kunnugt er mun H&M opna verslanir í Kringlunni og Smáralind í ágúst. Álfrún segir landsmenn eiga gott í vændum þar sem H&M á Íslandi mun selja allar tískulínur merkisins, að heimilis- línunni undanskilinni. Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði Eftir áralanga þróun og prófanir höfum við náð markmiði okkar. Við höfum búið til eina þróuðustu dýnu heims Simba tvinndýnan er gerð úr einstakri samsetningu 2500 keilulaga gorma og móttækilegs minnissvamps. Fáðu betri svefn – sama hvert svefnmynstur þitt er. 90 x 200 cm 74.990 kr. 120 x 200 cm 89.990 kr. 140 x 200 cm 99.900 kr. 160 x 200 cm 114.990 kr. 180 x 200 cm 129.900 kr. Simba dýnurnar eru fáan­ legar í eftirtöldum stærðum Komdu og kynntu þér Simba í næstu Dormaverslun eða á www.simbasleep.is DORMA KYNNIR EINA ÞRÓUÐUSTU HEILSUDÝNU HEIMS Það er svo skemmtilegt við þetta húsnæði sem ég er í að það var neta-verkstæði áður en ég flutti inn. Það að gera að netum og prjóna er svolítið svipað handverk og það finnst mér svo skemmtilegt. Ég er búin að búa til vegg úr gömlum netakúlum sem mér finnast óskap- lega merkilegar. Þetta eru glerkúlur og glerið kemur með ansi óvana- legt „element“ – það stirnir á það. Það var á sínum tíma ofið utan um kúlurnar og gínurnar mínar eru svipaðar – ég prjóna og set utan um gínurnar. Þannig að þarna er verið að vinna með þetta gamla handverk og í leiðinni verið að setja það í nýtt samhengi,“ segir Steinunn Sigurðar- dóttir en hún sýnir innsetninguna sína á Hátíð hafsins í dag í verbúð númer 17 sem hún hefur breytt í stúdíó og verslun. „Við erum að missa niður hand- verk. Það er svolítið leiðinlegt finnst mér. Ég er ein af þeim sem eru að reyna að vinna handverk í hvaða formi sem það er, hreinlega vegna þess að það gefur hönnuðum nýtt tækifæri að búa til hluti – ef við kunnum handverk þá getum við gert eitthvað. Eins og ég sem fata- hönnuður, ég lærði að prjóna og hef tekið prjónið upp á nýtt „level“ – ef ég mætti þannig að orði komast.“ Steinunn vinnur mikið með prjón og handverk og því liggur það beint við að netagerðin hafi áhrif á verkið hennar á Hátíð hafsins um sjó- mannahelgina. „Tengingin við hefðina hérna [á Grandanum] er sterk og þetta er auk þess að verða eitt skemmtilegasta hverfi Reykjavíkur. Þegar þú býrð í návist við það sem var hérna upp- haflega – þá hlýtur maður að verða innblásinn af því. Grandinn er svo ótrúlega skemmtilegur líka vegna þess að hér eru margir hönnuðir og listamenn og margir óvenjulegir hlutir að gerast. Ég finn alveg rosa- legan mun á þessu hverfi síðan bara fyrir sex árum.“ Í innsetningu Steinunnar er mikill fjöldi bæði gína og netakúla. „Ég er með tæplega þrjátíu gínur hérna. Það kom útlendingur hérna inn í morgun og sagði: „Er þetta safn?“ segir Steinunn hlæjandi. „Þetta býr til rosalega mögnuð áhrif hérna inni í stúdíóinu mínu, með netakúlunum mínum sem eru alveg rosalega fallegar. Ég er með heil áttatíu stykki.“ Hvar fannstu eiginlega áttatíu stykki af netakúlum? „Ég fann þær í antíkbúðum. Þær eru kannski ekki auðfundnar í dag en það er eitt- hvað við þetta handverk sem hefur heillað mig alveg gífurlega,“ segir Steinunn en innsetningu hennar má skoða í dag á Hátíð hafsins en það verður ýmislegt í gangi í tilefni af henni úti á Granda, Hörpunni og víðar. Dagskrána má kynna sér á hatidhafsins.is. stefanthor@frettabladid.is margt svipað í netagerð og prjóni steinunn sigurðardóttir fatahönnuður sýnir innsetningu á Hátíð hafsins sem hefst í dag. Þar vinnur hún með sameiginlega þætti prjóns og netagerðar sem handverks. Steinunn hefur sankað að sér miklum fjölda gína og netakúla úr gleri sem mynda innsetninguna. Steinunn Sigurðardóttir hefur miklar mætur á handverki og vill minna fólk á gildi þess. FRÉTTABLAÐIÐ/EyÞÓR Ég er með tæpLega þrjátíu gínur hÉrna. það kom útLending- ur hÉrna inn í morgun og sagði: „er þetta saFn?“ 1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R76 L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 1 1 -0 6 -2 0 1 7 1 7 :3 9 F B 1 2 8 s _ P 1 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 0 D -6 6 1 0 1 D 0 D -6 4 D 4 1 D 0 D -6 3 9 8 1 D 0 D -6 2 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 8 s _ 9 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.