Fréttablaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 32
Hnappheldan – Brúðkaup á Árbæj-
arsafni er ný sýning sem opnuð
verður í skrúðhúsi Árbæjarsafns í
dag, laugardaginn 10. júní. Sýningin
er hluti af veglegri afmælisdagskrá
Árbæjarsafns en í sumar eru 60 ár
liðin frá stofnun safnsins. Sýningin
er byggð á viðtölum, sem tekin voru
vorið 2017, við hjón sem giftu sig í
Árbæjarsafnskirkju á árunum 1961
til 2010. Þau deila skemmtilegum
sögum af brúðkaupsdeginum og
veita innsýn í brúðkaupsdaginn.
Brúðkaup hafa farið fram í þess-
ari litlu en heimilislegu kirkju frá
því árið 1961 og síðan þá hafa ótal
pör látið pússa sig saman þar.
„Við giftum okkur í Árbæjar-
safnskirkju, hún er lítil og sæt, og
dálítið lág. Pabbi leiddi mig upp að
altarinu og vinkona mín söng og
vinur hennar spilaði á orgel fyrir
mig. Ég man eftir því að slörið mitt
var alltaf að festast uppi í loftinu,“
segir ein þeirra sem giftu sig í kirkj-
unni.
„Þegar við komum svo að kirkj-
unni varð dóttir okkar hneyksluð
á því að mamma hennar ætlaði að
gifta sig í því sem henni fannst vera
fjós. Henni þótti þetta ekki jafn
íburðarmikið og í bíómyndunum,“
segir önnur. – kbg
Í hnapphelduna á Árbæjarsafni
Fimm milljónum króna er úthlutað
til fjögurra íslenskra góðgerðar-
félaga úr samfélagssjóði The Color
Run hlaupsins í ár sem fer fram í
dag í Reykjavík og þann 8. júlí á
Akureyri.
Barnaheill, Vímulaus æska,
Vinakot og Hetjurnar njóta góðs af
hlaupagleði Íslendinga. Samfélags-
sjóðurinn var stofnaður árið 2015
þegar fyrsta litahlaupið fór fram
hér á landi og alls hafa verið veittar
16 milljónir til góðgerðarfélaga á
undanförnum árum.
„Þetta skiptir okkur miklu máli,“
segir Davíð Lúthersson, fram-
kvæmdastjóri The Color Run á
Íslandi. Aðstandendur séu stoltir
af því að standa við verkefni sem
tengjast velferð barna. „Við höfum
styrkt átta góðgerðarfélög og það
er auðvitað þeim sem hlaupa að
þakka að við getum styrkt félögin
með þessum hætti,“ segir Davíð
Lúther.
Nær fimm tonn af litapúðri voru
keypt inn fyrir The Color Run
hlaupið í ár og Davíð Lúther segir
þátttökuna hafa enn eitt árið farið
fram úr öllum væntingum. „Það
verður uppselt í hlaupið í dag og
það sem betra er – veðurspáin er
alveg frábær. Þetta verður alveg
frábær dagur,“ segir hann.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Fimm tonn af litapúðri í loftið
Barnaheill, Vímulaus æska, Vinakot og Hetjurnar og félag langveikra barna á Norðurlandi, fá samtals fimm milljónir
króna úthlutaðar frá The Color Run hlaupinu sem fer fram í dag. Fimm tonn af litapúðri voru keypt inn fyrir hlaupið.
Greta Salóme, Siggi Hlö og Davíð Lúther í góðu gamni með litapúðrið skemmtilega sem fimm tonn eru til af. FréttabLaðið/SteFán
Í árbæjarkirkju hefur fjöldi fólks
gengið í hnapphelduna. Í dag verður
skemmtileg sýning opnuð í safninu
um giftingarnar í kirkjunni.
MynD/árbæjarSaFn
Um góðgerðar-
félögin
barnaheill
Vinna að mannréttindum
barna með áherslu á grunn-
menntun, vernd gegn ofbeldi
og eflingar heilbrigði.
Vímulaus æska
Er fyrir foreldra og börn þeirra
sem eru með hegðunar-,
áfengis- eða vímuefnavanda.
Vinakot
Er búsetuúrræði fyrir börn og
unglinga með margþættan
vanda.
Hetjurnar
Er félag langveikra barna á
Norðurlandi. Tilgangurinn er
að styrkja börnin til tóm-
stunda, fræðslu, til að fara í
sumarfrí og komast í almenna
afþreyingu á borð við bíó og
leikhús.
1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R30 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð
helgin
1
1
-0
6
-2
0
1
7
1
7
:3
9
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
0
D
-3
4
B
0
1
D
0
D
-3
3
7
4
1
D
0
D
-3
2
3
8
1
D
0
D
-3
0
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
8
s
_
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K