Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.06.2017, Qupperneq 40

Fréttablaðið - 10.06.2017, Qupperneq 40
Sofa, sofa, sofa og drekka nóg vatn, þetta voru ráðin sem undirrituð fékk um hvernig ætti að lifa af flug til Japans og takmarka þotuþreytu sem mest. Japan, eyríki sem lengi var lokað af og er þekkt fyrir stórkostlega ríka menningu sína sem og brjál­ aða tækni, er drauma áfangastaður margra. Lengd ferðarinnar frá Íslandi og það að aðlagast tímamuninum getur þó reynst jafnvel hinum víð­ förlasta ferðamanni áskorun. Þetta er þó allt þess virði, á tíu dögum í Japan getur maður upplifað meiri fjöl­ breytni en í flestum öðrum löndum; mörg hundruð ára gömul hof, risa búddastyttur, veitingahús með vél­ mennum, stærstu stórborg heims og komist í kynni við villt dádýr. Að sofa og drekka eru raunar góð ráð, og svo auðvitað að halda sér vak­ andi að minnsta kosti fram að kvöldi þegar á áfangastað er komið. Gaman að fara í maí mánuði Klassísk Japansferð felur í sér ein­ hverja daga í höfuðborginni, stopp í gömlu höfuðborginni og heimaborg flestra hofa landsins, Kýótó, og dags­ ferðir til minni staða, til dæmis Nara og Hakone. Með slíkri ferð er hægt að fá smjörþefinn af menningu landsins, en góðar líkur eru á að ferðamanninn þyrsti einungis í meira þegar kemur að heimfarardeginum. Vinsælasti árstíminn til að ferðast til Japans er þegar kirsuberjatrén eru í fullum blóma í lok apríl, eða á haustin þegar hitinn er mildur. Það getur þó verið fínt að fara í maí­ mánuði eða byrjun júní því þá er oft aðeins ódýrara og mildur hiti. Reiðufé vinsælt Japan er land andstæðna, þó að tæknin sé hvergi meiri þó víða væri leitað í heiminum er enskukunnátta, jafnvel í stórborginni, takmörkuð. Á mörgum stöðum er einungis hægt að greiða með reiðufé og erlend kort virka ekki í öllum hrað­ bönkum. Gott er að kynna sér þessi mál áður en lagt er af stað, og einn­ ig hvort það sé þess virði að kaupa sér lestarkort (JR Pass) fyrir ferðina, sem þarf að panta utan landsteinanna. Ódýrara en maður heldur Það væri auðvelt að eyða öllum tíma sínum í Tókýó. Um 35 milljónir búa í borginni og ber hún þess merki með ógrynni veitingastaða og fjölbreyttrar afþrey­ ingu. Hvergi í heiminum eru fleiri veitingastaðir með Mich elinstjörnur. Það þýðir þó ekki að allur góður matur sé á óviðráðanlegu verði. Mikil efna­ hagsuppsveifla átti sér stað í Tókýó fyrir aldamótin og fékk Japan þá á sig þann stimpil að vera dýr áfanga­ staður. Stærð borgarinnar gerir það þó að verkum að þar er allur verð skalinn þegar kemur að mat, gistingu og afþreyingu, og því getur verið ódýrara en margir telja að fara í frí þangað. Auðvelt er að fletta upp bestu veit­ ingastöðunum í hverjum verðflokki og fyrir hvern matarflokk á Tripad­ visor. Hápunktar í matarmenning­ unni eru meðal annars Korean BBQ, þar sem maður steikir sjálfur kjötið sitt og meðlæti, Bentobox sushi þar sem margir mismunandi réttir (flestir hverjir sem maður kannast ekkert við) koma saman í boxi, og hefðbundnir sushi staðir þar sem maður situr fyrir framan kokkana og pantar beint frá þeim. Mikilvægt getur verið að panta borð fyrirfram eða þó að þola bið eftir borði. 104 ára rekur kaffihús Þeir sem eru meira fyrir kaffimenn­ inguna geta bragðað á mjög góðu, ef heldur dýru kaffi, sem Tókýó hefur upp á að bjóða. Sérstaklega er þess virði að mæla með Café de L’ambre sem var stofnað árið 1948 í Ginza­ hverfi. Stofnandinn sem er 104 ára gamall er enn á svæðinu. Tókýó er einnig spreng­ full af þema kaffihúsum; ef eitthvert dýr er talið sætt eru allar líkur á að kaffihús tileinkað því sé þar. Gestir geta valið milli katta­ kaffihúsa, brodd­ galtakaffihúsa og kanínukaffihúsa svo eitthvað sé nefnt, ekki eru þó alltaf veitingar í boði á þessum stöðum eins undar­ lega og það hljómar. Einnig eru kaffihús með mikilli litagleði og stemningu í Kawaii (krúttstíl). Fjöldi hverfa er í Tókýó sem öll hafa sín sérkenni. Gaman er að prófa að gista í einu eldra og rólegra hverfi, til dæmis Asakusa, í nálægð við flott hof og frábæra veitingastaði, en einnig í einu af hverfunum sem þekkt eru fyrir nætur­ og verslunarlíf, til dæmis Shinjuku eða Shibuya. Þann­ ig er hægt að upplifa andstæðurnar í borginni. Hægt að kæla sig á ströndinni Á daginn má skoða fjölbreytt söfn, til dæmis Tokyo National Museum, hof, fallega garða eða líta í búðir. Ef gestum fer að leiðast öngþveitið er hægt að fara á strönd við Tokyo Bay og stinga tánum í sjóinn, en þó ekki synda þar. Eftir nokkurra daga stopp í Tókýó, þar sem þotuþreytan er farin að dvína, er fínt að kíkja út fyrir höfuð­ borgina. Þægilegur staður fyrir næturstopp er Hakone, bær við fjalls­ rætur þar sem hægt er að heimsækja falleg hof, sjá Fujifjall (ef viðrar vel), fara í siglingu og í onsen (heita laug). Japanir eru mikið fyrir heitu nátt­ úrulaugar sínar, líkt og Íslendingar, en þó eru reglurnar öðruvísi þar. Laugarnar eru kynjaskiptar og verður maður að baða sig nakinn. Í Hakone er fjöldi hótela, og meira að segja eitt hostel, með onsen, og því getur verið lítill sem enginn aukakostnaður við að prófa þessa japönsku hefð. Fljótt að skreppa til Kýótó Lestarkerfi Japans er vel þekkt fyrir hraða og stöðugleika. Lestirnar eru heldur dýrar miðað við til dæmis lestir í Evrópu, en hafa þann kost að maður þarf venjulega ekki að sitja lengi í þeim. Kýótó er rúman klukkutíma frá Hakone og tvo tíma frá Tókýó og er nauðsynlegt að fara þangað á ferðalagi um Japan. Besta leiðin til að sjá borgina er á hjóli. Í borginni búa um 1,5 milljónir manna og er því viðráðanlegra þar að fá yfir­ sýn yfir borgina en í Tókýó. Meðal áfangastaða sem maður verður að kíkja á þar er gyllta hofið Kinkaku­ji, gamla Ginonhverfið þar sem geisjur sjást enn á ferð og bambusskógurinn í vesturhluta borgarinnar. Þrír til fjórir dagar eru passlegur tími til að njóta þess sem borgin hefur upp á að bjóða sem og frábærra veitingastaða hennar. Vinsæl dagsferð frá Kýótó er að kíkja til Nara, fyrstu höfuðborgar Japans. Borgin er sögulega merkileg en hún var höfuðborg Japans á átt­ undu öld og þrátt fyrir smæð hennar er hún full af fallegum sögulegum hofum, einni stærstu trjábyggingu í heimi, og er heimili fimmtán metra hárrar búddastyttu. Borgin er þó allra þekktust fyrir að vera heimili yfir 1.200 villtra dádýra sem ráfa um Naragarðinn. Einn af hápunktum Japansferðar er að kaupa kex til að gefa þeim að borða og fylgjast með ferðamönnum taka sjálfumyndir með þeim, oft með fyndnum afleið­ ingum. Margir kjósa að skreppa fram og til baka samdægurs með lestinni frá Kýótó, en það er frábær kostur að gista í Nara; gisting er ódýr, fullt af góðum veitingastöðum er á svæðinu og andrúmsloftið í borginni mjög afslappað. Töfraheimur Japans Það eru fá lönd í heiminum sem bjóða upp á jafn ein- staka og fjölbreytta ferðamannaupplifun og Japan. Á tíu dögum má finna smjörþefinn af menningunni, skoða hof, borgir, klappa dádýrum og stinga sér í heita laug. Hefðbundinn kímónó á Tokyo National Museum. Nauðsynlegt er að prófa „kawaii“-myndaklefa í Tókýó.Broddgaltakaffihús eru mjög vinsæl í Tókýó. Sæunn Gísladóttir saeunn@frettabladid.is KlassísK Japansferð felur í sér einhverJa daga í höfuðborginni, stopp í heimaborg flestra hofa landsins, Kýótó, og dagsferðir til minni staða Gyllta hofið Kinkaku-ji er einn vinsælasti áfangastaður Kýótó. MyNd/SG 1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R38 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 1 1 -0 6 -2 0 1 7 1 7 :3 9 F B 1 2 8 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 0 D -B A 0 0 1 D 0 D -B 8 C 4 1 D 0 D -B 7 8 8 1 D 0 D -B 6 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 8 s _ 9 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.