Fréttablaðið - 10.06.2017, Side 42

Fréttablaðið - 10.06.2017, Side 42
Hafa nostrað við hvern fermetra Eitt af nokkrum barnaherbergjum heimilisins. Fagurkerum er bent á að skoða Instagram-síðuna sem María heldur úti, notandanafnið er paz.is. Frönsku hurðirnar í stofunni eru í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni. Grænar plöntur er að finna víða á heimili Maríu og Ragnars. María Gomez og eiginmaður hennar Ragnar Már Reynisson eiga afar fallegt heimili enda hafa þau nostrað við hvern krók og kima. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Hönnun María Gomez Bloggari Bloggarinn María Gomez býr ásamt eiginmanni sínum og fjórum börnum þeirra í glæsilegu húsi á Álfta- nesi. Húsið hafa þau verið að taka í gegn frá a til ö síðan þau fluttu inn og útkoman er afar flott. „Fyrir ári þurftum við að stækka við okkur þar sem það bættist mjög ört í barnahópinn en við eignuðumst börn árin 2013, 2014 og 2015. Fyrir áttum við stelpu fædda 1999 og var þessi stóra viðbót hálfgert áfall fyrir hana sem var einbirni í 13 ár,“ segir María. Hæstánægð á Álftanesi Upphaflegt plan var að flytja í Garðabæinn en hlutirnir þróuð- ust og fjölskyldan endaði á að kaupa hús á Álftanesi. „Úr varð að við keyptum þetta hús sem við svo gerðum alveg upp frá a til ö á mjög skynsaman og hag- kvæman hátt. Allt var selt sem hægt var að selja og það nýtt sem hægt var að nýta og betrumbæta. Í dag gæti ég ekki verið ánægðari með að hafa keypt hér á Álfta- nesinu og líður okkur mjög vel hérna og í húsinu,“ segir María sem heldur úti blogginu paz.is. Þar bloggar hún m.a. um heimili og hönnun. Spurð út í stílinn sem ein- kennir heimilið segir María: „Hann er klárlega skandinav- ískur með hlýlegu ívafi. Ég er með mikið af ljósum húsgögnum og er mikið fyrir gærur, plaköt, teppi og púða. Svo finnst mér æðislegt að vera með plöntur til að lífga upp á heimilið. En það er alveg á mörkunum að vera orðið of mikið af þeim hér á heimilinu.“ Svo margt í uppáhaldi María á erfitt með að velja uppá- haldsrýmið sitt en það fyrsta sem kemur upp í hugann er hjónaherbergið, það rými er hún búin að nostra mikið við. „Svo er ég líka mjög ánægð með útkom- una á barnaherbergjunum svo það er alveg smá erfitt að velja. Ætli sólstofan sé ekki samt í mestu uppáhaldi.“ María kaupir húsgögn og stofustáss úr öllum áttum. „Ég er alls ekkert föst við einhverja eina verslun. Húsgögnin í borð- stofunni eru t.d. úr Pennanum og Ilva en ég hef verslað soldið mikið í Ilva og er mjög ánægð með þjónustuna þar. Svo eru innanstokksmunir héðan og þaðan. Meðal annars úr Penn- anum, Epal og Söstrene Grene. Myndir og plaköt hef ég bæði verið að panta af netinu og kaupa hjá Reykjavík Bútik.“ Spreyið mikið notað María er handlagin og hefur gaman af því að dunda sér þegar kemur að heimilinu. „Ég gerði borðplöturnar í eldhúsinu sjálf en þær málaði ég eins og marmara. Ég skrifað færslu um það á blogginu hvernig á að gera það frá a til ö. Ég reyni síðan að púkka upp á hluti sem mig langar að gefa nýtt líf. Við notum t.d. sprey mjög mikið til að gefa hlutum nýtt útlit og spreyjuðum t.d. blómapotta, mynda ramma, hreindýrahausinn okkar og margt fleira,“ segir María að lokum. Áhugasamir finna Instagram- síðu bloggs Maríu undir not- endanafninu Paz.is. gudnyhronn@365.is 1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R40 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 1 1 -0 6 -2 0 1 7 1 7 :3 9 F B 1 2 8 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 0 D -B 5 1 0 1 D 0 D -B 3 D 4 1 D 0 D -B 2 9 8 1 D 0 D -B 1 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 2 8 s _ 9 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.