Fréttablaðið - 10.06.2017, Page 44

Fréttablaðið - 10.06.2017, Page 44
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Þegar kemur að sérferðum erum við með ýmsa spennandi áfangastaði,“ segir Kristín og nefnir þar staði á borð við Dúbaí, Suður-Afríku, Taíland og Kúbu. „Taíland bjóðum við nú upp á annað árið í röð enda nýtur landið mikilla vinsælda, ekki síst hjá ungu fólki og fjölskyldufólki. Til marks um vinsældirnar verðum við með þrjár ferðir til Taílands í haust.“ Dúbaí er einn af nýrri áfanga- stöðum ferðaskrifstofunnar en farin var vel lukkuð ferð á þetta framandi menningarsvæði í fyrra. „Þetta er lúxus ævintýraferð þar sem gist er á hinu heimsfræga Hótel Atlantis, 5 stjörnu lúxus hót- eli sem er heill heimur út af fyrir sig. Fararstjóri er Guðný Anna sem er viðskiptafræðingur að mennt og hefur búið í Asíu og Miðaustur- löndum síðastliðin tíu ár, þar af á fjórða ár í Abú Dabí, höfuðborg Sameinuðu arabísku furstadæm- anna,“ lýsir Kristín. Kúba og Suður-Afríka Kúba er nýr áfangastaður sem Kristín segir spennandi að heim- sækja núna enda síðasti séns áður en vestrænna áhrifa fer að gæta í meiri mæli. „Kúba er einstaklega heillandi með seiðandi tónlist, havanavindlum og hvítrommi. Þægileg stemning er á hvítum ströndum, næturklúbbar líflegir og miðbæjarkaffihúsin afslöppuð.“ Úrval Útsýn hefur verið með nokkrar ferðir til Suður-Afríku sem hafa ávallt mælst mjög vel fyrir. Í Suður-Afríku upplifir fólk spenn- andi og allt öðruvísi menningar- heim. Þar blandast ótrúleg náttúra og fjölbreytt dýralíf við framandi menningu, góðan mat og frábært vín. Verðlagið er hagstætt og margt að sjá og upplifa. Farin verður svo- kölluð „Garden route“ leið frá Cape Town um vínlöndin upp til Klein Karoo og svo meðfram ströndinni til baka, þar sem Indlandshaf og Atlantshaf mætast og svo endar ferðin í Cape Town. Þægilegar siglingar Úrval Útsýn býður einnig upp á siglingar sem eru sívinsælar enda þægilegur ferðamáti. „Við erum með siglingu til Víetnam og Taí- lands í nóvember. Svo verður farið í Austur-Karíbahafið í október og Vestur-Karíbahafið í nóvember.“ Fararstjórar gera gæfumuninn Úrval Útsýn er með reynda farar- stjóra á sínum snærum enda segir Kristín góðan fararstjóra gera gæfumuninn. „Sér í lagi þegar fólk Umhverfið hefur breyst nokkuð undanfarin ár. Fólk planar lengra fram í tímann og við erum þegar að fá fyrirspurnir fyrir næsta sumar,“ segir Jóhann Björgvinsson, sölustjóri Úrvals Útsýnar. „Fólk er líka duglegt að stökkva á síðustu stundu þó flestir sýni fyrir- hyggju enda best að bíða ekki of lengi því besta fjölskyldugistingin á vinsælustu svæðunum er fljót að klárast. Þegar fólk bíður fram á síðustu stundu til að fá gott tilboð er auðvitað úr miklu minna að velja.“ Úrval Útsýn er með gott úrval af áfangastöðum í sólinni. Þar má nefna Gran Canaría en boðið er upp á ferðir þangað allt árið um kring, Almería sem er fjölskyldu- staður á Suður-Spáni, Mallorca, Benidorm, Alicante, Albir, Altea og Calpe. Að ógleymdri Tenerife sem er vinsæl meðal Íslendinga allt árið. Gott verðlag á Kanaríeyjum Jóhann leggur sérstaka áherslu á Gran Canaría sem hann segir að sé að ganga í gegnum miklar breytingar. „Margir tengdu staðinn áður við ferðir eldri borgara en þar hefur orðið mikil breyting á. Gran Canaría hefur verið að vaxa sem fjölskyldustaður enda hafa yfir- völd og ferðaþjónusta á svæðinu lagt áherslu á að byggja hann upp sem heilsársáfangastað. Þar má finna afþreyingu fyrir alla aldurs- hópa, þar eru vatnsrennibrautir og dýragarðar, hitastig er stöðugt, loftslag þægilegt og strendurnar Dúbaí er einn af nýrri áfanga- stöðum ferða- skrifstofunnar en farin var vel lukkuð ferð á þetta framandi menningar- svæði í fyrra. Kúba er heillandi með seiðandi tónlist, havanavindlum og hvítrommi. Kristín Gunnarsdóttir, framleiðslu- stjóri Úrvals Útsýnar. MynD/ernir Mikill áhugi fyrir Asíu Fjölbreyttar borgarferðir njóta sífelldra vinsælda en einnig er aukinn áhugi hjá Íslendingum á sérferðum til fjarlægra landa, að sögn Kristínar Gunnarsdóttur, framleiðslustjóra Úrvals Útsýnar. Úrval Útsýn er með gott úrval af áfangastöð- um í sólinni. Þar má nefna Gran Canaría, Almería, Mall- orca, Benidorm, Alicante, Albir, Altea og Calpe. Að ógleymdri Tenerife. Jóhann Björgvinsson, sölustjóri Úr- vals Útsýnar. Gott að plana sólarferðir í tíma Færst hefur í vöxt að fjölskyldur velji sér ferðir þar sem allt er innifalið. Æ fleiri skipuleggja sumar- fríin ár fram í tímann þó vissulega kjósi margir að grípa tilboð sem bjóðast á síðustu stundu. er að ferðast á framandi slóðir þar sem það hefur ekki komið áður. Þá skiptir miklu að vera með fróða og þjónustulundaða fararstjóra sem veitt geta upplýsingar og aðstoð.“ Borgarferðir sívinsælar Íslendingar kunna vel að meta styttri borgarferðir bæði til að upp- lifa skemmtilega borgarstemningu, menningu og komast í verslunar- leiðangur. Úrval Útsýn er með mikið úrval borgarferða næstu mánuði og má þar nefna Dublin, New York, Róm, Boston, Halifax og Búdapest. „Við höfum aðgang að góðum hót- elum sem flest eru þriggja til fjögurra stjörnu en fyrir þá sem kjósa meiri lúxus getum við bókað önnur hótel.“ Úrval Útsýn hefur áratuga reynslu af skipulagningu borgar- ferða bæði fyrir einstaklinga og hópa. Ferðirnar geta verið skipu- lagðar borgarferðir eða sérsniðnar ferðir. Hópadeildin hefur skipulagt ferðir fyrir fjöldann allan af fyrir- tækjum, vinahópum, áhöfnum, kórum og saumaklúbbum. hreinar, auk þess sem verðlagið er frábært,“ lýsir Jóhann og bendir á að Gran Canaria sé því afar hag- stæður kostur fyrir fjölskyldur líkt og Almería sem sé rólegur, fallegur og góður fjölskyldustaður þar sem hægt sé að fá gæðagistingu með öllu inniföldu á góðu verði. Hagstætt að fá allt innifalið Jóhann segir orðið mjög algengt að fjölskyldufólk velji að kaupa sér ferðir þar sem allt er innifalið sér í lagi þar sem verðið er lægra. „Það getur verið kostnaðarsamt að vera með nokkur börn í fríi enda ófáir ísar og gosdrykkir sem þarf að splæsa í á hverjum degi,“ spaugar hann. Greinargóðar upplýsingar um ferðir Úrvals Útsýnar er að finna á vefnum www.uu.is en Jóhann bendir fólki einnig á að hafa beint samband við ferðaráðgjafa ferða- skrifstofunnar. „Hér starfar frábært fólk sem getur sérsniðið ferðir að því sem viðskiptavinir vilja.“ 2 KynninGArBLAÐ 1 0 . j Ú n Í 2 0 1 7 L AU G A r DAG U r 1 1 -0 6 -2 0 1 7 1 7 :3 9 F B 1 2 8 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 0 D -A 1 5 0 1 D 0 D -A 0 1 4 1 D 0 D -9 E D 8 1 D 0 D -9 D 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 8 s _ 9 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.