Fréttablaðið - 10.06.2017, Blaðsíða 94
Vorið 1905 komst upp kvittur í Reykjavík um að fundist hefði gull í bæjarlandinu. Verk-taki á vegum Reykja-víkurbæjar var þá að
störfum í Vatnsmýrinni suðaustan-
verðri við að bora eftir neysluvatni.
Vatnsleitin skilaði ekki tilætluðum
árangri og fljótlega komust stjórn-
endur bæjarins að þeirri niðurstöðu
að leiða yrði kalda vatnið til bæjarins
alla leið frá Gvendarbrunnum. Þau
vonbrigði gleymdust þó skjótt þegar
fréttin barst af hinum væntanlega
gullgróða.
Segja má að skammvinnt gull-
æði hafi brotist út í Reykjavík þessa
vordaga, líkt og tónlistarmaðurinn
Gunnar Þórðarson og skáldið Ólafur
Haukur Símonarson rifjuðu upp
löngu síðar í dægurlaginu „Gull“, sem
Eiríkur Hauksson söng inn á plötu.
Lóðaeigendur í bænum sáu fram á
mikinn hagnað og stofnað var félag
um málmleitina.
Hugmyndin um gullfund nánast í
miðjum höfuðstaðnum virtist ekkert
fráleit. Öllum voru í fersku minni frá-
sagnir af gullævintýrum í Ameríku og
ýmsir Vestur-Íslendingar voru sagðir
hafa stórgrætt á gullleit í Klondike
nokkrum árum fyrr. Sívaxandi hag-
kerfi Vesturlanda öskraði á hvers
kyns málma og jarðefni og sífellt
bárust fréttir af merkum uppgötv-
unum á sviði námugraftar víða um
lönd. Hvers vegna ekki líka á Íslandi?
Nákvæmari rannsóknir á hinni
meintu gullæð skiluðu litlum árangri.
Líklega höfðu bormennirnir látið
blekkjast af gylltu svarfi sem til hafði
orðið við boranirnar sjálfar. Aðrir
álitu að hrekkjalómar hefðu verið á
ferðinni og bárust böndin að manni
sem nýlega hafði komið frá Kanada.
Hvað sem þeim vangaveltum líður
dofnaði gullvon Reykvíkinga skjótt
þótt stöku menn hafi ekki viljað gefa
hana upp á bátinn fyrr en eftir til-
raunaboranir á þriðja áratugnum.
En það var ekki bara í Reykjavík
sem fréttir bárust af gullfundi árið
1905. Þá um sumarið taldi breskur
verkfræðingur sig hafa fundið gull
í Kröflu. Í kjölfarið falaðist enska
námafyrirtækið sem maðurinn starf-
aði fyrir eftir kaupum á landi Reykja-
hlíðar í Mývatnssveit fyrir stórfé en
Saga
til næsta
bæjar
Stefán Pálsson skrifar
um illþefjandi
atvinnugrein.
Auðæfi úr neðra
PANTAÐU FRÍAN TÍMA
Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA
893-0098
HÁRÆÐASLIT Í ANDLITINU ?
ÞAÐ ER TIL LAUSN - VIÐ FJARLÆGJUM
HÁRÆÐASLIT ENDANLEGA Í ANDLITI
Hraunbæ 102 • Reykjavík • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com
Snyrtistofan Hafblik
Fyrir Eftir
í hernaði, ýmist til að framkalla svo-
kallaðan „herbrest“, háværan hvell
sem átti að skjóta andstæðingum
skelk í bringu eða til að útbúa „gríska
eldinn“ – sem var nokkurs konar eld-
varpa sem notuð var í sjóorrustum til
að kveikja í skipum óvinarins.
Með aukinni púðurframleiðslu á
sextándu öld snarjókst eftirspurnin
eftir brennisteini í Evrópu og verðið
rauk upp í hvert sinn sem stórstyrj-
aldir brutust út. Helstu brennisteins-
námur álfunnar var að finna á Sikiley,
en dönsku krúnunni fannst mikið til
vinnandi að þurfa ekki að treysta á
innflutning á þessari mikilvægu vöru.
Óvenjulegar jarðfræðilegar
aðstæður þarf til að brennisteins-
námur myndist. Það gerist þar sem
brennisteinsvetni streymir upp,
gengur í samband við súrefni og
myndar hreinan brennistein og
vatn. Til að þessi blöndun heppnist
má andrúmsloft ekki eiga of greiðan
aðgang, heldur eru kjöraðstæðurnar
í gljúpum og súrefnisríkum jarð-
vegi. Á Íslandi eru slíkar aðstæður
helst í Krísuvík suðvestanlands og
á nokkrum stöðum í Þingeyjarsýslu
norðanlands.
Danakóngur eignaðist helstu
brennisteinsnámur Norðurlands upp
úr miðri sextándu öld og nýtti með
góðum hagnaði. Mest var brenni-
steinstakan á Þeistareykjum, þar
sem styst var til hafnar á Húsavík.
Gengu gjöfulustu námurnar skjótt til
þurrðar og slæm umgengni um þær
kom í veg fyrir að brennisteinninn
endurnýjaðist sem skyldi.
Erfiðleikar við vinnslu og óstöðugt
verð gerðu það að verkum að lítil
samfella var í brennisteinsnáminu.
Hinir og þessir aðilar fengu vinnslu-
leyfi en héldu fæstir lengi út í einu.
Innréttingarnar, iðnfyrirtækið sem
Skúli Magnússon fógeti veitti for-
stöðu, hóf brennisteinshreinsun
árið 1753 en fram að þeim tíma hafði
allur brennisteinn verið sendur utan
til hreinsunar. Fyrstu árin einbeitti
fyrirtækið sér að námunum í Krísu-
vík, en þegar þær gengu til þurrðar
hófst vinnsla fyrir norðan. Var
brennisteinn hreinsaður á Húsavík
samfellt frá 1762 til 1852 og reyndist
brennisteinsvinnslan einna farsælust
af hinum fjölmörgu iðntilraunum
sem Innréttingarnar brydduðu upp á.
Eimreiðardraumar
Hreinsunaraðferðirnar á Húsavík
voru ófullkomnar og gengu helst út
á að skola efnið með vatni og lýsi.
Afurðin sem fékkst með þessum hætti
þótti óvönduð og verðlítil. Snemma
komu fram hugmyndir um að hreinsa
brennisteininn með bræðslu, en þær
komu ekki til framkvæmda. Árið
1852 var reksturinn orðinn svo veik-
burða og námasvæðin í slæmu ásig-
komulagi að ákveðið var að hvíla þau
um nokkurra ára skeið.
Um 1870 vaknaði enn áhugi á
brennisteinsnýtingu í Mývatnssveit
og voru þar á ferðinni breskir fjár-
festar. Kaupsýslumaður að nafni
Lock, sem landsmenn uppnefndu
Brennisteins-Loka, fékk hálfrar aldar
einkaleyfi á brennisteinsvinnslu árið
1872. Hugmynd hans var sú að leggja
járnbraut frá Mývatnssveit til Húsa-
víkur til efnisflutninga. Ekkert varð úr
brautarlagningunni og framleiðslan
lognaðist út af nánast strax, senni-
lega vegna vanefnda erlendra sam-
starfsaðila.
Þessar áætlanir Locks voru dæmi-
gerðar fyrir stóriðjuhugmyndir hér-
lendis undir lok nítjándu aldar og í
byrjun þeirrar tuttugustu, þar sem
landsmenn einblíndu ekki á mögu-
legar skatttekjur eða störf sem slíkar
framkvæmdir myndu skapa, heldur
var að miklu leyti horft til óbeins
ágóða af samgöngumannvirkjum
sem þær kölluðu á. Einkum voru
margir spenntir fyrir járnbrautum.
Þegar Wallace & Co. fékk leyfið til
brennisteinsvinnslu árið 1904, var
eitt af skilyrðunum að ráðist yrði í
lagningu járnbrautar innan tíu ára.
Voru Norðlendingar raunar svo bjart-
sýnir að talað var um að verkið hæfist
þegar á næsta sumri. Sáu bændur í
Þingeyjarsýslu fram á mikla mögu-
leika í flutningi afurða, auk þess sem
vonir voru bundnar við að járnbraut-
ir á vegum iðnfyrirtækja yrðu fyrsti
vísirinn að stærra og víðtækara lesta-
kerfi í landinu. Sem fyrr segir reyndist
þó jafnlítið að marka loforð Bretanna
þá og þrjátíu árum fyrr.
Næst var hreyft við hugmyndinni
um brennisteinsvinnslu í Mývatns-
sveit á kreppuárunum. Stjórn Fram-
sóknar og Alþýðuflokks skipaði
Skipulagsnefnd atvinnuveganna sem
falið var að gera fjölbreyttar tillögur
um hvers kyns mögulega nýsköpun
í framleiðslu landsmanna. Nefndin
lét rannsaka vinnslumöguleika og
söluhorfur fyrir brennistein. Í fram-
haldi af þeim athugunum var stofnað
sérstakt fyrirtæki, Brennisteinsverk-
smiðjan sf. með þátttöku þriggja
manna: efnaverkfræðingsins Jóns
E. Vestdal og þeirra Þorvaldar Thor-
oddsen og Ragnars Jónssonar. Þeir
síðarnefndu ráku saman Smjörlíkis-
gerðina Smára, sem Ragnar var einatt
kenndur við.
Öfugt við fyrri tilraunir, stefndu
félagarnir ekki að því að moka burt
brennisteinsgrjóti til hreinsunar og
vinnslu annars staðar, heldur hugð-
ust þeir bræða brennisteininn í hita-
katli í grennd við námurnar. Með því
að snöggkæla brennisteinsgufuna frá
katlinum myndi hreinn brennisteinn
falla til jarðar sem fínn salli. Þannig
fengist mun betri og verðmætari
afurð.
Félagið reisti verksmiðjuhús í
Bjarnarflagi á árunum 1938-9, sam-
hliða því sem efnistaka á svæðinu
hófs. Bræðsla hófst í lok ágúst 1939
og lofaði góðu. Á þriðja degi kom
hins vegar í ljós hvílík mistök það
voru að reisa húsið úr timbri. Hitinn
frá katlinum leiddi til eldsvoða og
verksmiðjan brann til kaldra kola.
Stjórnendur fyrirtækisins létu
þennan mótbyr ekki á sig fá og fáein-
um vikum síðar, í október, var búið
að steypa upp nýtt vinnsluhús. Fram-
leiðsla hófst þá þegar og voru starfs-
menn í óða önn að undirbúa veislu
til að fagna gangsetningunni þegar
sprenging varð í kæliklefum hússins,
veggir hrundu og gólf sprungu upp.
Enn var ráðist í viðgerðir, en þeim
var ekki fyrr lokið en í ljós kom að
botn bræðsluofnsins hafði gefið sig.
Þar sem ofninn kom frá Þýskalandi
reyndist ómögulegt að fá varahluti
vegna stríðsins. Framleiðsla féll því
niður yfir stríðsárin og þegar friður
komst á voru markaðsaðstæður
orðnar óhagstæðar með verðfalli á
brennisteini.
Aðstandendur Brennisteinsverk-
smiðjunnar stórtöpuðu á tilraun-
inni, en voru þó ekki alveg af baki
dottnir. Þeir lýstu áhuga sínum við
ríkisvaldið að taka þráðinn upp að
nýju, en þremenningarnir voru þó
ekki hafðir með í ráðum árið 1952
þegar Íslenska brennisteinsvinnslan
hf. var stofnuð í húsakynnum gamla
fyrirtækisins. Þar var notast við ein-
faldari vinnsluaðferð sem gaf lakari
vöru. Í ljós kom að tækjabúnaður
var orðinn gamall og úr sér genginn
auk þess sem ný bortækni vestur í
Ameríku hafði gert brennisteins-
vinnslu þar miklu ódýrari. Nýja fyrir-
tækið lagði því upp laupana eftir um
tveggja mánaða starfstíma. Þar með
lauk sögu einhverrar elstu fram-
leiðslugreinar á Íslandi – að minnsta
kosti í bili.
fékk ekki. Fréttirnar af gullinu í Kröflu
fóru furðu lágt í íslenskum blöðum,
sem gátu þeirra rétt í framhjáhlaupi.
Má telja að sú varfærni blaðamanna
skýrist af hinu misheppnaða gullæði
í Reykjavík skömmu fyrr.
Auk gullsins dýra sagðist sá
breski hafi fundið blýhvítu, stein-
efni sem hafði mikilvægu hlutverki
að gegna við málningarframleiðslu.
Ekki kom þó til frekari rannsókna á
þessum jarðefnum, enda hvarf enska
fyrirtækið, Wallace & Co., úr landi
skömmu síðar með skuldahala og
rúið orðspor.
Verðmætur útflutningur
Það var hvorki gull né blýhvíta sem
leiddi fulltrúa Wallace & Co. til
Mývatnssveitar, heldur áætlanir um
brennisteinsvinnslu. Þau áform eru
hlekkur í langri keðju tilrauna til
brennisteinsnýtingar á Íslandi. Í
þeirri sögu skiptast á skin og skúrir.
Þegar best lét skilaði brennisteins-
sala góðum hagnaði, en lítið mátti
út af bera þar sem erfitt var að vinna
hráefnið, flutningur kostnaðarsamur
og markaðsverð sveiflukennt.
Íslendingar hafa flutt út brenni-
stein allt frá tólftu öld. Í fyrstu var
efnið notað til lækninga en þó mest
1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R48 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð
1
1
-0
6
-2
0
1
7
1
7
:3
9
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
0
D
-8
D
9
0
1
D
0
D
-8
C
5
4
1
D
0
D
-8
B
1
8
1
D
0
D
-8
9
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
9
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K