Fréttablaðið - 10.06.2017, Page 106

Fréttablaðið - 10.06.2017, Page 106
1 0 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R60 m e n n i n G ∙ F R É T T A B L A ð i ð menning Það var dásamleg til-finning að fá að deila titlinum. Án þess að fá að deila titlinum hefði þetta orðið óbærilegt. En með því að deila honum þá er það á einhvern hátt staðfesting á því að maður sé búinn að gera eitthvað og að eitthvað raun- verulegt sé þarna í kassanum sem verður ekki opnaður fyrr en eftir 97 ár,“ segir rithöfundurinn Sjón sem fyrir skömmu varð þriðji höf- undurinn til þess að leggja verk inn í Framtíðarbókasafn Óslóborgar sem er afsprengi hugmyndar skosku listakonunnar Katie Paterson. Framtíðarbókasafnið byggir á því að á sérstökum stað í skóglendi Óslóborgar hefur verið plantað 1.000 trjám sem fá það hlutverk í framtíðinni að verða nýtt til papp- írsframleiðslu eftir hundrað ár, á hundrað verkum jafn margra höf- unda. Árlega í eina öld leggur höf- undur inn verk til safnsins en fyrsta árið var það Margaret Atwood, þá David Mitchell og nú þriðja árið er komið að Sjón. Verkin verða geymd ólesin í sérstöku herbergi í nýju borgarbókasafni í Ósló, sem er í byggingu um þessar mundir, fram til ársins 2114, þegar þau munu í fyrsta sinn koma fyrir augu lesenda, ann- arra en skapara sinna. En höfundum er einungis heimilt að deila titli verka sinn með samtímamönnum og titillinn á verki Sjón er: VII Þegar enni mitt strýkst við kjólfald engla eða Nokkuð um fallturninn, rússíbanann, snúningsbollana og önnur tilbeiðslutæki frá tímum síð- iðnvæðingarinnar Frá hugmynd til veruleika Þessi stóri titill sem er í raun eins og ljóð í sjálfu sér gleður Katie Paterson sem segir gaman að fá að gefa lesend- um svona smá smakk á verki sem nú fái að liggja í dvala í 97 ár. Katie Paterson er eins og skógur hugmynda, uppsprettan virðist óþrjótandi, allt getur sprottið. Fram- tíðarbókasafnið er ein af þeim hug- myndum og hún segir að fyrir fimm eða sex árum hafi hún setið í lest og verið að teikna trjáhringi í teikni- blokkina sína. „Síðan kom þessi tenging á milli trjáhringja, kafla og bókar. Mér fannst þetta vera aug- ljóst og skildi ekkert í mér að hafa aldrei séð hvað þetta liggur beint við. Bók er tré. Hún þróast og þroskast á ólíkan máta en myndar svo þessa einstöku heild þar sem engar tvær bækur eru eins. Væri ekki dásamlegt að rækta bók eins og við ræktum tré? Og ekki bara eina bók heldur heilan skóg af bókum. Svona byrjaði þetta en hugmyndin að láta nýjan höfund rækta nýja bók á hverju ári kom dálítið seinna. Með því finnst mér eins og hver og einn höfundanna sé orðinn að kafla í þessu stóra heildarverki eða safni. Eitthvað sem er plantað í jörð fyrir komandi kynslóðir,“ segir Katie og bætir við að það sé nú ekki endilega vandinn að fá slíka hugmynd því annað sé að láta hana verða að veru- leika. „Það var á því stigi sem Anne Beate kom til sögunnar. Hún er ein- stök kraftaverkakona.“ Anne Beate Hovind er þekkt fram- kvæmdakona og stuðningsaðili við listir í Noregi og það var hún sem bar hitann og þungann af því að gera hugmynd Katie að veruleika. En Katie segir að upphafið að kynnum þeirra megi rekja til þess að henni hafi verið boðið á ráðstefnu um hægt rými, það er að segja rými sem vex og mótast á löngum tíma. „Innan þessa verkefnis var verið að styrkja list- sköpun út frá þessari hugmynd, að verkin fengju tíma. Mættu vaxa inn í það rými sem þeim var úthlutað og mig minnir að við höfum verið eitthvað að vinna í skóginum þegar þessi litla og dálítið galna hugmynd kom aftur upp í kollinum á mér. Ég stundi þessari hugmynd upp við Anne Beate og blessunarlega þá býr hún yfir þeirri sýn og því hug- rekki sem fáir sem styðja við listir hafa í raun og veru. Hún greip hug- myndina á lofti og nokkrum árum síðar tókst henni að sannfæra borg- aryfirvöld í Ósló um að láta okkur eftir skóglendi. Það var ekki fyrr en í framhaldi af því sem við fórum að biðja rithöfunda um að taka þátt og planta trjám.“ Hefur hjálpað mér að skilja Það var mildur og fallegur dagur í skóginum rétt utan við Ósló þegar Sjón afhenti verkið sitt til varð- veislu í Framtíðarbókasafnið. Fjöldi fólks safnaðist saman, sumir langt að komnir, og við athöfnina söng Ásgerður Júníusdóttir, eiginkona Sjón, tvö lög við undirleik Marion Herrera hörpuleikara og það var dálítið íslenskt sumar í lofti. Þetta var falleg stund og Sjón segir að á göngunni inn í skóginn hafi hann áttað sig á því að þetta verk var unnið eins og sáning. „Ég tók við þessu fræi frá Katie síð- astliðið haust og svo var það að spíra innra með mér langt fram eftir í vetri. Anne Beate spurði mig á leiðinni inn í skóg hvort það væri komið sumar á Íslandi og þá gerði ég mér grein fyrir þessu, að ég hafði sáð að hausti og nú væri sprotinn kominn í ljós þarna í skóginum,“ segir Sjón hugsi og bætir við að það sé merkilegt með þetta verkefni að það sé eins og það fram- leiði myndlíkingar. „Það framleiðir tengsl og það felur í sér svo mikla orku vegna þess að það á heima í raunverulegum skógi. Núna þegar ég hef séð, snert og talað við þessi litlu tré, þá finn ég þessa orku. Þetta er að sönnu einstakur fundur hugar og handar. Hins and- lega og hins náttúrulega. Og það er þess vegna sem verkefnið framleiðir myndlíkingar án fyrirhafnar.“ Á fundi með bókasafnsgestum seinna um daginn, fyrir fullu húsi, minntist Sjón líka á að það hefði komið honum á óvart hvað það fól í sér margar spurningar að skrifa verk sem enginn ætti eftir að fá að lesa fyrr en eftir öll þessi ár og að honum gengnum. „Ég vona að ég verði ekki eini höfundurinn sem finnst þetta vera erfitt ferli. Fyrst fannst mér þetta dálítið ógnvænlegt en svo gerði ég mér grein fyrir því að á næsta ári á ég fjörutíu ára höf- undarafmæli. Mín fyrsta bók kom út sumarið 1978 þegar ég var sextán ára gamall. Þess vegna hugsaði ég með mér hvað við hugsum ólíkt um tímann eftir því hvar við erum stödd í lífinu. Þetta er eins og einhver sagði: Hvers vegna óttumst við að hætta að vera til en erum aldrei hrædd við að við höfum aldrei verið til? Þannig að þetta verkefni hefur hjálpað mér að skilja hvernig við hugsum fram og aftur um tímann.“ Lesblind í bókaskógi Katie Paterson er myndlistarkona, list hennar er fyrst og fremst sjónræn og upplifunarkennd, en skyldi hún alltaf hafa sótt í bækur, verið lestrar- hestur eins og þar stendur? „Það er nú það. Ég er bullandi lesblind sem er auðvitað frekar kaldhæðið,“ segir Katie og hlær sínum bjarta hlátri en Sjón segir að það hafi samt ekki komið honum á óvart, því það sé ekki óalgengt að snjallir mynd- listarmenn séu einmitt lesblindir. „Finnbogi Pétursson, Sigurður Guð- mundsson og margir fleiri snjallir myndlistarmenn eru einmitt les- blindir en búa yfir þessari einstöku færni til þess að tjá hug sinn og til- finningar með sjónrænum hætti.“ Katie segir að hún hafi ekki einu sinni komist að því að hún væri lesblind fyrr en á síðasta ári í skóla. „Þetta var alveg að fara með mig. Ég skildi ekki hvað þetta var með mig og orð. Þau eru þarna á blaðinu en af hverju vilja þau ekki koma heil í hausinn á mér? En ég elska að lesa. Það tekur mig bara lengri tíma en aðra og ég þarf að hafa meira fyrir því. Ég þarf að gefa mig alla í lesturinn og ég kemst ekki upp með að hlaupa yfir eitt né neitt. En fyrir vikið þá er ég líka ansi vandfýsin á það sem ég les. En þetta verkefni sem hefur nú tekið nokkur ár í þróun og á eftir að endast mér ævina á enda hefur gefið mér góða afsökun fyrir því að leggjast í lestur. Skoða verk höfunda frá öllum heims- hornum en núna erum við komin með stjórn þar sem hugmyndirnar streyma inn og satt best að segja fallast mér nánast hendur yfir öllum þeim bókum sem ég þarf að lesa á næstunni,“ segir Katie skellihlæjandi. „En núna finnum við líka að Gefur okkur von þrátt fyrir vonleysi mannkyns Sjón varð fyrir skömmu þriðji rithöfund- urinn til þess að leggja verk inn í Fram- tíðarbókasafn skosku listakonunnar Katie Paterson í Osló. Þar mun verkið liggja ólesið fram til ársins 2114. Katie Paterson, Sjón og Anne Beate Hovind í skóginum utan við Ósló þar sem bækur Framtíðarbókasafnsins gróa og skáldið afhenti verk sitt til varðveislu. KAtie PAterSon, Future LiBrAry 2014-2114/PHoto ©BjørviKA utviKLing By KriStin von HirScH Katie Paterson við einn af græðlingunum sem eftir hundrað ár verða að pappír bókanna á Framtíðarbókasafninu. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ↣ 1 1 -0 6 -2 0 1 7 1 7 :3 9 F B 1 2 8 s _ P 1 0 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 0 D -6 F F 0 1 D 0 D -6 E B 4 1 D 0 D -6 D 7 8 1 D 0 D -6 C 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 2 8 s _ 9 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.