Fréttablaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 40
Taekwondodeild Fram auglýsir eftir dugmiklum einstaklingi til að sinna starfi yfirþjálfara hjá félaginu. Viðkomandi þjálfari þarf að vera með reynslu, getað verið fyrirmynd iðkenda, vera metnaðarfullur, með hreint sakavottorð og tilbúinn að vinna skv. stefnu deildarinnar. Áhugasamir eru beðnir um að senda umsókn ásamt ferilskrá á tkdfram@gmail.com fyrir 15. júlí 2017. Stjórn Taekwondodeildar Fram Skóla- og frístundasvið Aðstoðarskólastjóri - Breiðholtsskóli Laus er til umsóknar staða aðstoðarskólastjóra í Breiðholtsskóla. Breiðholtsskóli er heildstæður grunnskóli í neðra Breiðholti með um 400 nemendur í 1.-10. bekk. Breiðholtsskóli er fjölmenningar- legur skóli þar sem virðing er borin fyrir ólíkum hæfileikum og komið til móts við þarfir nemenda. Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, list- og verkgreinar, samþættingu bóknámsgreina og upplýsingamenntar á öllum stigum. Kennarar vinna saman í teymum í tilteknum árgöngum og fögum. Unnið er eftir PBS kerf inu um stuðning við jákvæða hegðun og kjörorð skólans er Árang ur fyrir alla. Breiðholtsskóli tekur þátt í verkefninu Heilsueflandi Breiðholt og Læsi allra mál ásamt öðrum leik- og grunnskólum í Breiðholti. Við skólann starfar öflugt foreldrafélag sem fékk samfélagsverðlaun Fréttablaðsins 2017 fyrir fjölmenn- ingarhátíð í hverfinu og gott samstarf er við félagsmiðstöðina Bakkann og frístundaheimilið Bakkasel. Helstu verkefni og ábyrgð • Að vera í forystu um mótun og framkvæmd faglegrar stefnu skólans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Reykjavíkurborgar. • Að leiða faglega forystu í skólanámskrárvinnu og skólaþróunarverkefnum. • Að bera ábyrgð á og stjórna daglegri starfsemi skólans í samstarfi við skólastóra. • Að vinna að öflugu samstarfi innan skólasamfélagsins. • Að stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk. Hæfniskröfur • Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. • Kennslureynsla í grunnskóla. • Framhaldsmenntun æskileg. • Stjórnunarreynsla æskileg. • Stjórnunarhæfileikar. • Reynsla af faglegri forystu í skólaþróunarverkefnum. • Metnaður í starfi og áhugi á skólaþróun. • Lipurð og færni í samskiptum. • Sjálfstæði í vinnubrögðum. Umsókn fylgi kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið, yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið grunnskólakennari, auk annarra gagna er málið varðar. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. ágúst 2017. Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí 2017. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveit- arfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Skólastjórafélags Íslands. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf Nánari upplýsingar veitir Guðlaug Sturlaugsdóttir, starfandi skólastjóri, sími 411-1111. Netfang: gudlaug.sturlaugsdottir@reykjavik.is Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Merki ráðuneytanna í 4 litum fyrir dagblaðaprentun Starf sérfræðings í mennta- og menningarmálaráðuneytinu Auglýst er laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu mennta- og vísindamála í mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins, menntamalaraduneyti.is Umsóknarfrestur er til og með 20. júlí 2017 Helstu verkefni og ábyrgð Ber ábyrgð á rekstri heilsugæslustöðvar gagnvart framkvæmdastjórn Skipuleggur heilsugæsluþjónustu í umdæmi stöðvar Þróar nýjungar og vinnur að breytingum í starfsemi Mótar, innleiðir og endurskoðar verkferla Byggir upp og styður við teymisvinnu og þverfaglegt samstarf Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu Stuðlar að gæðaþróun og árangursmati í starfi stöðvar Tekur þátt í gerð áætlana varðandi rekstur, þjónustu og áherslur í starfsemi stöðvar Er faglegur yfirmaður á sínu sviði Sinnir klínísku starfi eins og aðstæður leyfa Hæfnikröfur Heimilislæknir Reynsla af starfi í heilsugæslu Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar Reynsla af þróunarstarfi og breytingastjórnun æskileg Nám í stjórnun æskilegt Hæfni í mannlegum samskiptum Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt Aðrir eiginleikar Vilji til að veita framúrskarandi þjónustu og efla heilbrigði íbúa svæðisins Áhugi og hæfni til að leiða þverfaglegt starf heilsugæslunnar Áhugi og hæfni til að nýta aðferðafræði straumlínustjórnunar Vilji til að skapa gott starfsumhverfi Nánari upplýsingar Starfshlutfall er 100% og verður ráðið í starfið til 3 ára frá og með 1. september 2017 eða eftir nánara samkomulagi. Upplýsingar veitir: Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri, s. 585-1300, svanhvit.jakobsdottir@heilsugaeslan.is Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðis- þjónustunni þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Flóknari vandamál, þörf fyrir fjölbreyttari úrræði og skortur á sérhæfðu starfsfólki kallar á nýja nálgun í starfsemi heilsugæslustöðva. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hefur gert breytingu á skipulagi og rekstri heilsugæslustöðva sem miðar að því að auka þjónustu við notendur, nýta betur fjármuni og að bæta vinnuumhverfi starfsmanna. Til að gera þjónustuna markvissari er lagt upp með teymisvinnu sem grunnstef í starfsemi stöðva, ásamt innleiðingu aðferða straumlínustjórnunar. Þverfagleg teymi heilbrigðisstarfsfólks munu auðvelda stöðvum að taka á flóknum vandamálum með fjölbreyttum úrræðum. Í breyttu skipulagi fær starfsfólk aukið sjálfstæði til að móta starfsemina og til að útfæra þjónustu sem mætir þörfum íbúa og uppfyllir um leið kröfur um árangur samkvæmt mælingum og mati. Svæðisstjóri og fagstjóri lækninga Heilsugæslunni Grafarvogi Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar starf svæðisstjóra Heilsugæslunnar Grafarvogi. Svæðisstjóri mun jafnframt gegna samhliða starfi fagstjóra lækninga samkvæmt nýju skipulagi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfileika. Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí 2017. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast til Svövu K. Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á viðtölum við umsækjendur og á innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Sækja skal um á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is) undir laus störf eða á Starfatorgi (www.starfatorg.is). www.hagvangur.is Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi 2 4 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :1 9 F B 0 8 8 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 2 C -C 2 7 0 1 D 2 C -C 1 3 4 1 D 2 C -B F F 8 1 D 2 C -B E B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 8 8 s _ 2 3 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.