Fréttablaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 8
Augnlæknar
Starfsaðstaða til boða
Vegna aukinna umsvifa og stækkunar á húsnæði býður
Augljós upp á nýja starfsaðstöðu til afnota á sviði almennra
augnlækninga. Unnt er að nýta augnlæknastofuna hluta úr
viku eða að fullu til lengri eða skemmri tíma.
Augljós leggur áherslu á að vera í fararbroddi varðandi:
• læknisfræðileg úrlausnarefni
• tækni
• þjónustu
Umsóknum skal skilað fyrir 5. júlí n.k. á thorunnelva@augljos.is
Upplýsingar veitir Þórunn Elva Guðjohnsen framkvæmdastjóri
í síma 894 0456
Glæsibær, Vesturhús, 2. hæð • Álfheimar 74 • 104 Reykjavík
Í pistli Stjórnarmannsins í
Markaðnum á miðvikudag
sagði að Tilboð aldarinnar hjá
Hamborgarabúllu Tómasar kostaði
2.600 krónur. Hið rétta er að það
kostar 1.890 krónur.
Leiðrétting
engLAnD Yfirvöld í Lundúnum hafa
keypt 68 íbúðir í lúxusfjölbýlishúsi á
Kensington Row fyrir þá sem misstu
húsnæðið í eldsvoðanum í Grenfell-
turninum. Nokkrir íbúar á Kensing-
ton Row eru ósáttir og segja þetta
draga úr virði íbúða sinna.
Íbúarnir sem fyrir eru segjast hafa
greitt háar upphæðir fyrir íbúðir sínar
í fjölbýlishúsinu en þar er sundlaug,
gufubað, kvikmyndasalur og dyra-
gæsla allan sólarhringinn. Íbúðir
sem nú eru til sölu í lúxusblokkinni
kosta frá 1,6 milljónum punda til 8,5
milljóna punda. Íbúðirnar sem bjóð-
ast þeim sem misstu húsnæði sitt í
Grenfell-turninum eru meðal þeirra
ódýrari. Óljóst er hvort nýju íbúarnir
fái aðgang að því í sameigninni sem
nefnt er hér að framan.
Sumir íbúanna á Kensington Row
benda á að margar íbúðanna í Gren-
fell-turninum hafi verið í framleigu.
Þeir sem hafi verið með leigusamning
þar muni fá nýtt húsnæði í lúxusfjöl-
býlishúsinu og framleigja það síðan.
Þeir sem bjuggu í raun í turninum
verði áfram húsnæðislausir. – ibs
Telja sig tapa á
fórnarlömbum
Íbúar Grenfell-turnsins fá íbúðir í
lúxusblokk. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
eFnAHAgSMÁL Atvinnuþátttaka á
Íslandi er orðin mjög mikil í sögu-
legu samhengi, að sögn sérfræð-
inga hagfræðideildar Landsbank-
ans. Þeir benda á að 85 prósent af
heildarmannfjölda á vinnualdri
hafi verið virk á vinnumarkaði í
maímánuði. Sé litið til tólf mán-
aða meðaltals hefur þátttakan
verið tæplega 84 prósent síðustu
mánuði.
Samkvæmt nýjum mælingum
Hagstofu Íslands var atvinnuleysi
5,3 prósent í maí sem er aukning
um 3,6 prósentustig á tveimur
mánuðum. – kij
Atvinnuþátttaka
sögulega mikil
DAnMÖrK Dómsmálaráðherra Dan-
merkur, Søren Pape Poulsen, segir
það skjóta skökku við að sá sem
berar sig fyrir framan aðra fái vægari
refsingu en sá sem birtir myndir úr
eftirlitsmyndavél af viðkomandi.
Hann vill að flassarar fái þyngri
refsingu.
Maður sem beraði sig fyrir fram-
an tvær 10 ára stúlkur á bak við
verslun var dæmdur til að greiða
2.500 danskar krónur í sekt. Móðir
annarrar stúlkunnar tók mynd af
manninum með farsímanum sínum
af myndbandi úr eftirlitsmyndavél.
Hún birti myndina á Facebook og
hvatti fólk til að deila henni. Móð-
irin neitaði að greiða sekt upp á
5.000 danskar krónur fyrir að brjóta
persónuverndarlög og málið fór
fyrir rétt.
Vegna galla í ákæru var móðirin
sýknuð. Hún hefur nú verið ákærð
að nýju og þarf að mæta fyrir dóm.
– ibs
Flassarar fái
þyngri refsingu
ViðSKiPti Alls eru tæplega 50 milljarð-
ar af 5 og 10 þúsund króna seðlum í
umferð hér á landi. Það eru tæplega 87
prósent af öllum seðlum í umferð og
tæp 82 prósent af öllu reiðufé í umferð
hér á landi.
Starfshópar á vegum fjármálaráðu-
neytisins skiluðu í fyrradag skýrslum
með ábendingum og leiðum til að
koma í veg fyrir skattsvik.
Meðal hugmynda í skýrslunum
var að hætta notkun 5 og 10 þúsund
króna seðla og fjölga minni seðlum
á móti. Þá var einnig lagt til að
Seðlabankinn, eða annar opinber
aðili, kæmi til með að sjá um útgáfu
greiðslukorta.
Hlutfall reiðufjár í umferð er oft
metið sem hlutfall af vergri lands-
framleiðslu. Hlutfallið hér á landi
hefur yfirleitt verið frekar lágt en
aldarfjórðunginn fyrir hrun var það
til að mynda yfirleitt í kringum eitt
prósent.
Eftir að hrunið skall á var það aukið
og hefur að undanförnu verið 2,25
prósent. Hlutfallið er með því lægsta
sem þekkist en það er til að mynda
um níu prósent á Evrusvæðinu, um
sjö prósent í Bandaríkjunum og
fjögur prósent á Bretlandseyjum.
Þegar niðurstöður starfshópanna
voru kynntar sagði Benedikt Jóhann-
esson, fjármála- og efnahagsráðherra,
að verið væri að „lýsa bókstaflega yfir
stríði“ gegn skattsvikum. Fulltrúa frá
Seðlabanka Íslands var ekki að finna
í nefndinni.
Óhætt er að segja að tillögurnar
sem lutu að reiðufénu hafi fallið í
grýttan jarðveg. Gagnrýni fólks var
af misjöfnum toga.
Sumir töldu tillögurnar skerða frelsi,
aðrir litu til persónuverndarsjónar-
miða og enn aðrir höfðu áhyggjur af
eldri frændum og frænkum í ferm-
ingarveislum framtíðarinnar.
Hlutfall reiðufjár í umferð hér
með því minnsta sem þekkist
Tillaga um að fjarlægja 5 og 10 þúsund króna seðla úr flóru reiðufjár féll í grýttan jarðveg. Benedikt Jóhann-
esson fjármálaráðherra dró í land með hugmyndina í gær. Hlutfall reiðufjár hér er með því lægsta sem þekk-
ist. Í Sviss er stærsti seðillinn jafnvirði 107 þúsund króna. Stærsti evruseðillinn jafngildir 58.000 krónum.
Stórir seðlar erlendis
Danmörk – 1.000 DKR – 15.620 IKR
Bandaríkin – 100 USD – 10.370 IKR
Bretland – 100 GBP – 13.200 IKR
Svíþjóð – 1.000 SKR – 11.900 IKR
Noregur – 1.000 NKR – 12.280 IKR
Evrusvæðið – 500 EUR – 58.080 IKR
Sviss – 1.000 CHF – 107.060 IKR
Hugmynd sem fjármálaráherra kynnti um að taka stóra peningaseðla úr umferð mætti andstöðu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í raun var jarðvegurinn svo grýttur
að ráðherrann var gerður afturreka
með hugmyndirnar. Birti hann pistil
þess efnis í gær og sagði þjóðina ekki
tilbúna í slíkar aðgerðir. Gagnrýnina
var ekki síst að finna úr röðum annars
stjórnarflokks, Sjálfstæðisflokksins.
Hluti þeirra sem voru andvígir
hugmyndinni benti á reynslu Ind-
verja en fyrir hálfu ári tóku stjórn-
völd 500 og 1.000 rúpía seðla fyrir-
varalaust úr umferð.
Aðgerðin skapaði mikinn glund-
roða í samfélaginu og lamaði efna-
hagskerfið um skeið. Ólíkt er hins
vegar að sambærileg aðgerð hér á
landi myndi hafa svipuð áhrif. Áætl-
að er að um 90 prósent viðskipta Ind-
verja séu gerð með reiðufé en talan
hér á landi er innan við tíu prósent.
Sé litið til nágrannalanda okkar,
eða þeirra landa sem Íslendingar
skipta einna oftast við, má sjá að í
flestum þeirra er stærsti seðillinn
ekki langt frá því að vera sambæri-
legur íslenska Jónasinum um þessar
mundir. Evrusvæðið og Sviss bjóða
síðan upp á seðla sem eru umtalsvert
verðmeiri.
johannoli@frettabladid.is
2 4 . j ú n í 2 0 1 7 L A U g A r D A g U r8 F r é t t i r ∙ F r é t t A B L A ð i ð
2
4
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:1
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
2
C
-A
4
D
0
1
D
2
C
-A
3
9
4
1
D
2
C
-A
2
5
8
1
D
2
C
-A
1
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
8
8
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K