Fréttablaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 62
Minningar frá útskriftarferðum Nú er komið að uppskeruhátíð þeirra sem eru að útskrifast. Margt fólk fagnar skólalokum með því að skella sér í útskriftarferð út fyrir landsteinana og safna góðum minningum með samnemendum sínum. Fréttablaðið fékk nokkra einstaklinga til að rifja upp sína útskriftarferð og segja lesendum frá eftirminnilegum atvikum. Útskriftarferðin mín var yndisleg í alla staði; öl og ævintýri á Algarve. Við félagarnir, ég og Hafþór Ragnars- son, vorum saman nánast allan tímann – reyndar fyrir utan nóttina þegar ég þurfti að vaka vegna þess að ég fékk heilahristing þegar ég stakk mér í sundlaugina í fyrsta skipti í ferðinni og ekki vildi betur til en svo að það var grunni endi laugarinnar, Haffi nennti nú ekki að sinna því. Eftirminnilegust er lestarferð okkar félaganna. Aðrir í hópnum höfðu farið í skipulagða ferð til Lissabon og gist á einhverju fíneríshóteli, Silchoro. Við félagarnir töldum slíkt okkur ekki samboðið, við vildum kynnast fólkinu í Portúgal betur. Við fengum lánuð interrail-kort frá tveimur vinkonum okkar, breyttum Mrs. í Mr. og héldum á vit ævin- týranna. Við fórum út á lestarstöð með það fyrir augum að taka lest eitthvert út í buskann. Stöldruðum við á krá og innbyrtum töluvert af púrtvíni, enda í Portúgal. Tókum næstu lest og eftir samskipti við lestarvörð komumst við að því að hún fór til Lissabon. Þangað komum við undir morgun, þreyttir og slæptir. Við tók barátta við leigubílstjóra, en að lokum fengum við inni á hóteli sem tók kreditkort, sem var nauðsynlegt vegna fjárhagsstöðu okkar. Það reyndist þá vera umrætt fíneríshótel, Silchoro. Rándýrt og fínt, þannig að við höfð- um bara efni á einni nótt, en henni eyddum við á herberginu að horfa á Terminator 1 og 2. Portúgölsku þjóðinni kynntumst við ekki betur en þetta. Undir lok frönsku- námsins í HÍ fór ég í snemmbúna útskriftarferð með frá- bærum hópi til fyrrverandi nýlendu ríkis Frakka, Túnis. Við vorum svo heppin að Gérard Lemarquis tók að sér að vera leið- sögumaður fyrir hópinn en hann hafði kennt okkur um franska sögu og menningu og þekkir mjög vel til í Norðvestur-Afríku (eða Maghreb eins og Frakkarnir kalla það). Hann skipu- lagði stórskemmtilega dagskrá en við fórum meðal annars í eyðimerkurferð á úlföldum, skoðuðum töku- staði Star Wars bíómyndanna, gengum daglangt um Sahara, fórum í skrautlegan hjól- reiðaleiðangur þar sem 80% hjólanna, sem frændi eins þjónsins á hótelinu var svo sætur að leigja okkur, reyndust biluð eða ónýt. Fljótlega eftir að við lögðum af stað byrjuðu dekk, stýri og hnakkar að hrynja af hjólunum. Þar af leiddi að einungis örfáir komust á leiðarenda og voru í þeim hópi nokkrir sem þurftu að bera hjólin sín síðustu nokkur hundruð metrana. Ég hugsa að innfæddir, sem við mættum á sand- stígunum sem við þjösnuðumst áfram um, hafi ekkert skilið í okkur að vera ekki á úlfalda eins og þeir. Minningin af yndislegri, hvítri baðströndinni sem hótelið okkar stóð við, azure-bláum sjónum, pálmatrjánum, dansi, söng og mikilli gleði lifir fersk og ég rifja þessa ferð oft upp. Ég fer þangað aftur við fyrsta tækifæri! Ég fór í Menntaskólann á Akureyri og þar er sterk hefð fyrir því að þriðji bekkur fari í útskriftarferð. Við vorum dugleg að selja alls konar varning og tókum okkur til og týndum rusl á Akureyri fyrir áheit. Svo þegar komið var að því að fara til Cancun í Mexíkó fékk ég óvænt pláss á togara og ákvað að þiggja það í staðinn fyrir að fara í ferðina. Þótt það hafi kannski litið skynsamlega út á þeim tíma þá myndi ég glaður spóla til baka og ákveða að fara frekar í ferðina. Það er hefð fyrir því í MA að afmælisárgangar hittist á 16. júní ár hvert. Í hvert skipti sem við höldum upp á stúdentsafmælið okkar eru meðal annars rifjaðar upp minningar úr ferðinni sem ég fór ekki í. Ég ráðlegg engum að sleppa útskriftar- ferð vegna vinnu, við eigum hvort sem er eftir að vinna það sem eftir er ævinnar. Ungt fólk á að njóta þess að vera án skuldbindinga. Ég hugsa að ég hefði frekar átt að berjast við feitan kredit- kortareikning og fá minn- ingar úr ferðinni í staðinn. Það er um að gera að vera örlítið kærulaus stundum, við höfum öll gott af því. Ég fór í útskriftarferð með MA sumarið 2003 til Salou á Spáni. Síðasta daginn ákvað ég og félagi minn, Haukur Sigurðarson, að vakna eldsnemma og taka lestina til Barcelona þar sem ég hafði bitið það í mig að vilja kaupa Blues Brothers hatt í frá- bærri hattabúð sem leyndist þar. Lestarferðin tók 90 mínútur, leitin að búðinni enn lengri tíma og loksins þegar við fundum hana var komin siesta og búðin lokuð. Þar sem flugið okkar heim var um kvöldið gátum við ekki beðið og tókum þess vegna lestina aftur til baka, en þar sem við höfðum vaknað svona snemma vorum við auðvitað þreyttir og enduðum á því að steinsofna báðir. Þegar við vöknuðum könnuðumst við ekkert við okkur, vorum umkringdir fjöllum sem við höfðum bara séð úr fjarlægð áður og þegar lestin stoppaði loks kom í ljós að við vorum komnir lengst í burtu frá Salou, eitthvert lengst út í sveit. Eina byggingin á svæðinu var hrörlegur brautarpallur. Sem betur fer kom lest stuttu seinna sem var á leiðinni aftur til baka, en þá föttuðum við auðvitað að miðinn okkar var útrunninn. Og bara til að gera þetta enn meira spenn- andi kom lestarvörður um borð. Við rétt sluppum. Ég fór í útskriftarferð til Krítar með Mennta- skólanum í Kópa- vogi sumarið 2003, rétt áður en útskriftarárið hófst. Ferðin byrjaði strax skrautlega þar sem ferðaskrif- stofan bauð afslátt ef borgað var með kreditkorti. Þannig eignuðumst við mörg okkar fyrsta VISA kort og fórum út með dýpri vasa en við áttum að venjast. Vinahópurinn minn var grand á því, framlengdi ferðina um viku og áttum við því þrjár ljúfar vikur úti þar sem eina vandamálið var að rífa sig nægi- lega snemma á fætur eftir partístand næturinnar til að ná vænum tíma í sólinni. Það var algjör nauðsyn þar sem brúnkan var á þessum tíma mark- tæk mæling á það hversu vel ferðin heppnaðist. Við gerðum þó okkar besta til að vera menningarleg og borðuðum himneskan grískan mat, drukkum lí- kjörinn Ouzo, þjóðardrykk Grikkja, eftir hvert mál og ferðuðumst til höfuð- borgarinnar Aþenu. Hópurinn fór líka til eldfjallaeyjunnar Santorini, sem er paradís á jörðu. 18 ára Hugrún var þó ekki alveg að einbeita sér að því sem skipti máli. Hún var upptekin við að rölta um króka og kima og horfa gaumgæfilega á fólk, fram hjá sól- gleraugum og höttum. Leikararnir Jennifer Aniston og Brad Pitt voru nefnilega líka á eyjunni og náðu að stela þrumunni án þess að láta sjá sig. Santorini er því enn á „bucket-listanum“, mínum, sem er alls ekki slæmt þar sem ég gæti alveg hugsað mér að endurtaka leikinn og lifa þessu góða gríska lífi aftur. Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Hugrún Halldórsdóttir fjölmiðlakona Lestarævintýri og fíneríshótel eftirminnilegt Jennifer Aniston og Brad Pitt voru á eyjunni Eignaðist aldrei Blues Brothers hattinn Ævar Þór Benediktsson leikari og rithöfundur Jóna Sólveig Elínardóttir þingkona Ferðuðust um á ónýtum hjólum Fljótlega eFtir að við lögðum aF stað byrjuðu dekk, stýri og hnakkar að hrynja aF hjólunum. Magnús Helgason rithöfundur Það leit skynsamlega út að velja frekar starf á togara við Fengum lánuð interrail-kort Frá tveimur vinkonum okkar, breyttum mrs. í mr. og héldum á vit ævintýranna. Kolbeinn Óttarsson Proppé Þannig eignuðumst við mörg okkar Fyrsta visa kort og Fórum út með dýpri vasa en við áttum að venjast. Ljúft líf í Portúgal... Guðný Hrönn gudnyhronn@365.is 2 4 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R30 H e L G i n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 2 4 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :1 9 F B 0 8 8 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 2 C -9 A F 0 1 D 2 C -9 9 B 4 1 D 2 C -9 8 7 8 1 D 2 C -9 7 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 8 8 s _ 2 3 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.