Fréttablaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 42
10 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 4 . j ú n í 2 0 1 7 LAUGARDAGUR
Við viljum ráða góðan starfsmann,
konu eða karl, til að starfa við undirbúning
ástandsgreininga, vinnslu útboðsgagna,
teikninga o.fl. í samstarfi við
verkefnastjóra.
Við leitum að:
• Byggingariðnfræðingi.
• Tækniteiknara.
• Iðnmeistara.
…eða réttum aðila með aðra menntun.
Starfsreynsla er kostur en ekki skilyrði.
Viðkomandi þarf að:
• Vera skipulagður, vandvirkur og vinnusamur.
• Hafa gott vald á rituðu máli.
• Hafa góða tölvukunnáttu.
• Búa yfir lipurð í samskiptum.
Upplýsingar veitir Andri Már Reynisson í síma 433-6304.
Einnig á tölvupósti – andri@verksyn.is.
Umsóknarfrestur er til 6. júlí nk.
Félagsráðgjafi eða sálfræðingur
óskast til starfa hjá félagsþjónustu
Borgarbyggðar
Félagsþjónusta Borgarbyggðar leitar að félagsráðgjafa eða
sálfræðingi til starfa. Um er að ræða 100% starf.
Helstu verkefni eru að annast greiningu og meðferð barna
verndarmála, félagsleg ráðgjöf og fjárhagsaðstoð, þjónusta og
ráðgjöf við fólk með fötlun, þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
og forvarnarstarf og fræðsla.
Menntun og hæfniskröfur:
o Starfsréttindi sem félagsráðgjafi eða sálfræðingur
o Reynsla á sviði barnaverndar æskileg
o Lipurð í mannlegum samskiptum
o Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi
o Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stét
tarfélags við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Samkvæmt starfsmannastefnu Borgarbyggðar er lögð áhersla
á starfsþróun og sveigjanlegan vinnutíma og eru karlar jafnt
sem konur hvött til að sækja um starfið.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og
umsagnaraðilum berist til borgarbyggd@borgarbyggd.is fyrir
10. júlí 2017.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Inga Vildís Bjarnadóttir,
félagsmálastjóri í síma 433 7100, netfang: vildis@borgarbyggd.is
og Anna Magnea Hreinsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs í síma
840 1522, netfang: annamagnea@borgarbyggd.is
Fáist ekki félagsráðgjafi eða sálfræðingur til starfa kemur til
greina að ráða einstakling með aðra háskólamenntun sem
nýtist í starfi.
Leikskólakennari óskast á leik-
skólann Hnoðraból í Reykholtsdal
Leikskólinn Hnoðraból er tveggja deilda leikskóli staðsettur í
fallegu umhverfi sem starfar eftir hugmyndafræðinni Leiðtoginn
í mér. Þar dvelja að jafnaði 21 börn á aldrinum 12 mánaða til
5 ára.
Óskað er eftir leikskólakennara sem getur hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
o Leikskólakennari vinnur að uppeldi og menntun
leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
Menntunar- og hæfniskröfur:
o Leikskólakennaramenntun
o Færni í mannlegum samskiptum
o Sjálfstæð vinnubrögð
o Skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður
o Góð íslenskukunnátta
Ef ekki fæst leikskólakennari í stöfin kemur til greina að ráða
starfsmenn með háskólapróf eða aðra uppeldismenntun og /
eða reynslu.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru jafnt karlar
sem konur hvött til að sækja um störf hjá sveitarfélaginu.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2017
Umsóknir skulu sendar rafrænt á sjofn@borgarbyggd.is
Nánari upplýsingar veitir Sjöfn G.Vilhjálmsdóttir leikskólastjóri í
síma 433-7180 eða 862-0064, eða í tölvupósti,
sjofn@borgarbyggd.is
Deildarstjóri yngsta stigs
Grunnskóli Grindavíkur auglýsir stöðu deildarstjóra
yngsta stigs frá og með 1. ágúst næstkomandi.
Starfssvið deildarstjóra
Deildarstjóri er millistjórnandi með mannaforráð og ber ábyrgð á
skólahaldi á skólastigi.
Fylgist með nýjungum á sviði kennslu og er leiðandi í faglegri
umræðu.
Samskipti við nemendur og foreldra.
Umsjón með sérúrræðum nemenda í samráði við kennara og aðra
stjórnendur.
Menntunar og hæfniskröfur deildarstjóra
Við leitum að einstaklingi með réttindi til kennslu í grunnskóla sem
er metnaðarfullur, víðsýnn og góður í mannlegum samskiptum,
hefur skipulagshæfileika, er sveigjanlegur og tilbúinn að leita
nýrra leiða í skólastarfi.
Reynsla af stjórnun og stjórnunarstörfum er æskileg.
Framhaldsmenntun í stjórnun er æskileg.
Allur aðbúnaður og umhverfi skólans er til fyrirmyndar.
Sjá nánar á heimasíðu skólans
http://www.grindavik.is/grunnskolinn.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut 2, 240
Grindavík eða sendist á netfangið gudbjorgms@grindavik.is fyrir
8. júlí n.k.
SKÓLAÞJÓNUSTA RANGÁRVALLA-
OG VESTUR - SKAFTAFELLSSÝSLU,
HVOLSVELLI, AUGLÝSIR LAUST
STARF KENNSLURÁÐGJAFA.
Leitað er að ráðgjafa í sérkennslu og almennri kennslu
í grunnskólum. Krafist er almennra kennsluréttinda og
mennt unar í sérkennslufræðum, auk reynslu af sér kennslu
í grunnskóla. Reynsla af kennsluráðgjöf er æskileg, auk
réttinda á helstu greiningartæki sem notuð eru til að
greina námserfiðleika nemenda. Um getur verið að ræða
eftir atvikum 50 - 100% starf.
Skólaþjónustan veitir fimm grunnskólum á svæðinu lög-
bundna sérfræðiþjónustu. Við stofnunina starfar þegar
öflug liðsheild sérfræðinga sem samanstendur af forstöðu-
manni, leikskólaráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa og
sálfræðingi. Leitað er að áhugasömum og jákvæðum ein-
staklingi sem býr yfir góðri samskiptahæfni, sjálfstæði í
vinnubrögðum og sveigjanleika og frumkvæði í starfi.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands vegna
starfsmanna á skólaskrifstofum.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí nk., en gert er ráð fyrir að
ráða í stöðuna frá 1. september. Umsóknir ásamt náms- og
starfsferilsskrá berist á netfangið skolamal@skolamal.
is, eða í pósti á Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-
Skaftafellssýslu, b.t. Eddu G. Antonsdóttur forstöðumanns,
Ormsvelli 1, 860 Hvolsvelli. Nánari upplýsingar veitir Edda í
netfanginu edda@skolamal.is eða í síma 862-7522.
Stálorka óskar eftir
Stálorka óskar eftir að ráða menn til framtíðarstarfa vana
smíði úr ryðfríu stáli og áli. Aðalstarfsvið er smíði á búnaði
í skip og báta. Hægt er að senda inn umsóknir á
stalorka@simnet.is eða hafa samband við Benedikt
í síma 8927687 á virkum dögum milli 8 og 18.
STÁL~ORKA
SKIPAVIÐGERÐIR
HVALEYRARBRAUT 37 220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI 565-0399 GSM 892-7687
SMIÐUR ÓSKAST
Okkur vantar reynslumikinn smið
sem getur unnið sjálfstætt,
er hraustur og á auðvelt með að
vinna með öðrum.
Við sinnum fjölbreyttum viðhaldsstörfum
og trésmíðavinnu á Reykjavíkursvæðinu
fyrir trausta aðila.
Nánari upplýsingar veitir Daníel
í síma 8-59-59-00
Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið
husihus@husihus.is
2
4
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:1
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
2
C
-D
6
3
0
1
D
2
C
-D
4
F
4
1
D
2
C
-D
3
B
8
1
D
2
C
-D
2
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
8
s
_
2
3
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K