Fréttablaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 76

Fréttablaðið - 24.06.2017, Blaðsíða 76
Hvað? Hvenær? Hvar? Laugardagur hvar@frettabladid.is 24. júní 2017 Tónlist Hvað? Jónas Sig og Ritvélarnar á ferð um landið Hvenær? 18.00 Hvar? Drangey music festival, Reykjum Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinn­ ar ætla að endurtaka leikinn frá því í fyrrasumar og fara í útilegutúr hringinn í kringum landið, nema í þetta sinn eru það fleiri dagar og fleiri staðir. Í kvöld verða þeir á Drangey music festival þar sem náttúrufegurðin er hluti tónleika­ upplifunarinnar. Hvað? Gumbo og Steini Hvenær? 15.00 Hvar? Jómfrúin, Lækjargötu Á fjórðu tónleikum sumartón­ leikaraðar veitingahússins Jómfrú­ arinnar við Lækjargötu, laugardag­ inn 24. júní, kemur fram hljóm­ sveitin Gumbo og Steini. Hún var, eins og lesa mætti úr nafninu, sett saman til að heiðra tónlistarhefð suðurríkja Bandaríkjanna, og þá sérstaklega arfleifð New Orleans og nágrannabyggða, en gumbo er ólgandi bragðmikil baunakássa með kjöti og hrísgrjónum sem er þar í hávegum höfð. Hvað? Ljótu hálfvitarnir Hvenær? 22.00 Hvar? Græni hatturinn, Akureyri Hörðustu aðdáendur Ljótu hálfvit­ anna vita yfirleitt nokkurn veginn að hverju þeir ganga þegar þeir mæta á Græna hattinn. Hæfileg blanda af þekktustu smellum hálf­ vitanna, minna þekktum smellum og dassi af algerlega óþekktum ekkismellum, römmuð inn með ábyrgðarlausu gamanmáli. Hvað? Síðustu tónar Shostakovich - Reykjavík Midsummer Music Hvenær? 23.00 Hvar? Mengi, Óðinsgötu Þessir lágnættistónleikar í Mengi eru helgaðir síðasta verkinu sem Dmitri Shostakovich festi á blað, víólusónötunni, sem tónskáldið lauk við fáeinum vikum fyrir and­ látið. Einn fremsti víóluleikari heims, Maxim Rysanov leikur með Víkingi Heiðari Ólafssyni. Verkið er sannkallað meistaraverk, býr jafnt yfir harmrænni dýpt og tærum gáska. Það er vel við hæfi að flytja þetta verk frá ævikvöldi tónskáldsins seint um kvöld: Í þriðja kafla sónötunnar bregður fyrir skýrum vísunum í Tunglskins­ sónötu Ludwigs van Beethoven. Aðgangseyrir er 2.000 krónur. Hvað? Björn Steinar Sólbergsson á Orgelsumri Hvenær? 12.00 og 17.00 Hvar? Hallgrímskirkja Á Alþjóðlegu orgelsumri 2017, sem nú er haldið 25. sumarið í röð, koma fram afburða konsertorgan­ istar í fremstu röð frá ýmsum löndum. Björn Steinar Sólbergsson heldur tvenna tónleika um helg­ ina, kl. 12 laugardaginn 24. júní og kl. 17 sunnudaginn 25. júní í Hall­ grímskirkju. Björn Steinar er einn færasti organisti landsins og starfar sem organisti í Hallgrímskirkju. Viðburðir Hvað? Tvær einkasýningar: Hulda Vilhjálmsdóttir og Þorgerður Þórhalls- dóttir Hvenær? 17.00 Hvar? Kling & Bang, Marshallhúsinu Hulda Vilhjálmsdóttir opnar sýn­ inguna Valbrá og Þorgerður Þór­ hallsdóttir sýninguna Kóreógraf­ ískt ljóð fyrir hljómsveit. Sýning­ arnar standa til 13. ágúst. Hvað? RUIJA – A Folk Dance Hvenær? 20.00 Hvar? Tjarnarbíó, Tjarnargötu Sænski danshöfundurinn Martin Forsberg hefur fengið til liðs við sig sex magnaða dansara frá Finn­ landi, Svíþjóð og Noregi til að skapa sýningu inspíreraða af þeim mikla fólksflótta sem á sér stað víða í heiminum í dag. Athugið! Aðeins ein sýning. Hvað? Happy People eftir Arnar Ásgeirsson - Opnun Hvenær? 17.00 Hvar? Nýlistasafnið, Marshallhúsinu Dularfullum skúlptúrum hefur verið komið fyrir í framúrstefnu­ legum vatnspípum og bíða þess að þú, kæri gestur, komir og reykir þá. Neytir þeirra og andir þeim að þér með ávaxtakeim. Reykingasere­ móníurnar eru tilraunir til að njóta listar á nýjan hátt. Vikulega verður verkum í pípunum skipt út og með því myndast flæðandi hring­ rás í rýminu. Á hverri reykinga­ sermóníu verður dagskrá lifandi gjörninga og viðburða. Við opnun sýningarinnar býðst gestum að reykja verk eftir Hrafnhildi Helga­ dóttur, Mehraneh Atashi, Eggert Pétursson, Loidys Carnero og Hrein Friðfinnsson. Hvað? Hvenær? Hvar? Sunnudagur hvar@frettabladid.is 25. júni 2017 Tónlist Hvað? Sunnudagshugvekja með Jónasi Sig og Ritvélum framtíðarinnar Hvenær? 21.30 Hvar? Café Rosenberg, Klapparstíg Jónas Sig ásamt Ritvélum fram­ tíðarinnar og góðum vinum munu flytja sunnudagshugvekju á nýupp­ gerðu Rosenberg í allt sumar. Um er að ræða einstaka tilraunatónleika­ röð þar sem Jónas kemur fram á öllum sunnudagskvöldum í sumar og út ágústmánuð ásamt hljómsveit sinni, en saman eru þau annáluð fyrir lifandi tónlistarflutning. Viðburðir Hvað? Rabarbarauppskera og sultun Hvenær? 13.00 Hvar? Árbæjarsafn Á Árbæjarsafni vex heilmikið af rabarbara sem heimilisfólkið í Árbæ ætlar að sulta sunnudaginn 25. júní. Rabarbari er gríðarlega vinsæll á Íslandi enda vex hann vel hér á landi og gott er að nota hann í sultur og kökur ýmiskonar. Það merkilega við rabarbarann er að hann er í raun ekki ávöxtur heldur grænmeti sem best er að nýta snemma á sumrin. Ef ekki á að nýta rabarbarann strax er best að geyma hann í ísskáp og helst með blöð­ unum á, en athugið að blöðin eru eitruð svo þeim verður að henda. Hvað? Tangó praktika Tangóævin- týrafélagsins Hvenær? 17.00 Hvar? Hressó, Austurstræti Svanhildur Vals er dj kvöldsins auk þess að sjá um leiðsögn í argent­ ínskum tangó. Ekki þarf að mæta með dansfélaga. Aðgangseyrir er 700 krónur. Hvað? Gengið í Viðey með Önnu Rósu grasalækni Hvenær? 13.15 Hvar? Viðey Anna Rósa grasalæknir leiðir göngu um Viðey þar sem algengar lækn­ ingajurtir verða skoðaðar, fjallað verður um áhrifamátt þeirra og leiðbeint með tínslu og þurrkun. Í Viðey vaxa kröftugar jurtir sem gestum er frjálst að tína í samráði við grasalækninn. Jónas Sig verður á faraldsfæti um helgina ásamt Ritvélum fram- tíðarinnar og verður í Skagafirði og Reykjavík. FRéttablaðið/PJetuR MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM SAMBÍÓANNA KR. 1250 Á GRÆNT OG KR. 950 Á APPELSÍNUGULT SÝND KL. 3 SÝND KL. 2 SÝND KL. 2 Ódýrt í bíó TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS Miðasala og nánari upplýsingar Ísl. tal Ísl. tal HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 SKAM FULLORÐINSPARTÍ 18:00 Sing Street 18:00, 20:00 Heima 18:00 Ég Man Þig 20:00 Gremlins 22:00 Knight Of Cups 22:00 Hjartasteinn 22:15 SÝND KL. 5.40, 8, 10.20 Miðasala og nánari upplýsingar 5% SÝND KL. 2 ÍSL. TAL SÝND KL. 4 ÍSL. TAL SÝND KL. 8, 10.20SÝND KL. 3, 6, 9 SÝND KL. 2 ÍSL. TAL SÝND KL. 5 SPARBÍÓ MERKTAR MEÐ GRÆNU EÐA APPELSÍNUGULU KR.950 Á APPELSÍNUGULT OG KR. 1250 Á GRÆNT ÁLFABAKKA TRANSFORMERS 2D KL. 3:30 - 6:30 - 8 - 9:30 - 11 TRANSFORMERS 2D VIP KL. 2 - 5 - 8 - 11 BÍLAR 3 ÍSL TAL 2D KL. 1 - 2 - 3 - 3:20 - 5:40 - 8 BÍLAR 3 ÍSL TAL 3D KL. 1 WONDER WOMAN 2D KL. 5 - 8 - 11 BAYWATCH KL. 5:30 - 8 - 10:30 PIRATES 2D KL. 5:15 SPARK ÍSL TAL KL. 1:30 - 3:30 GUARDIANS OF THE GALAXY 2D KL. 10:20 TRANSFORMERS 3D KL. 10:40 TRANSFORMERS 2D KL. 1 - 4:30 - 7:40 BÍLAR 3 ÍSL TAL 2D KL. 1 - 3:15 - 5:30 THE MUMMY KL. 10:30 WONDER WOMAN 2D KL. 2 - 5 - 7:50 - 10:40 BAYWATCH KL. 5:20 - 8 - 10:30 PIRATES 2D KL. 2 - 7:50 EGILSHÖLL TRANSFORMERS 3D KL. 2 - 5 - 8 - 11 TRANSFORMERS 2D KL. 10:20 BÍLAR 3 ÍSL TAL 2D KL. 1 - 3:20 - 5:40 CARS 3 ENSKT TAL 2D KL. 2 - 8 WONDER WOMAN 2D KL. 10:10 BAYWATCH KL. 5 PIRATES 2D KL. 7:30 KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI TRANSFORMERS 3D KL. 5 - 8 - 11 BÍLAR 3 ÍSL TAL 2D KL. 1 - 3:20 BÍLAR 3 ÍSL TAL 3D KL. 2 CARS 3 ENSKT TAL 2D KL. 5:40 BAYWATCH KL. 8 PIRATES 2D KL. 10:30 AKUREYRI TRANSFORMERS 3D KL. 5 - 8 - 11 BÍLAR 3 ÍSL TAL 2D KL. 1 - 3:20 - 5:40 BÍLAR 3 ÍSL TAL 3D KL. 2 WONDER WOMAN 2D KL. 10:30 BAYWATCH KL. 8 KEFLAVÍK  TOTAL FILM  TIME OUT N.Y.  L.A. TIMES  EMPIRE  VARIETY  ENTERTAINMENT WEEKLY  USA TODAY  INDIEWIRE  THE WRAP 93% KAUPTU BÍÓMIÐANN Í SAMBÍÓ APPINU Sýnd með íslensku og ensku tali  INDIEWIRE  THE SEATTLE TIMES  THE PLAYLIST Frá leikstjóranum Michael Bay Mark Wahlberg Anthony Hopkins Barrátta tveggja heima – Aðeins annar lifir 2 4 . j ú n í 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R44 m e n n i n G ∙ F R É T T A B L A ð i ð 2 4 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :1 9 F B 0 8 8 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 2 C -7 D 5 0 1 D 2 C -7 C 1 4 1 D 2 C -7 A D 8 1 D 2 C -7 9 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 8 8 s _ 2 3 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.