Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Blaðsíða 4
Gjaldtakan sögð óhjákvæmileg
Í desember 2014 tók stjórn Skíðasvæða höf-uðborgarsvæðisins, SHB, ákvörðun um aðtaka gjald af skíðagöngufólki sem legði leið
sína í Bláfjöll en fram að þeim tíma hafði engin
gjaldtaka átt sér stað. Með gjaldtökunni átti að
mæta þeim kostnaði sem fellur til við þjónustu
við gönguskíðamenn og jafnframt að eiga
möguleika á að bæta enn frekar aðstöðuna á
svæðinu, til dæmis með aukinni lýsingu göngu-
brauta og snjógirðingum.
Bæði er hægt að kaupa vetrarkort á kr.
11.500 og dagskort á kr. 950.
Gjaldtaka af þessu tagi er ekki nýmæli hér á
landi en hún hefur tíðkast lengur á Ísafirði og
Akureyri.
Eðlileg þróun
Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi og formaður
stjórnar Skíðasvæðanna, segir gjaldtökuna
hafa verið óhjákvæmilega.
„Gönguskíði hafa notið vaxandi vinsælda á
síðustu árum og okkur þótti sanngirni í því að
taka gjald af gönguskíðafólki til að geta bætt
þjónustuna við þennan hóp og eiga möguleika á
að bæta aðstöðuna. Segja má að þetta sé liður í
því að byggja upp íþróttina. Gjaldið er að okkar
mati hóflegt og þetta er eðlileg þróun í ljósi
aukinna umsvifa. Það er eðlilegt að það kosti að
fara á gönguskíði rétt eins og svigskíði eða í
sund, svo dæmi sé tekið,“ segir Eva.
Hún segir gjaldtökuna hafa gefið góða raun
og sé að skila tilætluðum árangri. „Það bar á
óánægjuröddum í upphafi, sem er ekkert óeðli-
legt í ljósi þess að ekkert gjald hafði verið tekið
áður. Þegar upp er staðið hefur þetta hins veg-
ar tekist vel og almenn samstaða um að byggja
gönguskíðin upp sem fjölskylduíþrótt. Því ber
að fagna,“ segir Eva.
Einar Bjarnason, rekstrarstjóri í Bláfjöllum,
tekur undir þetta; ekki hafi allir verið ánægðir
með gjaldtökuna í upphafi. „Það er alveg skilj-
anlegt og fyrir vikið vorum við ekkert rosalega
harðir á því að rukka fólk til að byrja með. Það
er sjálfsagt að hafa aðlögun. Í vetur munum við
hins vegar taka þetta föstum tökum.“ segir
hann.
Að sögn Einars hafa flestir tekið því vel að
vera rukkaðir en þó ekki allir; sumir hafi brugð-
ist dónalega við og dæmi sé um að stuggað hafi
verið við starfsmanni Skíðasvæðanna.
140 vetrarkort seldust síðasta vetur og 715
dagskort og voru tekjur af sölunni kr.
1.800.000.
Einar segir þetta kærkomna viðbót við
reksturinn því dýrt sé að troða göngubraut-
irnar. Meðalkostnaður við þær brautir síðustu
þrjá vetur er kr. 4,7 milljónir en snjótroðarinn
var að meðaltali 135 klukkustundir að störfum
og ruddi að meðaltali 450 km á vetri.
Fyrir utan þetta bendir Einar á að lýsing við
brautirnar hafi verið aukin og eðlilegt sé að not-
endur taki þátt í þeim kostnaði líka. Þess utan
séu göngubrautirnar partur af skíðasvæðinu og
inn á það kosti. „Við lítum á þetta sem eina
heild og þjónusta og uppbygging eiga að koma
öllum til góða.“
Hann upplifir ekki annað en að góð sátt sé
um gjaldtökuna. „Þetta er þjónusta sem verður
að vera og það er frábært að fá allt þetta göngu-
skíðafólk í Bláfjöll. Alls staðar sem ég þekki til
erlendis er tekið gjald af skíðagöngufólki og
það var einfaldlega tímabært að taka upp sama
fyrirkomulag hér. Ég finn ekki annað en fólk
hafi fullan skilning á þessu,“ segir Einar.
Skíðagöngufélagið Ullur rekur skála í Blá-
fjöllum og segir Einar samstarfið við félagið
einstaklega gott. „Ullur er að vinna frábært
starf,“ segir hann.
Í hærri kantinum
Finnur Sveinsson, formaður Skíðagöngufélags-
ins Ullar, segir gjaldtökuna hafa mælst mis-
jafnlega fyrir. „Almennt þykir mönnum gjaldið
í hærri kantinum miðað við gjaldið sem tekið er
af svigskíðafólki en ekki er óeðlilegt að bera
þessa tvo hópa saman. Það er ekki næstum því
eins mikil vinna að troða braut og að viðhalda
brekkum, rafmagni og öðru slíku. Ef við skoð-
um árskortin þá eru skíðagöngumenn lengur að
vinna sér inn fyrir þeim, þurfa að fara mun oft-
ar í Bláfjöll en svigskíðafólkið,“ segir Finnur og
bætir við að hækkanir á gjaldinu, bæði árs- og
dagskortum, séu umfram verðlagsbreytingar.
„Við erum hugsi yfir því líka.“
Fullt verð fyrir vetrarkort, sem gildir í allar
lyftur og göngubrautir líka, er kr. 32.500.
Posi er í skála Ullar í Bláfjöllum, svo Skíða-
svæði höfuðborgarsvæðisins geti innheimt
gjaldið, en Finnur segir Ull ekki að öðru leyti
koma að málum. „Við höfum leyft þeim að inn-
heimta gjaldið í skálanum en fylgjumst ekki
með gjaldtökunni og vitum ekki hverju hún er
að skila.“
Gjaldtaka sem þessi hlýtur að kalla á aukna
þjónustu og Finnur segir nýju ljósin sem sett
voru upp við göngubrautina í Bláfjöllum fyrir
síðasta vetur til bóta. Þá sé unnið að því að
bæta aðstöðu göngumanna við skálann. Þær
framkvæmdir eru raunar á vegum Ullar, með
styrk frá Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavík-
ur, ÍTR.
Finnur segir Ull á heildina litið eiga í ágætu
samstarfi við Skíðasvæði höfuðborgarsvæð-
isins.
„Við eigum í stöðugu samtali við Skíðasvæðin
um þróun svæðisins og hvernig við getum nýtt
það og í sumar voru teknar út keppnisbrautir,
svo við getum efnt til alþjóðlegra skíða-
göngumóta í Bláfjöllum. Vonandi verðum við
með eitt slíkt í febrúar,“ segir hann.
Finnur treystir sér ekki til að fullyrða hvort
þetta samtal sé betra eða verra eftir að gjald-
takan kom til sögunnar. „Ég hef setið í stjórn í
tvö ár og tók við formennsku fyrir ári, þannig
að ég get ekki talað mig svo mikið inn í fortíð-
ina.“
Gera má kröfur á móti
Þóroddur Friðrik Þóroddsson, sem var formað-
ur Ullar á undan Finni, tekur í svipaðan streng.
„Það er ekkert óeðlilegt að skíðagöngufólk
greiði fyrir þessa aðstöðu í Bláfjöllum, henni
fylgir kostnaður. Það má hins vegar deila um
upphæðir í þessu sambandi og persónulega
þykir mér þetta gjald heldur hátt, sérstaklega
fyrir dagskortið,“ segir hann.
Um leið og gjaldi hefur verið komið á þykir
Þóroddi eðlilegt að gera kröfur á móti. Hann
segir erfitt að mæla nákvæmlega hvað hefur
breyst í Bláfjöllum eftir að gjaldið var tekið upp
en skíðagöngufólk hafi þó ekki undan neinu að
kvarta. „Sú var tíðin að við mættum algjörum
afgangi; mönnum þótti ekki liggja á að leggja
spor fyrr en í fyrsta lagi eftir hádegi, þegar
löngu var búið að opna brekkurnar. Sem betur
fer hefur þetta breyst mikið og starfsmenn
Skíðasvæðanna eru allir af vilja gerðir til að
hafa aðstöðuna til skíðagöngu sem allra besta.“
Skíðaganga í Bláfjöllum.
Morgunblaðið/Ómar
Gjald hefur nú verið tekið af skíðagöngufólki í Bláfjöllum í tvö ár. Formaður stjórnar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins segir
gjaldið hafa skilað tilætluðum árangri og stuðlað að uppbyggingu íþróttarinnar en skíðagöngufólki þykir það í hærri kantinum.
Einar
Bjarnason
Þóroddur Friðrik
Þóroddsson
Gönguskíði njóta vaxandi hylli.
Morgunblaðið/Þorkell
Eva
Einarsdóttir
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.1. 2017
’Almennt þykir mönnum gjaldið í hærri kantinum miðað viðgjaldið sem tekið er af svigskíðafólki en ekki er óeðlilegt að beraþessa tvo hópa saman. Finnur Sveinsson, formaður Skíðagöngufélagsins Ullar.
INNLENT
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is