Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Blaðsíða 24
Samkvæmt árlegri skýrslu frá matarsérfræðingunum hjá Baum + Whiteman má búast við fleiri vegan-valkostum á nýju ári. Þar á meðal verða ýmsar kjöt- lausar vörur sem líkjast kjöti eins og vegan-rifin sem eru á boð- stólum hjá Suzy Spoon’s Vegetarian Butcher í Sydney en þar er engum dýrum slátrað heldur eru steikurnar og puls- urnar sem þar fást kjötlausar. Einnig er því spáð að það kom- ist í tísku að bjóða upp á „charcu- terie“-platta þar sem ekkert unn- ið kjöt kemur við sögu heldur sé grænmeti stillt upp á svipaðan hátt. Niðurstaðan er að minnsta kosti sú að vegan-útfærslur af hefðbundnum réttum munu verða áberandi árið 2017. Vegan-útgáfur vinsælar Ljósmynd/Suzy Spoon’s Vegetarian Butcher MATUR Meðfylgjandi mynd er frá nýjum veitingastað í Tournus í Frakklandi sem ber nafnið Deli-ces D’Alep. Á myndinni sést Rima, flóttamaður frá Sýrlandi og eigandi veitingastaðarins,bera fram rétti frá heimalandinu. Margir hafa haft áhyggjur af því að sýrlenskar mat- arhefðir tapist í stríðinu en mörgum þeirra verður viðhaldið á þessum veitingastað. Góðgæti frá Aleppó 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.1. 2017 Það er ekki aðeins nauðsynlegt að borða heldur er skemmtilegt að borða góðan mat. Það getur verið spenn- andi að smakka eitthvað nýtt eða gamalt hráefni í nýjum búningi, eins og ís í rúllum. Lykilorðin á komandi ári eru ekki síst minni sóun og meiri nýting, eins og fram kemur í grein Condé Nast Traveler. Það finna áreiðanlega allir eitthvað við sitt hæfi í matartískunni árið 2017. Þessi girnilegi upprúllaði ís, sem framleiddur er með ný- stárlegum hætti er ein af matarnýjungunum sem verða áberandi árið 2017. Ljósmynd/10Below Matartískan árið 2017 Stöðugt koma fram nýjungar í mat sem gaman er að fylgjast með. Eftir- farandi átta atriði verða áberandi í matarheiminum á komandi ári. Þarna er að finna eitthvað sætt og annað ósætt og svo hefur tæknin líka áhrif. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Því er spáð að djúpsteiktur kjúk- lingur haldi áfram að vera vinsæll. Breytingin verði helst sú að hann verði á boðstólum líka í morgun- mat. Þeir sem leggja leið sína til Washington, DC geta heimsótt veitingastað sem gerir út á þetta. Astro Doughnuts & Friend Chick- en býður eins og nafnið gefur til kynna upp á kleinuhringi og steikt- an kjúkling, jafnvel borið fram sam- an þannig að djúpsteikti kjúkling- urinn er inni í kleinuhringnum, rétt eins og þetta væri hamborgari. Bragðmiklum samlokum af ýmsu tagi er líka spáð vinsældum sem morgunmatur, ekki síst út af því hversu auðvelt er að grípa eina með sér. Djúpsteiktur kjúklingur í morgunmat Ljósmynd/Scott Suchman Sem hluti af vaxandi meðvitund um matarsóun verður stærri hluti skepnu sem slátrað er nýttur en áður tíðkaðist. Fínir veitingastaðir vestanhafs notast margir við ýmsa óvenjulega bita. Condé Nast Traveler bendir á að Parts & Labor í Balti- more bjóði upp á djúpsteiktan svínshala og grill- uð kjúklingahjörtu. April Bloomfield og Ken Friedman sem eru þekkt fyrir veitingastaðinn Spotted Pig opnuðu nýjan veitingastað, White Gold, í New York. Þar er til dæmis boðið upp á nautatungu. Íslendingar með sinni innmatarhefð ættu að geta tileinkað sér þessa matartísku án erf- iðleika. Nýta allan gripinn AFP Almenningur verður sífellt meðvitaðri um matar- sóun, eins og nýjasta Áramótaskaupið endurspeglaði. En að öllu gamni slepptu heldur þessi barátta áfram enda veitir ekki af, einum þriðja af mat sem fram- leiddur er í heiminum er hent, að mati Sameinuðu þjóðanna. Stórmarkaðir með afgangsmat eru liður í þessari baráttu en einn slíkur var opnaður í Danmörku á síð- asta ári og matarsóun er hreinlega bönnuð í stór- mörkuðum í Frakklandi. Baum + Whiteman spáir því að afklippur af græn- meti, eins og grösin af gulrótum og öðru rótar- grænmeti, verði meira notaðar. Jafnvel verði veitinga- staðir með sérstaka rétti helgaða grænmeti sem áður var hent. Því fagna umhverfissinnaðir neytendur. Stríð gegn matarsóun AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.