Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Blaðsíða 25
Árið 2017 verður ef til vill ár- ið sem drónar fara að afhenda matarpantanir í meiri mæli. Domino’s sendi pítsu heim með þessum hætti á Nýja- Sjálandi á síðasta ári. Fleiri fyrirtæki eru að prufukeyra drónaafhendingar þannig að það styttist kannski í það að sushi og grænn safi berist með dróna heim að dyrum? Flugumferðarreglur hamla þó þessari þróun að einhverju leyti. Matur með dróna AFP Hægt er að finna hlaðvörp um allt mögulegt á netinu og líka mat. Hlaðvörpum um mat fjölgar stöð- ugt og er hægt að velja úr hundr- uðum þeirra. Condé Nast Traveler mælir með Prince Street, Gastro- pod og Foodcast sem er á vegum hins þekkta tímarits Bon Appetit og ritstjórans Adam Rapoport. Til- valið að hlusta á eitt hlaðvarp á meðan verið er að stússast í eld- húsinu. Hlaðvörp um mat 8.1. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25 Ís af einhverju tagi mun alltaf eiga upp á pallborðið en nú er komin ný tíska. Bragðarefur er kannski ein vinsælasta tegundin á Íslandi en á heimsvísu er því spáð að næsta tegundin sem nái út- breiðslu verði ís í rúllum. Einn af þeim stöðum sem selja slíkan ís er 10Below í New York. Ísinn er búinn þannig til að fljótandi efni er hellt á pönnu og hann síðan skorinn í lengjur og rúllað upp. Oftar en ekki er hann borinn fram með ávöxtum eða öðru góðgæti. Það allra nýjasta er síðan að bera hann fram í vöffluformi sem minnir á takó. Innblásturinn að þessari tísku er hvernig ís er borinn fram hjá götusöl- um í Taílandi. Upprúllaður ís Matreiðslumenn munu leggja mikla áherslu á grænmeti árið 2017, meira að segja á veitinga- stöðum sem hafa áður snúist í kringum kjöt. Búast má við því að blómkál, gulrætur, rósakál og kúrbítur verði áberandi. Græn- kál virðist hafa toppað þótt það eigi sína aðdáendur víða en aðrir verða fegnir að sjá minna af því. Nóg af grænmeti ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ SEMHEFUR SLEGIÐ Í GEGN Kísill er lífsnauðsynlegt steinefni og hefur oft verið kallað hið gleymda næringarefni. geoSilica framleiðir 100% náttúrulegan íslenskan jarðhitakísil steinefni úr jarðhitavatni frá Hellisheiðarvirkjun. *Kísill stuðlar m.a. að: • Styrkingu bandvefs • Þéttleika í beinum • Styrkingu hárs og nagla • Betri myndun kollagens fyrir sléttari og fallegri húð geoSilica kísilvatnið fæst í öllum helstu apótekum, heilsuvöruverslunum, Hag- kaupum, Nettó, Fjarðarkaupum, Fríhöfninni, jarðhitasýningON og vefverslun geoSilica. Reynslusaga: BerglindÓsk Sævarsdóttir Ég er búin að vera að nota silica í góðan tíma núna, ég byrjaði á honum í töfluformi frá öðrum framleiðendum eftir fyrsta barn og eru rúm 5 ár síðan, en mér fannst líkaminn ekki vera að vinna nóg úr þeim eða þær ekki virka nóg fyrir mig, og færði mig yfir í geosilica fyrir rúmu ári. Þetta hefur reynst mér mjög vel eftir barnsburð nr. 2 þá sérstaklega vegna hárloss, það er allt annað að sjá á mér kollinn núna og ég vildi óska að ég ætti fyrir og eftir myndir af mér því að þetta hefur sko sannarlega hjálpað til :D

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.