Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Blaðsíða 45
milljónir Bandaríkjadala í fjárhags-
áætlun. Svo eru næstu Óskars-
verðlaun nú bara handan við hornið.
Þar sem allir eru „keen“
(varúð: textinn inniheldur
spilliefni)
Norsku unglingarnir í Skam trylla
nú ungt fólk um allan heim og skyldi
engan undra, þættirnir eru dáleið-
andi. Undan ýmsu er þó hægt að
kvarta, ef maður endilega vill. Til að
mynda snýst líf þeirra Vilde, Noora,
Eva, Sana og Chris kannski full-
mikið um stráka og þær láta þá hafa
of mikil áhrif á sig. Líklega gefur
það hinsvegar ansi góða mynd af því
hvernig það er að vera ung stúlka í
Fuckboy-heimi. Öllu undarlegra val
þykir undirritaðri að Sönu og öðrum
múslimastúlkum í þættinum sé gefin
klisjan um reiðu svörtu konuna, en
vonandi verður kafað dýpra í líf
þeirra í næstu þáttaröðum.
Þegar upp er staðið eru allar
stúlkurnar sterkar, einstakar og
ólíkar en kunnuglegar persónur sem
lifa í rauninni voðalega venjulegu lífi
og styðja hver aðra án þess að úr því
sé gert stórmál. Það, í heimi brjál-
æðislegra útlitsstaðla og endalausr-
ar sjónvarpsdramatíkur, er stórmál.
Það að #squadgoals séu norskar
táningsstúlkur en ekki Kardashian-
klanið er eitthvað sem allir ættu að
geta fagnað.
Önnur ástæða fyrir því að Skam
ratar á þennan lista snýr svo að ung-
lingsdrengnum Isak sem er aðal-
hetja nýjustu þáttaraðarinnar. Fem-
ínismi er eftir allt marglaga og tekur
til hverskonar jafnréttisbaráttu og
sagan af því hvernig Isak kemur út
úr skápnum er einstök í vestrænu
sjónvarpi. Nú er bara að spenna
greipar og vona að Ríkisútvarpið
íhugi framleiðslu á sambærilegu efni
um unga Íslendinga.
Hver á að hamra á feðraveldinu ef ekki íslensk rappkvendi?
Morgunblaðið/Eggert
Grínistinn Samantha Bee er hárbeitt
og hjólar í Trump.
AFP
Leikstjórinn Ava DuVernay vakti
mikla athygli á liðnu ári.
AFP
Kannski RÚV ætti að huga að framleiðslu á svipuðu efni um íslenska unglinga?
Sjónvarpið hefur margoft skotiðmér skelk í bringu gegnum tíð-ina. Hver man ekki eftir ill-
mennum á borð við Falconetti í Gæfu
eða gjörvileika, Alice Morgan í Luther,
Francis Urquhart/Underwood í House of
Cards eða Joð Err gamla Ewing í Dallas?
Öll voru þau og eru fær um hrollvekjandi
háttalag. Að ekki sé talað um allar stór-
slysa- og náttúruhamfaramyndirnar og
fréttir af vígum og hverskyns níðings-
verkum. Sem geta því miður verið daglegt
brauð.
Ekkert hefur þó vakið með mér meiri
ótta en spjallþáttur Ellenar DeGeneres sem
sýndur er á undan fréttum Stöðvar 2 á virk-
um dögum. Ekki er við Ellen sjálfa að sak-
ast; hún er flott sjónvarpskona og ötull mál-
svari minnihlutahópa, ekki bara í Banda-
ríkjunum heldur heiminum öllum. Það eru
áhorfendurnir í sjónvarpssal sem hræða
mig. Og það upp úr skónum!
Hvers vegna segi ég það? Jú, þeir orga
og æpa úr sér lungun þáttinn út í gegn. Þeir
orga og æpa úr sér lungun þegar Ellen sjálf
gengur í salinn. Þeir orga og æpa úr sér lung-
un þegar gestir þáttarins ganga í salinn.
Loks orga þeir og æpa úr sér lungun af
tvöföldum krafti þegar Ellen setur upp
huggulegt bros og gefur þeim gjafir.
Eðli málsins samkvæmt er ég löngu
hættur að kveikja á þessum þætti en hef
grun um að gjöfum sé dreift í hvert ein-
asta skipti. Auk þess að orga og æpa úr
sér lungun af tvöföldum krafti byrja
áhorfendur í sjónvarpssal (og stundum í
beinni útsendingu að heiman) að stappa og
klappa, hoppa og faðmast; gjörsamlega
sleppa sér eins og sjálfir Bítlarnir væru
komnir saman á ný. Sjónvarpssalur breytist
á augabragði í fuglabjarg þar sem refir og
minkar leika lausum hala. Djöfulgangurinn
hlýtur að koma fram á jarðskjálftamælum í
Kaliforníu. Og mögulega víðar.
Annars er þáttur Ellenar ekkert eins-
dæmi; sama móðursýki greip reglulega um
sig í þætti Opruh Winfrey meðan hann var
og hét. Hvað í ósköpunum fær fólk til
þess að missa svona gjörsamlega stjórn á
sér af litlu tilefni? Er þetta sérbandarískt
fyrirbrigði eða gæti þetta gerst hér á
landi líka? Eigum við nokkuð að láta á
það reyna?
ORGAÐ OG ÆPT Í SJÓNVARPSSAL
AFP
Ellen
DeGeneres
Á skjánum
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Logandi hræddur við Ellen
8.1. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
TÓNLIST Sala á vínylplötum hefur ekki verið meiri í
aldarfjórðung í Bretlandi en 3,2 milljónir slíkra platna
seldust árið 2016. Það er 53% aukning frá árinu áður og
þetta var níunda árið í röð sem sala á vínylplötum eykst.
Árið 2007 seldust aðeins tvö hundruð þúsund vínyl-
plötur í Bretlandi. 2016 var líka sögulegt í þeim skiln-
ingi að fólk eyddi hærri fjárhæðum í vínylplötur en staf-
rænt niðurhal. David Bowie bar af öðrum listamönnum
en auk þess að eiga söluhæstu vínylplötu ársins,
„Blackstar“, átti hann fimm af þrjátíu söluhæstu plöt-
unum. Bowie sálaðist sem kunnugt er í byrjun síðasta
árs og það hefur án efa haft áhrif á söluna. Í frétt breska
blaðsins The Guardian kemur fram að það sé ekki síður
ungt fólk sem sé að fjárfesta í vínyl en eldra fólk.
53% aukning í vínyl
David
Bowie
Reuters
SJÓNVARP Það skarst í odda með tveimur
gamalreyndum dægurtónlistarmönnum í
sjónvarpsþættinum „The New Celebrity Ap-
prentice“, sem frumsýndur var í Bandaríkj-
unum í vikunni. Við erum að tala um Boy
George úr Culture Club og Vince Neil úr
Mötley Crüe. Verkefni þeirra í téðum þætti
var að semja og taka upp lag, auk þess að
gera við það myndband, og George þótti Neil
kneyfa ölið ótæpilega í hljóðverinu. „Ég kæri
mig ekki um svona lagað,“ sagði George, sem
hefur marga fjöruna sopið gegnum tíðina.
Neil lét sér á hinn bóginn fátt um finnast. „Ég
er löngu orðinn 21 árs,“ varð honum að orði.
Staupaði sig fyrir framan Boy George
Vince Neil og Boy George í essinu sínu.
NBC
1. Notandi þarf að vera með fulla áskrift og
skráður á mbl.is
2. Það er gert á forsíðu mbl.is, efst í vinstra
horninu (Innskráning · nýskráning)
3. Þú færð Morgunblaðs-appið á App Store og
Play Store
4. Kennitala er skráð sem notandanafn
5. Lykilorð er það sama og á mbl.is
SVONA SKRÁIR ÞÚ ÞIG
Ef þú þarft frekari aðstoð hafðu þá samband
við okkur í síma 569 1100
VIÐBÓT FYRIR ÁSKRIFENDUR
v
Fáðu Moggann þinn hvar sem er og hvenær sem er
Nú fylgir Morgunblaðið í rafrænni útgáfu fyrir spjaldtölvur og snjallsíma
MOGGINN
ÁSKRIFENDUR ATHUGIÐ
*RAFRÆN ÚTGÁFA MORGUNBLAÐSINS, E-MOGGINN, FÆST BÆÐI FYRIR
IPAD OG ANDROID 2.2. OG NÝRRI ÚTGÁFUR.
**GILDIR FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ FULLA ÁSKRIFT.
*
**