Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.1. 2017
VETTVANGUR
Mér er minnisstæð þing-ræða helstu forystukonuPírata við eldhúsdags-
umræður síðastliðið vor. Hún var að
lýsa af mikilli innlifun fæðingu
„Nýja Íslands“. Eftir því sem leið á
fæðingarhríðarnar varð forseti Al-
þingis, sem stýrði fundi, sífellt blóð-
minni ofan herða og skrifstofustjóri
Alþingis að sama skapi fölur sem
nár. Það var þegar hin verðandi
móðir lýsti því yfir að hún ætlaði sér
það hlutverk að stýra þinginu á
komandi kjörtímabili.
Hvað um það, svo var kosið og all-
ir biðu spenntir eftir því að sjá
„Nýja Ísland“ verða til, litla ný-
fædda krógann sem svo miklar von-
ir voru bundnar við.
En viti menn, barnið var bara
ósköp venjulegt og hefðbundið barn,
hrein eftirmynd foreldra sinna.
Vandséð úr hvaða ætt svipurinn var
sterkastur, sitthvað sem minnti á
Eimskip og Sjóvá, fjármálafyrir-
tækin voru þarna líka í vanga-
svipnum og fluggeirinn einnig. Svo
var áberandi svipur frá SA og iðn-
rekendum. Svona eru genin. Þau
skila sér alltaf í
vögguna.
En bíðum við.
Þetta getur ekki
staðist. Því ekki
var það SA sem
gat krógann og
ekki heitir móð-
irin Sjóvá.
Nei, þetta eru
fósturforeldr-
arnir, sem ætla
að taka „Nýja Ísland“ að sér en eiga
að öðru leyti ekkert í því. Og mig
grunar að hið eiginlega foreldri, ís-
lenska þjóðin, hafi í reynd engan
áhuga á fósturheimili í umsjá
framangreindra aðila.
Alla vega var margt sem við nú
vitum, sem ekki var vitað fyrir al-
þingiskosningarnar í októberlok og
enn fleira er ljóst sem áður var
óljóst. Vissu kjósendur Bjartrar
framtíðar t.d. hvers kyns framtíð
það var sem sá flokkur sá fyrir sér
að öðru leyti en að hún væri björt?
Trúðu kjósendur Viðreisnar því ef
til vill að Viðreisn væri hófsamur
miðjuflokkur sem gæti virkað sem
mótvægi við hvers kyns öfgar, til
dæmis öfgafulla markaðshyggju?
Trúðu kjósendur Pírata að rót-
tæknin þar á bæ næði lengra en til
þess eins að hafa fundi opna og allt
gagnsætt?
Þannig mætti áfram telja og
spyrja áleitinna spurninga um VG
og Samfylkingu einnig. Þeir flokkar
eiga það þó sammerkt með Sjálf-
stæðisflokki og Framsókn að þeir
hafa sýnt sitt andlit í nýlegum ríkis-
stjórnum; með öðrum orðum, kynnt
sig með verkum sínum.
Höfundur þessa pistils talaði
ákaft gegn haustkosningum. Vildi
meiri festu en svo að forsvarsmenn
á Alþingi gætu vélað um og hringlað
með lengd kjör-
tímabila.
En nú skal
boðuð ný sýn.
Það er nefnilega
rétt sem sagt er,
að við erum að
ganga í gegnum
tímabil breyt-
inga og pólitískr-
ar gerjunar. Sú
gerjun verður að
eiga sér stað í alvöru samtali milli
þings og þjóðar þar sem allir komi
til dyranna eins og þeir raunveru-
lega eru klæddir. Sá klæðaburður
hefur smám saman verið að koma í
ljós í því pólitíska tilhugalífi sem
okkur hefur birst undanfarnar vik-
ur.
Þess vegna yrði þjóðin betur upp-
lýst nú, gengi hún að nýju að kjör-
borðinu. Reynist niðurstaðan eins
tormelt og sú sem nú er á borðum,
verður einfaldlega að kjósa enn á ný
og síðan aftur og aftur. Þjóðin á ekki
að vera stikkfrí frekar en pólitíkus-
arnir. Vandræðagangurinn í Alþing-
ishúsinu er nefnilega tilkominn af
hennar völdum – þjóðarinnar. Það
var hún sem kaus!
Þjóðin hefur það hins vegar sér til
málsbóta að hún kann að hafa verið
blekkt með fagurgala og inn-
plöntuðum ranghugmyndum. Þær
myndir þarf nú að rétta af með
endurteknum kosningum.
Kjósum aftur, aftur og aftur
’Þjóðin á ekki að verastikkfrí frekar en póli-tíkusarnir. Vandræða-gangurinn í Alþingishús-
inu er nefnilega
tilkominn af hennar völd-
um – þjóðarinnar. Það
var hún sem kaus!
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Morgunblaðið/Golli
Stjörnuskoðarinn
Sævar Helgi
Bragason
(@saevarhb) læt-
ur sig ekki aðeins
geiminn varða
heldur umhverfismál en hann
skrifaði á Twitter: „Ætla að lýsa
óvinsælli skoðun og vona innilega
að engin olía finnist. Við verðum
að snúa okkur að öðrum orku-
gjöfum.“
Gunnar Smári Egilsson hef-
ur vakið athygli í vikunni fyrir að
breyta nafninu á
Facebook-
hópnum Ísland –
20. fylki Noregs í
Sósíalistaflokkur
Íslands en hann
gleðst yfir viðtök-
unum: „Nú hafa yfir 400 manns
slegist í hópinn Sósíalistaflokkur
Íslands á fjórum dögum, hundrað
á dag að meðaltali. Hópurinn er
stilltur þannig að ég sem umsjón-
armaður þarf að samþykkja um-
sóknir fólks um inngöngu og sé
því að þarna er mikið af sóma-
fólki; kláru, duglegu og skemmti-
legu. Mér er til efs að nokkur
flokkur hafi fengið annan eins
meðbyr í upphafi þessa nýja árs.
Endilega verið með.“
Margir nota netið til að deila
lífsreynslu sinni en Elísabet
Ólafsdóttir er
ein þeirra: „Elsku
vinir. Til að forða
ykkur frá því að
sitja undir alls-
konar drama
næstu mánuði
hef ég ákveðið að byrja að blogga
aftur. Ég er að díla við frekar
harkalegt þunglyndi og ætla að
blogga til að batna. Mér finnst
gott að skrifa hlutina burt og það
er eitthvað við að birta á int-
ernetinu sem leyfir mér ekki að
taka það til baka. Það er komið
út í tómið og ég finn að það
hjálpar mér. Kannski ég deili ein-
hverjum færslum hérna á facebo-
ok... ég veit það ekki. En mér
fannst ég verða að taka þetta
ferðalag og setja á sinn stað,“
skrifaði hún á Facebook en hún
bloggar á www.betan.io.
Kristín Soffía Jónsdóttir
brást við fréttum af ferðamönn-
unum sem týnd-
ust í vélsleðaferð
á Langjökli: „Fyrir
nokkrum árum
var ég einn af
mörgum gædum
með stóran hvata-
hóp erlendis frá. Þetta voru
ábyggilega 100 manns og mikið
prógramm fyrir allan hópinn. Hluti
af prógramminu var vélsleðaferð á
Langjökli. Þegar líða tók á daginn
fór veður að versna og þegar
komið var að sleðaferðinni var
veðrið orðið algjörlega brjálað,
mikið rok, ískalt og skyggni ekk-
ert. Þá lærði ég að kerfið var
meingallað og í raun galið.
Reglan var þá að ef sá sem hafði
umsjón með hópnum hætti við
vegna veðurs þá sat hann uppi
með tapið en ef vélsleðafyrirtækið
hætti við ferðina þá sátu þeir uppi
með það. Svo fór af stað einhver
fáránleg störukeppni þar sem að
allir undirbjuggu ferðina mjög
hægt – bíðandi og vonandi að hinn
myndi kansela. Fólkið frekar
smeykt enda varla hundi út sigandi
og að lokum var farið af stað í ein-
hverja algjöra rugl ferð. Ein kona
fékk kal og einhverjir fóru að gráta
og fólk var bara skíthrætt. Ferðin
var stutt og keyrt einhvern hring
löturhægt í bandbrjáluðu veðri. Ef
leikreglurnar eru enn þær sömu
þá eru þær beinlínis hættulegar og
þörf á að gera einhverjar breyt-
ingar.“
Grínistinn Ari Eldjárn var
þakklátur gestunum sem mættu á
Áramótaskopið.
„Ég vil þakka öll-
um sem komu að
sjá Áramóta-
skopið milli jóla
og nýárs. Þetta er
stærsta, trylltasta
og mest spennandi verkefni sem
ég hef tekið mér fyrir hendur og
ég er gjörsamlega orðlaus yfir við-
tökunum. Fjögur full Háskólabíó
og endalaus gleði og hamingja.“
AF NETINU
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST