Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Síða 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Síða 23
Dökki veggurinn kem vel út við bleika púða í svefn- herbergi parsins. Skandinav- ískur stíll í Garðabæ Arna Björk Björgvinsdóttir, flugfreyja hjá Icelandair og meistaranemi í lögfræði við Háskólann í Reykjavík, og unnusti hennar Viktor Víðisson, sem starfar við áhættu- stýringu, festu kaup á bjartri íbúð í Garðabæ fyrir ári með útsýni yfir hafið. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is ’ Stíllinn á heimilinueinkennist af gráumlit og huggulegu yfir-bragði í bland við skand- inavískan stíl Smáatriðin skipta miklu máli. Á skenknum í stofunni er fáguð uppröðun hönnunar og persónulegra muna. Arna segir stílinn á heim-ilinu einkennast af gráumlit og huggulegu yfir- bragði í bland við skandinavískan stíl. „Ég er mikið fyrir að blanda silfurlituðu við heimilið og flauel er líka í miklu uppáhaldi.“ Þegar hugað er að innréttingu heimilisins segir Arna mikilvægt að hugsa um hvort breytingin eða hluturinn er eitthvað sem hún geti hugsað sér að hafa inni hjá sér næstu árin. „Ég vil helst kaupa hluti sem eru tímalausir og ég get átt lengi. Mér finnst mikilvægt að fólki líði vel heima hjá sér og reyni ég að innrétta heimilið eftir því,“ útskýrir hún og bætir við að hún hafi keypt mikið inn á heim- ilið í H&M home. „Einnig er ZARA home í miklu uppáhaldi og eldhúsdót í Crate&Barrel. Hér heima get ég alltaf fundið eitthvað í Søstrene Grene og Habitat. Svo eru Heimahúsið, Modern og Norr11 í miklu uppáhaldi,“ út- skýrir Arna sem segist þó ekki vera bundin við ákveðnar versl- anir heldur kaupi það sem sér finnist passa best inn í íbúðina hverju sinni. Arna segist hafa mjög gaman af því að skoða hönnunarblöð og vafra um á vefsíðunum Instagram og Pinterest, aðspurð hvaðan hún sæki innblástur inn á heimilið. „Annars fæ ég mestan innblástur með því að skoða úrvalið í búð- unum og á vefsíðum verslana og fæ þá oft margar hugmyndir.“ Þá hefur Arna gaman af því að dunda sér í eldhúsinu og bjóða í matarboð og segir þar af leiðandi samliggjandi eldhús og borð- stofurými í miklu eftirlæti ásamt hægindastólnum í stofunni. „Hringborðið er í miklu uppáhaldi og skapast oft skemmtileg stemn- ing þegar fjölskyldan og vinir koma í mat. Annars þykir okkur gott að sitja í stofunni í sófanum og spjalla saman og horfa út á sjóinn.“ Morgunblaðið/Ófeigur 8.1. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 ÚTSALA – ALLT AÐ 60% AFSLÁTTUR NATUZZI EDITION B814 Leður hornsófi með rafknúinni einingu. Brúnt leður. Stærð: 387 x 289 x 94 cm AFSLÁTTUR 40% 779.994 kr. 1.299.990 kr.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.