Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Side 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.01.2017, Side 41
8.1. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 Ég er að lesa bók sem ég keypti mér úti í Madríd, A Field Guide to Getting Lost eftir Reb- eccu Solnit. Hún er frægust fyrir bókina Men Explain Things to Me, en þetta er bók um það að vera „flaneur“, að fara eitthvað út í óvissuna og upplifa hlutina ekki alltaf eftir skýrum leiðum sem mað- ur þekkir fyrirfram. Yfir hátíðirnar var ég líka að lesa bækur eftir Kate Atkinson, dýrðar- höfund. Bjartur gaf einu sinni út bók eftir hana, leynilögreglu- sögu, en hún hefur gef- ið út margar ólíkar bækur. Life After Life er fyrri bók af tveimur sem eru lauslega tengdar. Ég hef reyndar líka gluggað aftur í hinar bæk- urnar hennar sem ég las fyrir nokkrum ár- um. Svo er ég að reyna að halda mér við í frönskunni og las Le mystère Henri Pick eftir David Foenkinos, höfund sem ég er sjúklega hrifin af. Þetta eru bókmenntalegar bækur en mjög léttar og gamansamar. Guðrún Vil- mundardóttir Guðrún Vilmundardóttir er leik- húsfræðingur og bókaútgefandi. inlega algjör töfffari eins og sjá má til að mynda á viðskiptum hennar við lögmann sem kemur við sögu. Er það meðvituð ákvörðun þín eða er hún að taka völdin? „Í fyrstu bókinni var Edda enn hálfdösuð eftir að hafa misst vinn- una nokkrum vikum áður. Hún var beinlínis í áfalli og að reyna að fóta sig í framandi aðstæðum … henti sér hugsunarlítið út í rannsókn dularfulls máls og dróst óvart inn í hræðilegar hremmingar. Í nýju bókinni er hún aðeins að ná áttum, finna nýjan takt í tilverunni og endurheimta sjálfstraustið. En ég efast um að hún læri nokkurn tíma að telja upp að tíu áður en hún æðir af stað.“ - Edda er á jaðri samfélagsins á fleiri en eina vegu – hún er komin á eftirlaun og því útí horn, en svo er hún líka kona og enn jaðarsett- ari fyrir vikið eins og birtist mjög vel í heita pottinum í Vesturbæj- arlauginni þar sem karlarnir eru „svo uppteknir af sínum ógáfulegu getgátum að engum þeirra dettur í hug að spyrja hvað henni fyndist“. „Einmitt. Edda tilheyrir sam- félagshópi sem ekki er nógu sýni- legur eða virtur, hún er stimpluð gömul kerling og þar með óáhuga- verð og nánast dæmd úr leik. Það var líka akkúrat þess vegna sem ég valdi að gera hana að aðal- persónu. Ég fór aðeins inn á það í Konunni í blokkinni hvernig eldri konur eru nánast ósýnilegar þeim sem yngri eru og virka allar hver annarri líkar. Þetta mætti gjarnan breytast.“ - Ég nefndi flækjustigið áðan – mig grunar að Finnur og Ingibjörg muni koma við sögu í næstu bók og þá jafnvel rækilega við sögu. „Finnur og Ingibjörg eru mér mjög kær og þau fara ekki langt. En Snorri og Viktor þurfa sömu- leiðis pláss, hjá þeim er enn ým- islegt á huldu. Svo þú sérð að þrjár bækur rúma þetta engan veginn.“ Að lokum: Þú ert komin í gang með Eddu, en hvað með bækur án hennar, ertu með ein- hverja slíka á prjónunum? „Í augnablikinu hleypir Edda engum öðrum að og ég er full- komlega sátt við það. Á meðan við skemmtum okkur svona vel saman hvarflar ekki að mér að halda fram hjá henni.“ Morgunblaðið/RAX ’ Í augnablikinu hleypir Edda engum öðrumað og ég er fullkomlega sátt við það. Á meðanvið skemmtum okkur svona vel saman hvarflarekki að mér að halda fram hjá henni. BÓKSALA 2016 1 PetsamoArnaldur Indriðason 2 AflausnYrsa Sigurðardóttir 3 Pabbi prófessorGunnar Helgason 4 Tvísaga : móðir,dóttir, feður Ásdís Halla Bragadóttir 5 Þín eigin hrollvekjaÆvar Þór Benediktsson 6 Útkall- kraftaverk undir jökli Óttar Sveinson 7 Heiða - fjalldalabóndinnSteinunn Sigurðardóttir 8 SvartigaldurStefán Máni 9 Elsku Drauma mín :minningabók Sigríðar Halldórsdóttur Vigdís Grímsdóttir 10 Laddi: Þróunarsagamannsins Gísli Rúnar Jónsson 1 PetsamoArnaldur Indriðason 2 AflausnYrsa Sigurðardóttir 3 SvartigaldurStefán Máni 4 SvartalognKristín Marja Baldursdóttir 5 Þín eigin hrollvekjaÆvar Þór Benediktsson 6 DrungiRagnar Jónasson 7 ÖrAuður Ava Ólafsdóttir 8 Þættir af séra ÞórarinumÞórarinn Eldjárn 9 PassíusálmarnirEinar Kárason 10 EylandSigríður Hagalín Björnsdóttir Söluhæstu bækur ársins Íslensk skáldverk Listinn er tekinn saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda ÉG ER AÐ LESA HAPPY HOUR alla daga frá 16 - 18 Argentína steikhús | Barónsstíg 11 | 101 Reykjavík | Sími 551 9555 | salur@argentina.is | argentina.is alvöru steik Borðapantanir 551 9555 salur@argentina.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.